NewHeader09
Kæru vinir!

Eins og þið sjáið hér fyrir neðan erum við að fara af stað með fullt af nýjum og skemmtilegum námskeiðum. Komdu þér í form fyrir sumarið, með ást og umhyggju fyrir sál og líkama.

Langar þig að gerast Ropeyoga og Glómotion kennari? Við byrjum með nýtt kennaranámskeið 18. mars, það verður bæði skemmtilegt og krefjandi. Smelltu hér!

Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Glómotion framhald hefst 15. og 16. febrúar
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
Af hverju berum við okkur saman við aðra?
Samanburður er eitt öflugasta verkfæri til höfnunar sem til er

Guðni Gunnarsson"Samanburður er eitt öflugasta verkfæri til höfnunar sem til er. Allur samanburður kemur frá skorti. Það skiptir í raun og veru engu máli hvort þú ert að bera þig upp eða niður, veikleikinn eða sjálfsmatið er að leita að viðmiðun sem fæst ekki staðist, því að samanburðurinn er hvort sem er byggður á ályktun sem er alltaf fölsk.

Ef þú berð þig saman við einhvern sem er að þínu mati minni maður, þá ertu að nota viðkomandi til þess að upphefja sjálfan þig sem sýnir að þú ert þá þegar í skorti og hefur dæmt þig og ert þess vegna að leita að einhverjum, hugsanlega minni máttar, sem þú getur nýtt þér til þess að upphefja þig. Ef þú á hinn bóginn notar einhvern til þess að lítillækka þig, þá ertu að leita að staðfestingu á eymdinni á kostnað hins, sem þú notar til að lítillækka þig.

Allur samanburður eða þörf á samanburði byggist á þessum s.k. álögum sem ég hef nefnt áður þar sem við erum háð tilfinningum, oftast sársauka og allur samanburður, allar ályktanir eru yfirleitt til þess fallnar að viðhalda tilfinningavímu sársaukans og höfnunarinnar. Það má líkja honum að einhverju leyti við frestun, þegar maður frestar þá er maður að svíkja sjálfan sig og ekki að standa við fyrirætlanir sínar og þannig að draga úr mætti sínum með því að standa ekki við orð sín og lítillækka sig. Frestunin er eitt öflugasta verkfærið í höfnunarverkfærakassanum til þess að viðhalda skorti og samanburðurinn fylgir þar fast á eftir.

Allur samanburður er ávísun á minnimáttarkennd og skort. Ef þú stendur þig að samanburði, notaðu þá tækifærið til þess að opinbera vanmátt þinn, þetta getur þú gert með því að horfast í augu við og taka ábyrgð á að þú sért að nota aðra til þess að upphefja eða lítillækka sjálfan þig. Fyrirgefðu þér umbúðalaust, sýndu þér ást og kærleik, hagaðu þér eins og fagmaðurinn sem réttir sér hönd og styður sig á fætur, en ekki eins og leikmaðurinn sem sparkar í sig liggjandi.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Linda Mjöll um Glómotion
"Ég var orðin kvíðin og þreytt andlega og líkamlega"
 
Linda Mjöll - mynd með umsögnÁstæðan fyrir því að ég byrjaði í Glómotion var sú að ég var orðin mjög kvíðin og þreytt andlega og líkamlega vegna erfiðleika unglingsins míns. Ég var mög stirð á morgnana og það var farið að nefna gigt við mig og ég hafði einhvern veginn enga tilfinningu fyrir líkamanum mínum. Mig langaði ekki að fara í enn eina megrunina, mig langaði að verða sátt við sjálfa mig án þess að þurfa að pína mig á einhvern hátt.

Ég hafði farið einhvern daginn inn á Gló til að borða og mætt þar hlýju viðmóti og rólegu andrúmslofti þannig að ég ákvað að prófa Glómotion, því mig langaði ekki að öllum ólöstuðum í tryllinginn á líkamsræktarstöðvunum. Fyrir mig hefur Glómotion verið heildarlausn þar sem ég fæ slökun, líkamsþjálfun og lífsráðgjöf allt í einu. Mig langar ekki lengur að borða ruslfæði, mér þykir mikið meira til mín koma og finn lítið sem ekkert fyrir kvíða lengur.

Líkaminn minn hefur gjörbreyst og allur stirðleiki er farinn og það er einhvern veginn alveg sama í hvaða skapi ég mæti í tíma, ég fer alltaf glöð út. Vildi óska þess að fleiri myndu nýta sér þessa lausn í stað allskyns lyfja við þunglyndi, kvíða og "velferðarsjúkdómum". Ég er búin að stunda Glómotion í hálft ár og er ekkert að sjá það fyrir mér að ég hætti.

Ropeyoga og Glómotion - tilvalið fyrir golfara
Æfingarnar styrkja kviðvöðva, losa um bakið og efla snerpu
Nýtt ár 2010
Það er mikilvægt að minna þá sem spila golf af krafti að nú er rétti tíminn til þess að skrá sig á námskeið og undirbúa líkamann fyrir leiki sumarsins. Golf er frábær íþrótt, hún sameinar bæði útivist, hreyfingu og krefjandi leik fyrir hug og líkama.

Glómotion og Ropeyoga eru æfingakerfi sem halda mætti að væru sérsniðin fyrir golfið. Það vill hins vegar til að þessi æfingakerfi eru heildarmiðuð, þau ganga út á að efla þig að öllu leyti, ekki aðeins líkamlega heldur tilfinningalega og andlega. Golf er leikfimi huga og snerpu, komdu þér í gott form fyrir sumarið, skráðu þig á námskeið strax í dag.

Nánari upplýsingar veita kennarar sem taka vel á móti þér í Ropeyogasetrinu.
Nýtt námskeið eingöngu fyrir karlmenn
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol

Golf sveifla
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.

Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.

Það er auðvelt að skrá sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is


Skráðu þig á karlanámskeið strax í dag!
Smelltu hér

Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Komdu með barnið þitt í yoga og komdu þér strax í form

Guðni GunnarssonSérstaklega ætlað þeim konum sem hafa eignast börn, hvort sem er strax eftir fæðingu eða nokkrum vikum eða mánuðum seinna. Í Ropeyoga geta konur byrjað strax viku eftir barnsburð og hvetjum við mæður til þess að byrja sem fyrst. Vissulega fer það eftir heilsu eða getu hverrar og einnar. Mæður eru hvattar til þess að hafa með sér barnið. Á fyrstu vikunum eftir barnsburð fer hormónaframleiðsla í gang sem örvar samdrátt og virkni legs og kviðarholsvöðva. Þær konur sem byrja fljótt að æfa eftir barnsburð ná því skjótari árangri í endurhæfingu grindarbotns- og kviðarholsvöðva heldur en þær sem fara af stað síðar. Á þessum námskeiðum leggjum við sérstaka áherslu á kviðarhols- og grindarbotnsvöðva ásamt rass- og lærvöðvum. Einnig leggjum við áherslu á losun streitu og þreytu og andlega uppbyggingu.

Kennari er Ásta M. Agnarsdóttir ropeyogakennari, yogakennari og nuddari. Skráðu þig með því að smella hér.
Heilsupýramídi Dr. Weil
Borðaðu dökkt súkkulaði reglulega, asískir sveppir efla þig

Fæðupýramídi Dr. WeilHeilsupýramídi Dr. Weil miðar að því að efla mótvægi líkamans gegn sýkingum og sjúkdómum. Þess vegna kalllast pýramídinn anti-inflammatory eða gegn sýkingum/sjúkdómum. Í þessum fæðupýramída er ýmislegt áhugavert sem Dr. Weil mælir með

Dr. Weil mælir með mataræði sem byggir á mörgum þáttum, þ.á.m. er dökkt súkkulaði og þurrkaðir ávextir efstir í fæðupýramídanum hans. Hann mælir með einu rauðvínsglasi á dag fyrir þá sem drekka áfengi, bætiefni og vítamín eru nauðsynleg að hans sögn og hvítt eða grænt te er ómissandi í daglegri neyslu.

Dr. Weil mælir með elduðum asískum sveppum til daglegrar neyslu, þeir efla ónæmiskerfið en læknirinn mælir með því að sveppirnir séu alltaf eldaðir. Þá mælir hann einnig með því að fólk borði nokkrum sinnum á dag fæðu sem inniheldur holla fitu, t.d. hnetur, fræ, ólívuolíu eða avokadó.

Skoðaðu fæðupýramída Dr. Weil og lestu þér til um hverju þessi heimsfrægi læknir mælir með í daglegri neyslu. Dr. weil er þekktur fyrir að kenna fólki heilbrigðan lífsstíl sem gengur út á að borða hollan mat, draga úr stressi, hreyfa sig reglulega og hugsa vel um sál og líkama.

Lestu meira hér
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér
Kennararéttindi í Glómotion og Ropeyoga 2010

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Sá fyrsti er fjórir dagar frá 18. mars til 21. mars. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Annar hluti er 16. apríl til 19. apríl.

Þriðji hlutinn er þrír dagar frá 14. maí til 16. maí. Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Solla í samstarf við Gló - frábærar viðtökur
Nýjar áherslur - ljúffengir réttir - breyttur afgreiðslutími

Solla Eiríks á GlóHvaða breytingar eiga sér stað á Gló með aðkomu þinni?

"Við ætlum að vera með 50-75% hráfæði til að byrja með, við höldum áfram að vera með eldaða grænmetisrétti og jafnvel einhverja kjöt- og fiskrétti, en áherslan verður á hráfæði og superfoods (ofurfæðu). Við finnum að það er það sem fólk kallar eftir, það er enginn veitingastaður að sinna eftirspurninni eftir hráfæðimáltíðum með ofurfæðu, þannig að við ákváðum að slá til. Þú getur komið eftir æfingu á morgnana kl. 7:30 og fengið þér grænan djús og ofurhollan morgunmat, við verðum með eldaða grauta, lífræna jógúrt með ofurmúslí og alls konar hristinga. Þetta er sem sagt kjarninn í breytingunum, við munum minnka kjöt og fisk og færa okkur meira út í hráfæði og ofurfæðu.

Við verðum með námskeið og fyrirlestra ásamt því að fara með veitingastaðinn alla leið. Við verðum með safnhaug og munum búa til okkar eigin mold, við munum rækta ýmislegt til þess að nota í matinn, við munum flokka allt sem við hendum og tökum þetta alla leið.

Námskeið um ofurfæðu (superfoods) fer fram 19. og 20. janúar og svo verðum við með hráfæðinámskeið 26. og 27. janúar. Hægt er að skrá sig á himnesk.is.

Opið verður á Gló frá 7:30-9:00 og 11:00-17:00 til að byrja með."

www.glo.is
Himnesk uppskrift frá Sollu
Ljúffengur hummus - meira á himnesk.is

Konfektmolar

Hummus
1 dós kjúklingabaunir*
1 hvítlauksrif
½ búnt steinselja
2 msk tahini*
3-4 msk sítrónusafi
3-4 msk appelsínusafi
1 msk tamarisósa*
¼ tsk cuminduft
1 dl grilluð paprika frá LaSelva

Sigtið og skolið kjúklingabaunirnar og setjið í matvinnsluvél ásamt hvítlauk og steinselju, blandið í smá stund. Bætið restinni af uppskriftinni útí og klárið að mauka.

Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Heimildarmyndin Future of Hope í vinnslu
Styrktu gerð myndarinnar með frjálsu framlagi

Heimildarmyndin Future of Hope
Leikstjórinn Henry Bateman og framleiðandinn Heather Millard rifu sig upp og fluttu frá Bretlandi til Íslands í júní 2009 til þess að búa til heimildarmynd um jákvæða þróun vistvænna viðskiptatækifæra, lífsstíl og hugmyndir sem komu út úr hruninu 2008.

Bateman og Millard hafa ferðast 8 hringi í kringum landið og á ferðum sínum kynnst mögnuðum einstaklingum sem þau fjalla um í heimildarmyndinni.

"Hope is not a dream, but a way of making dreams a reality"

Myndin fjallar um jákvæð og hvetjandi tækifæri í kjölfar hrunsins. Framleiðendurnir vilja bæta ímynd Íslands á heimsvísu og er heimildarmyndin liður í því. Til þess að geta klárað myndina þurfa þau stuðning. Á eftirfarandi vefsíðu er hægt að styrkja þau með frjálsum framlögum en þau þurfa 10.000 dollara, u.þ.b. 1.250.000 kr. til þess að standa straum af kostnaði við að klára framleiðslu myndarinnar.

Smelltu hér til þess að horfa á brot úr myndinni.
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Viðtal við Sollu Eiríks um hollustu og heilbrigði
Sjáið viðtalið við Sollu á Youtube

Solla Eiríks á GlóStutt myndband þar sem Solla segir frá því þegar hún þurfti að taka ákvörðun um að tileinka sér lífræna næringu, hollustu og heilbrigði.

Smelltu hér til þess að horfa!
 
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Guðni talar um álög
Ingrid Kuhlman um Glómotion
Nýtt námskeið fyrir karlmenn
Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Hvernig sveppir hjálpa jörðinni
Ferðasettið í golfferðina!
Kennaranámskeið 2010
Solla Eiríks í samstarf við Gló
Himnesk uppskrift frá Sollu
Kynlíf bætir heilsu karla
Vinnustöð - stundaðu Rope Yoga heima!
Viðtal við Sollu Eiríks á Youtube
Eldri fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!