NewHeader09
Elskaðu mig mest þegar ég á það síst skilið

Elskaðu mig mest þegar ég á það síst skilið því þá þarf ég mest á ást þinni að halda!

 
Vertu með í sumar, komdu í jóga og vertu í formi!
 
Rétti tíminn er núna! Skráðu þig á glómotion framhaldsnaámskeið með Guðna  28 júní. Skráðu þig hér!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Viljum við breytast eða breyta myndinni?

"Guðni GunnarssonEf við viljum breyta einhverju þá verðum við að vita hvað við viljum. Ef ég spyr fólk á námskeiðum hvað það eigi skilið mikla velsæld á bilinu 1-10, þar sem 1 er minnst og 10 er mest, þá segja flestir að þeir eigi skilið 9 eða 10. Þá spyr ég fólk hvað það sé í mikilli velsæld núna? Þá kemur í ljós að flestir eru i velsæld sem þeir meta á bilinu 3-7.
 
Í hverju liggur mismunurinn? Hann liggur í því að við höfum það sem við viljum og erum þar sem við erum af því að við fórum þangað, sem þýðir að við eigum þá velsæld einungis skilið sem við höfum. Við erum stöðugt að laða að okkur velsæld eða vansæld í tengslum við þær heimildir sem við höfum í hjarta, ekki í huga.
 
Við getum talið okkur trú um að við eigum alla velsæld himinsins skilið, en ef hjartað er ekki sammála þá breytist ekkert. Eina leiðin til þess að öðlast sanna velsæld er að vera einlægur og segja sannleikann. Þegar maður hefur lært að segja sannleikann, þá getur maður byrjað að treysta og þegar maður fer að treysta, þá hættir maður að vera í vörn eða ótta. Staðreyndin er einfaldlega sú að á meðan við erum hrædd, þá löðum við ekkert annað að okkur en ótta. Um leið og við erum komin í traust, þá getum við öðlast velsæld og laðað að okkur í örlæti.
 
Fyrsta skrefið sem við þurfum hins vegar að taka er að spyrja hvort við séum sannarlega til í eitthvað annað en við höfum og ef að svarið er já, þá verðum við að búa til mynd af því hvað það er og hefjast síðan handa við að styrkja þá mynd í huga þangað til að hún verður að veruleika. Öll okkar þjáning, skortur og vansæld byggist á hugmyndum sem eru ekki heilar heldur er hugmyndin um sársauka og vansæld sem hafa ekki verið heilaðar.
 
Heili okkar vinnur bara með myndir og ef að myndin sem við höfum í huga er ekki heil, þá getum við ekki verið heil. Þegar myndin er fullmótuð þá þurfum við að hefja ferli sem byggist á einlægni, þegar við stöndum ekki við það sem við segjum, þá getum við einfaldlega ekki treyst okkur og þ.a.l. ekki verið heil."
 
Getum við svelt krabbameinsfrumur?
Dr. William Li talar á TED ráðstefnu um sprotamyndun æða
 
TED.COM - William LiDr. William Li talar á TED ráðstefnu um myndun krabbameinsæxla og annarra sjúkdóma út frá æðamyndun sem á sér stað vegna sprotamyndunar frá öðrum æðum í líkamanum. Li talar einnig um niðurstöður rannsókna sem sýna hvernig hægt er að koma í veg fyrir sprotamyndun í æðamyndun þar sem æðar tengjast krabbameinsfrumum og leiðir til þess að þær fjölga sér og mynda æxli.
 
Li talar um að ójafnvægi í þessari æðamyndun, sem tengist endurnýjun allra vefja líkamans, geti leitt til fjölda sjúkdóma. Li telur að yfir 70 sjúkdómar tengist þessari æðamyndun og sjúkdómar skiptist í tvo flokka, eftir því hvort of lítil eða mikil sprotamyndun á sér stað.
 
Samkvæmt rannsóknum Li geti of mikil sprotamyndun leitt til sjúkdóma eins og t.d. krabbameins, psoriasis, liðagigtar, offitu og ms. Ef skortur á sprotamyndun er til staðar þá geta myndast aðstæður fyrir kransæðasjúkdóma, heilablóðfall, hárlos og fleiri sjúkdóma.
 
En hvað er til ráða? Dr. Li talar um að helsti vandinn við lækningu krabbameins sé hve seint það greinist. Hann segir að krabbameinsfrumur séu til staðar í stórum hluta fólks frá 40 ára aldri og stigmagnist eftir því sem aldurinn færist yfir. Hins vegar sé hægt minnka líkurnar á því að frumurnar myndi æxli með því að borða lífrænt og litríkt.
 
Dr. Li talar m.a. um grænt te, tómata, jarðarber, rifsber, bláber, appelsínur, ananas, rauðvín, ginseng, túnfisk, hvítlauk, dökkt súkkulaði og margar fleiri lífrænar náttúruafurðir sem minnki líkurnar á því að sprotamyndun tengi æðar við krabbameinsfrumur og aðra óæskilega vefjamyndun.
 
Lykilatriðið er að borða alltaf lífrænt, ekki bíða þangað til það er orðið of seint.
 
Te er vinsælasti drykkur í heimi á eftir vatni
Það var uppgötvað fyrir nánast 5.000 árum í Kína

Tebolli

Te á rætur að rekja til Kína og hefur verið drukkið í nærri 5.000 ár. Á eftir vatnsdrykkju er te mest drukkinn af öllum drykkjum í heiminum. Allar tegundir tes koma frá plöntunni Camellia sinensis en yfir 3.000 afsprengi eru til af þessari plöntu sem vex í fjalllendi um allan heim.

Te inniheldur plöntuolíur sem gefa keiminn og bragðið, koffín sem veldur örvun og ensím sem talin eru hafa andoxunarverkun. Vinnsluaðferðin ræður því hvernig þessi efni sem eru í teplöntunni hafa áhrif á líkamann þegar við drekkum teið. Margar aðferðir eru til þess að vinna tejurtina, m.a. þurrkun, mölun og brennsla eða hitun yfir eldi svo dæmi séu tekin.
 
Hundruðir vísindalegra rannsókna hafa verið gerðar undanfarna áratugi á teneyslu þar sem niðurstöður sýna að tedrykkja tengist betri heilsu og vellíðan. Margir vísindamenn, læknar, næringarfræðingar, heilsuráðgjafar og hómópatar um allan heim hafa mælt með tedrykkju og alltaf er verið að leitast við að finna nýja og betri blöndu.
 
Staðreyndin er hins vegar sú að tedrykkja er af hinu góða þegar öllu er á botninn hvolft, kynntu þér hvaða tegundir eru í boði og kannaðu hvort búið sé að bragðbæta teið með gerviefnum eða hvort um hreina náttúruafurð sé að ræða.
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Langtíma streita getur flýtt öldrun
Samkvæmt nýrri rannsókn
 
StreitaLangtíma streita veldur því að kalk losnar úr frumum og vefjum líkamans í miklu magni og veldur frumudauða, samkvæmt nýlegum rannsóknum vísindamanna við Rockefeller háskólann í Bandaríkjunum.
 
Losun kalks úr frumum og vefjum líkamans er eitt helsta rannsóknarefni vísindamanna um allan heim þar sem hún tengist mörgum sjúkdómum eins og æða- og hjartasjúkdómum, ónæmissjúkdómum, taugasjúkdómum og krabbameini.
 
Á meðal þessara sjúkdóma er t.d. sykursýki, en kalklosun tengist m.a. seytingu insúlíns. Nýleg rannsókn vísindamanna við Ohio State University bendir til þess að kalklosun úr frumum og vefjum sé mun umfangsmeira vandamál en áður hefur verið talið.
 
Þekktur orsakavaldur losunar kalks í líkamanum er gosdrykkir sem innihalda kornsýru.
Breyttur opnunartími á Gló 11-20 virka daga
Haltu þig við hollustuna allan daginn á Gló

N�tt �r 2010Veitingastaðurinn Gló við Engjateig 17-19 er nú opinn alla virka daga frá kl. 11 til 20. Á laugardögum er opið frá kl. 11 til 15.

Með breyttum opnunartíma geta viðskiptavinir komið og borðað hollan og ljúffengan kvöldverð í notalegu umhverfi eða tekið hollustuna með sér heim.

Minnum á vinsælu hráfæðiréttina hennar Sollu Eiríks sem hafa slegið í gegn.

Hlökkum til að sjá ykkur á Gló :)
 
Orku- og aðhaldsnámskeið vinsælast
6 vikna námskeið sem veitir þér stuðning til þess að breyta
 
gudni lyfta"Þetta námskeið gengur út á að leysa úr læðingi orkuna sem þú býrð nú þegar yfir. Við kennum fólki að búa til orku og viðhalda henni með því að velja orkuríka fæðu, létta á okkur og hreinsa líkamann andlega, líkamlega og tilfinningalega. Við leyfum okkur ekki að vera upptendruð og lifa lífinu til fulls. Við kunnum ekki að fara með orkuna. Við skiljum ekki að við getum varið henni á mismunandi hátt, við getum valið hvort við verjum orkunni í velsæld eða vansæld.

Þetta er í rauninni kraftaverkanámskeið, þú getur gert nákvæmlega allt sem þú vilt með líf þitt. Það eina sem þú þarft að gera er að virkja orkuna sem þú býrð yfir. Hluti af tilfinningalegu hreinsuninni sem við förum í er fyrirgefning. Við verjum gífurlegri orku í höfnun, vonbrigði og eftirsjá. Við kennum þátttakendum að verja þeirri orku í þann farveg sem það vill. Hvort sem fólk vill grenna sig, létta sig eða vera orkumeira og hressara, þá þurfum við að læra að gera það markvisst, þannig gerast undur og kraftaverk."
 
Líkamsrækt getur dregið úr reiði fólks
Samkvæmt nýrri rannsókn á reiðum körlum
 
Reið kona
Fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á að líkamsrækt bætir skap fólks, en niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna fram á að reiði fólks minnkar við útrásina sem líkaminn fær við líkamsrækt.
 
Rannsóknin var gerð á 16 karlmönnum sem voru reittir til reiði fyrir og eftir að hafa fengið útrás. Mennirnir skráðu sjálfir hversu reiðir þeir urðu og rannsóknaraðilar segja að niðurstaðan bendi til þess að útrásin sem þeir fengu við hreyfinguna hafi verið eins og að taka pillu.
 
Rannsóknaraðilarnir tala um að frekari rannsóknir þurfi til að styðja niðurstöður þessarar rannsóknar, eins þurfi að rannsaka áhrif líkamsræktar á reiði til lengri tíma. Hins vegar er ljóst að líkamsrækt og hreyfing hefur góð áhrif á skap fólks og nú geta snöggreiðir drifið sig í tíma í Ropeyoga Setrinu og athugað hvort reiði þeirra í garð fólks minnkar ekki töluvert með reglulegri hreyfingu.
Ropeyoga vörurnar fást hjá Hreysti
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Lesa meira / kaupa vöru

Ropeyoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Rope Yoga ferðasettGrunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

Lesa meira / kaupa vöru
Nokkrir ókostir þess að borða skyndibita
Skyndibiti er algengur valkostur margra í hröðu samfélagi
 
Skyndibiti
Skyndibiti er samnefnari yfir rétti sem þú kaupir tilbúna og þarfnast einskis undirbúnings nema kannski hitunar áður en þeir eru borðaðir. Skyndibiti er orðinn algengur valkostur hjá einhleypu fólki, eldri borgurum og þeim sem eru ekki vanir eldamennsku eða gefa sér ekki tíma til þess að elda. Ýmist kaupir maður skyndibita í pakka í verslun og þarf í mesta lagi að hita upp þegar heim er komið, eða á skyndibitastað sem afgreiðir mann með tilbúinni máltíð á nokkrum mínútum.
 
Nokkrir ókostir skyndibita:
* Skyndibiti inniheldur oft mikið magn fitu þannig að hann veiti mikla orku og skjóta mettun neytandans.
* Fituinnihaldið í skyndibita er oft dýrafita sem er óhollari en grænmetisfita eins og t.d. ólívuolía.
* Oft inniheldur skyndibiti mikið magn salts. Unnið salt sem búið er að fara í gegnum ýmis efnaferli hefur mun verri áhrif á líkamann en óunnið sjávarsalt og er oftar notað í skyndibita vegna verðmunar á unnu og óunnu salti.
* Skyndibiti inniheldur sjaldnast nægilega mikið af grænmeti, vítamínum, bætiefnum, trefjum og öðrum efnum sem eru líkamanum nauðsynleg.
* Skyndibiti inniheldur oft ýmis aukaefni sem flokkast til gerviefna eins og t.d. rotvarnarefni, litarefni, bragðefni o.fl. Mikilvægt er því að lesa utan á pakkningar ef skyndibitinn er pakkamatur úr verslun eða spyrja sölumann á skyndibitastað um notkun gerviefna.
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 31. maí 2010
Fréttabréf 10. maí 2010
Fréttabréf 2. maí 2010
Fréttabréf 26. Apríl 2010
Fréttabréf 19. Apríl 2010
Fréttabréf 12. Apríl 2010
Fréttabréf 6. Apríl 2010
Fréttabréf 30. mars 2010
Fréttabréf 22. mars 2010
Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Að sættast eða breytast?
Getum við svelt krabbamein?
Te næst vinsælasti drykkur í heimi
Deildu fréttabréfinu!
Langtíma streita getur flýtt öldrum
Kvöldopnun á Gló
Nýtt orku- og aðhaldsnámskeið
Líkamsrækt getur dregið úr reiði
Ropeyoga vörurnar hjá Hreysti.is
Ókostir skyndibita
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!




Alkemistinn.is

Við mælum með húðvörum og snyrtivörum frá Alkemistinn.is