NewHeader09
Kæru vinir!

Langar þig að gerast Ropeyoga og Glómotion kennari? Við byrjum með nýtt kennaranámskeið á vormánuðum, það verður bæði skemmtilegt og krefjandi.

Ný námskeið eru að fara af stað hjá okkur, karlayoga og yoga fyrir mæður eftir barnsburð. Bæði námskeiðin eru sniðin að þörfum hópanna og hvetjum við alla karla og mæður sem hafa átt barn á undanförnum vikum að drífa sig af stað!

Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Glómotion framhald hefst 15. og 16. febrúar
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
Guðni talar um hvers vegna við erum í álögum
Ef þú ert froskurinn, hvar er þá prinsessan sem frelsar þig?

Guðni Gunnarsson"Við erum í álögum vegna þess að við trúum því að það sem við erum að upplifa sé veruleiki. Það sem er merkilegt við tilveruna er að það er bara til veruleiki, sá veruleiki er augnablikið. Það sem ég kalla álög kallar annað fólk raunveruleika, það er hægt að slíta orðið í sundur, raun veruleika. Orðið raun þýðir erfiðleikar. Álögin eru hylling sem við höfum búið okkur til. Fólk upplifir þennan svokallaða raunveruleika með mismunandi hætti. Það sem einn upplifir sem vandamál upplifir annar sem tækifæri og blessun. Þessi viðhorf skipta sköpum. Hvernig lærðum við þessi viðhorf og hvernig við viðhöldum þeim skiptir miklu máli. Um leið og við drögum ályktanir erum við að viðhalda okkar eigin stýrikerfi sem er okkar s.k. raunveruleiki. Allar þessar ályktanir byggjast svo á þessari mynd sem við höfum dregið upp af tilverunni. Áðan nefndum við hvaðan þau koma, sumir segja að okkur hafi verið kennt það, en ég segi að við höfum lært það. T.d. eru 30 nemendur í einni skólastofu, málflutningur kennarans er á einn veg en það eru 30 mismunandi upplifanir. Hvert og eitt okkar raðar upplýsingunum í sinn eigin farveg eða hlustun sem hentar þeirra ímynd af þessum s.k. raunveruleika.

Ályktanir eru til þess fallnar að styrkja og viðhalda þá ímynd sem er okkar viðhorf til tilverunnar, gott eða slæmt, svart eða hvítt og það verður okkar upplifun, hvort sem það er vansæld eða velsæld. Við erum undir álögum okkar sjálfra. Það sem við gerum á meðan við erum ekki í vitund er að hegða okkur sífellt í þágu þessara viðhorfa. Hvort sem við þrætum fyrir vanmætti okkar eða styrk þurfum við að færa sönnur fyrir okkar málflutningi. Þegar maður er undir álögum eða er gísl viðhorfa, þá verður maður stöðugt að vera að leggja á sig til þess að viðhalda þeirri ímynd. Þetta gerir maður m.a. með því að hafna sér. Það flækist oft fyrir fólki að skilja eða skilgreina hvað höfnun er. Höfnun er skömm, feimni, óöryggi og viðnám gagnvart augnablikinu. Öflugasta leiðin til þess að viðhalda álögum er alltaf skömmin.

Ef við viljum skoða í einlægni rót stýrikerfis okkar þá er kjarninn í langflestum tilfellum skömmin. Margir álíta að þetta sé frekar neikvætt viðhorf til mannlegrar tilvistar, en það er t.d. viðhorf sem ég deili ekki vegna þess að ég sé þetta bara sem gríðarlega jákvætt tækifæri til þess að elska og opinbera skömmina og leysa mig úr viðjum þessara álaga. Það er einfaldlega gert með því að elska og vera í alúð og umhyggju í stað þess að hafna, yfirgefa og skamma. Ást er lausnin. Viljir þú losna úr viðjum álaganna, stattu þá fyrir framan spegil, ímyndaðu þér að þú sért froskur, kysstu þig í gamni á munninn með ást hjartans og horfðu á þína prinsessu eða prins birtast!

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Ingrid Kuhlman um Glómotion
"Líkaminn tekst alltaf á við eitthvað nýtt"
 
Ingrid Kuhlman umsögnGlómotion Flex er kraftmikil og fjölbreytt þjálfun sem skapar ótrúlega vellíðan. M.a. er farið í Rope Yoga æfingar í böndunum, stöðu- og flæðisæfingar, mótstöðuæfingar í tækjum auk þess sem lögð er áherslu á teygjur, slökun og öndun. Næringin er líka hluti af prógramminu. Styrkleiki Glómotion er að æfingarnar eru allar gerðar mjög hægt, með fullri vitund auk þess sem fjölbreytnin er mikil þannig að líkaminn tekst alltaf á við eitthvað nýtt. Hópurinn er lítill, sem þýðir að iðkendur fá persónubundna ráðgjöf og góðar leiðbeiningar.

Eftir að hafa stundað Glómotion í fimm vikur finn ég fyrir auknum styrk kviðvöðvanna, orkan er meiri og ég er meira meðvituð um líkama, sál, tilfinningar og huga. Mér finnst ég hafa styrkst mikið, bæði andlega og líkamlega og öðlast aukinn liðleika, samhæfingu og vellíðan. Ég mæli eindregið með Glómotion fyrir þá sem vilja taka sig í gegn og breyta lífi sínu. Glómotion er algjör snilld.
 
Ingrid Kuhlman
Framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar ehf.
Nýtt námskeið eingöngu fyrir karlmenn
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol

Golf sveifla
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.

Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.

Það er auðvelt að skrá sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is


Skráðu þig á karlanámskeið strax í dag!
Smelltu hér

Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Komdu með barnið þitt í yoga og komdu þér strax í form

Guðni GunnarssonSérstaklega ætlað þeim konum sem hafa eignast börn, hvort sem er strax eftir fæðingu eða nokkrum vikum eða mánuðum seinna. Í Ropeyoga geta konur byrjað strax viku eftir barnsburð og hvetjum við mæður til þess að byrja sem fyrst. Vissulega fer það eftir heilsu eða getu hverrar og einnar. Mæður eru hvattar til þess að hafa með sér barnið. Á fyrstu vikunum eftir barnsburð fer hormónaframleiðsla í gang sem örvar samdrátt og virkni legs og kviðarholsvöðva. Þær konur sem byrja fljótt að æfa eftir barnsburð ná því skjótari árangri í endurhæfingu grindarbotns- og kviðarholsvöðva heldur en þær sem fara af stað síðar. Á þessum námskeiðum leggjum við sérstaka áherslu á kviðarhols- og grindarbotnsvöðva ásamt rass- og lærvöðvum. Einnig leggjum við áherslu á losun streitu og þreytu og andlega uppbyggingu.

Kennari er Ásta M. Agnarsdóttir ropeyogakennari, yogakennari og nuddari. Skráðu þig með því að smella hér.
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri þér
Kennararéttindi í Glómotion og Ropeyoga 2010

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Sá fyrsti er fjórir dagar frá 18. mars til 21. mars. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Annar hluti er 16. apríl til 19. apríl.

Þriðji hlutinn er þrír dagar frá 14. maí til 16. maí. Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Solla í samstarf við Gló - frábærar viðtökur
Nýjar áherslur - ljúffengir réttir - breyttur afgreiðslutími

Solla Eiríks á GlóHvaða breytingar eiga sér stað á Gló með aðkomu þinni?

"Við ætlum að vera með 50-75% hráfæði til að byrja með, við höldum áfram að vera með eldaða grænmetisrétti og jafnvel einhverja kjöt- og fiskrétti, en áherslan verður á hráfæði og superfoods (ofurfæðu). Við finnum að það er það sem fólk kallar eftir, það er enginn veitingastaður að sinna eftirspurninni eftir hráfæðimáltíðum með ofurfæðu, þannig að við ákváðum að slá til. Þú getur komið eftir æfingu á morgnana kl. 7:30 og fengið þér grænan djús og ofurhollan morgunmat, við verðum með eldaða grauta, lífræna jógúrt með ofurmúslí og alls konar hristinga. Þetta er sem sagt kjarninn í breytingunum, við munum minnka kjöt og fisk og færa okkur meira út í hráfæði og ofurfæðu.

Við verðum með námskeið og fyrirlestra ásamt því að fara með veitingastaðinn alla leið. Við verðum með safnhaug og munum búa til okkar eigin mold, við munum rækta ýmislegt til þess að nota í matinn, við munum flokka allt sem við hendum og tökum þetta alla leið.

Námskeið um ofurfæðu (superfoods) fer fram 19. og 20. janúar og svo verðum við með hráfæðinámskeið 26. og 27. janúar. Hægt er að skrá sig á himnesk.is.

Opið verður á Gló frá 7:30-9:00 og 11:00-17:00 til að byrja með."

www.glo.is
Himnesk uppskrift frá Sollu
Sólblóma- og berjasjeik - meira á himnesk.is

Konfektmolar

2 ½ dl ananassafi
safinn úr ½ limónu
50 g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2-4 klst
2 dl ferskir eða frosnir mangóbitar
2 dl frosin ber, t.d. bláber, hindber eða jarðaber
smá biti ferskur engifer ef vill

Setjið vökvann í blandarann ásamt kasjúhnetum og blandið vel. Bætið frosnum mangó og berjum útí (og engiferbita ef vill) og blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.

Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Viðtal við Sollu Eiríks um hollustu og heilbrigði
Sjáið viðtalið við Sollu á Youtube

Solla Eiríks á GlóStutt myndband þar sem Solla segir frá því þegar hún þurfti að taka ákvörðun um að tileinka sér lífræna næringu, hollustu og heilbrigði.

Smelltu hér til þess að horfa!
 
Paul Stamets um sveppi og internetið
Áhugavert myndband um hvernig sveppir geta hjálpað jörðinni

Paul Stamets um sveppiPaul Stamets hefur skrifað bækur sem fjalla allar um sveppi að einhverju leyti. Nýjasta bókin hans Mycelium á hlaupum: Hvernig sveppir geta bjargað heiminum, hefur verið talin varpa ljósi á hvað það er sem við getum gert til þess að bjarga jörðinni frá mannkyninu sem tekur og tekur en gefur lítið til baka. Stamets hefur skrifað og fengið birt fjölda greina um sveppi og áhrif þeirra á umhverfið.

Þetta myndband er mjög áhugavert, hægt er að sjá það með texta. Smelltu hér til þess að horfa.
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Reglulegt kynlíf bætir heilsu karla
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar í Bandaríkjunum

Brosandi maðurKarlar sem stunda kynlíf a.m.k. tvisvar sinnum í viku geta minnkað líkurnar á hjartasjúkdómum um nánast helming samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.

Þar kemur fram að menn sem stunda reglulegt kynlíf minnka hættuna um allt að 45% á því að fá lífshættulega hjartasjúkdóma. Rannsóknin var framkvæmd á 1000 körlum og tók ekki til greina áhrif á heilsu kvenna.

Aðilarnir sem framkvæmdu rannsóknina hafa farið fram á það að læknar í Bandaríkjunum kanni tíðni kynlífs hjá körlum þegar þeir koma í reglulegt eftirlit til þess að kanna m.a. hættu á hjartasjúkdómum.

Heimild: dr. Mercola
 
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Rope Yoga SetridFréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Guðni talar um álög
Ingrid Kuhlman um Glómotion
Nýtt námskeið fyrir karlmenn
Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Ferðasettið í golfferðina!
Kennaranámskeið 2010
Solla Eiríks í samstarf við Gló
Himnesk uppskrift frá Sollu
Viðtal við Sollu Eiríks á Youtube
Hvernig sveppir hjálpa jörðinni
Vinnustöð - stundaðu Rope Yoga heima!
Kynlíf bætir heilsu karla
Eldri fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!