Kæru vinir!
Ný námskeið eru að fara af stað hjá okkur, karlayoga og yoga fyrir mæður eftir barnsburð. Bæði námskeiðin eru sniðin að þörfum hópanna og hvetjum við alla karla og mæður sem hafa átt barn á undanförnum vikum að drífa sig af stað!
Rétti tíminn er núna!
Með kærleikskveðju og þakklæti, Guðni Gunnarsson Rope Yoga Setrið
|
|
Glómotion framhald hefst 15. og 16. febrúar
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
|
|
Golf er leikur hugans
Leikurinn vinnst á vitund og athygli
 "Vissulega er líkaminn verkfæri eins og kylfurnar í golfi. Það skiptir því mjög miklu máli að vera með líkama sem er í flæði og sveiflu. Allir í golfi vita að staðan, mýkt í mjöðmum, öxlum, hvernig þú beitir höfði og hvernig þú slærð er mjög mikið atriði, en jafnframt að golf fer fram í huganum. Það er talað um það í golfi að þú tapar aldrei fyrir andstæðingnum, heldur fyrir sjálfum þér. Ef golfarar eru með sambærilega forgjöf þá er það sá sem heldur athygli sinni óskertri sem fer með sigur af hólmi, sá sem er í mestu jafnvægi. Til þess að lýsa þessu í sem fæstum orðum, þá segi ég við golfara og aðra sem eru í leik lífsins að höfuðmismunur á því sem við köllum tap og sigur er framkoma atvinnumannsins og hins vegar framkoma leikmannsins. Því er þannig háttað að þegar leikmaðurinn gerir mistök, þá sparkar hann í sjálfan sig liggjandi, þ.e.a.s. andlega. Ef atvinnumanninum verða á mistök, þá styður hann sig á fætur með vinsemd og virðingu og jafnvel örlitlu brosi. Þetta er mesti munurinn. Hvað varðar líkamann, þá er það sveigjanleikinn og mýktin í líkamanum sem gerir kylfingnum kleift að ná sem mestu afli í höggið. Bæði hefur það með það að gera hversu mikið þú getur undið líkamann og eins hve vel þú getur sleppt líkamanum í höggið. Það gefur augaleið að líkami sem er stirður og stífur býr ekki yfir sama slagkrafti og líkami sem er mjúkur og sveigjanlegur. Golf vinnst ekki á steyttum hnefa heldur á vitund og athygli, vissulega á tækni og líkamlegri getu en fyrst og fremst á góðu andlegu jafnvægi. Talandi um steyttan hnefa, þá eru stífir vöðvar, þrátt fyrir að þeir séu stórir og sterkir, úthaldsminni sem gerir það að verkum að þreyta og pirringur gerir fyrr vart við sig. Afbragðs golfmaður þarf að hafa gott líkamlegt atgervi, sveigjanleika og mýkt og umfram allt andlegt jafnvægi til að geta viðhaldið athygli og sýn. Ropeyoga býður upp á þjálfun á öllum þeim þáttum sem hér hafa verið taldir upp. Ropeyoga/glómotion býður upp á kviðstyrk, sveigjanleika og styrk, úthald, athygli og vitund og umfram allt heimspeki velsældar sem gerir manni kleift að leyfa sér að keppa til vinnings. Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!" Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar |
|
Nýtt námskeið eingöngu fyrir karlmenn
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.
Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.
Það er auðvelt að skrá
sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is
|
|
Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Komdu með barnið þitt í yoga og komdu þér strax í form
 Sérstaklega ætlað þeim konum sem hafa eignast börn, hvort sem er strax eftir fæðingu eða nokkrum vikum eða mánuðum seinna. Í Ropeyoga geta konur byrjað strax viku eftir barnsburð og hvetjum við mæður til þess að byrja sem fyrst. Vissulega fer það eftir heilsu eða getu hverrar og einnar. Mæður eru hvattar til þess að hafa með sér barnið. Á fyrstu vikunum eftir barnsburð fer hormónaframleiðsla í gang sem örvar samdrátt og virkni legs og kviðarholsvöðva. Þær konur sem byrja fljótt að æfa eftir barnsburð ná því skjótari árangri í endurhæfingu grindarbotns- og kviðarholsvöðva heldur en þær sem fara af stað síðar. Á þessum námskeiðum leggjum við sérstaka áherslu á kviðarhols- og grindarbotnsvöðva ásamt rass- og lærvöðvum. Einnig leggjum við áherslu á losun streitu og þreytu og andlega uppbyggingu.
Kennari er Ásta M. Agnarsdóttir ropeyogakennari, yogakennari og nuddari. Skráðu þig með því að smella hér. |
|
Unga konan með súkkulaðibitakökurnar
Hvernig dettur fólki í hug að borða kökur annarra manna?
 Ung kona var á flugvellinum og beið eftir fluginu sínu. Þar sem nokkrar klukkustundir voru þangað til vélin átti að fara, ákvað hún að kaupa sér bók og poka af nýbökuðum súkkulaðibitakökum til þess að gæða sér á yfir lestrinum. Hún settist því næst niður í biðsalnum til þess að njóta bókarinnar og góðgætisins. Í næsta sæti við hliðina á litla borðinu þar sem pokinn lá með súkkulaðibitakökunum sat maður með opið blað og var að lesa. Um leið og konan var búin að teygja sig í fyrstu kökuna, þá smeygði maðurinn höndinni ofan í pokann og fékk sér eina köku. Henni fannst þetta nú frekar skrýtið, ekki alveg það sem fólk gerir vanalega, að vaða í kökupoka annarra manna... hún hugsaði með sér að láta hann heyra það ef hann héldi áfram að borða frá henni kökurnar. Svo fékk hún sér aðra köku og skömmu síðar tók hann aðra, hún skildi ekkert í þessu, hvað var maðurinn að pæla?? Hún þorði samt ekki að hvæsa á hann, ákvað bara að leiða þetta hjá sér en hugsaði honum þegjandi þörfina. Svona gekk þetta þangað til aðeins ein kaka var eftir. Hún hugsaði með sér, maðurinn fer nú ekki að taka síðustu kökuna, getur það verið? Hún var ekki búin að sleppa hugsuninni þegar maðurinn fór ofan í pokann, tók síðustu kökuna, skipti henni í tvennt og borðaði helminginn af kökunni. Þetta var nóg til þess að unga konan fékk nóg, hún tók bókina sína og dótið sitt og rauk út í hlið til þess að komast út í vél. Þegar hún var komin um borð, búin að koma sér þægilega fyrir í sætinu sínu, tók hún upp handtöskuna sína til þess að ganga frá vegabréfinu og ferðaskjölunum. Þegar hún opnaði töskuna blasti við henni ósnertur og óopnaður poki með súkkulaðibitakökum. Jeminn eini, hún vissi ekki hvert hún ætlaði þegar hún áttaði sig á því að kökurnar hennar voru í töskunni og hún hafði verið að borða kökur mannsins sem sat næst henni í biðsal flugvallarins. Maðurinn hafði deilt kökunum með henni án þess að vera pirraður eða reiður. Hún hafði hins vegar verið reið yfir því að hann væri að borða frá henni. Mundu að það er ekki hægt að taka til baka steina sem maður kastar, orð sem maður hreytir í aðra eða stund sem líður fljótt. |
|
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga ferðasett
Verð 24.900 kr.
Grunnbúnaður
Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og
einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er
orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.
KAUPA VÖRU |
|
Solla í samstarf við Gló - frábærar viðtökur
Nýjar áherslur - ljúffengir réttir - breyttur afgreiðslutími
Hvaða breytingar eiga sér stað á Gló með aðkomu þinni?"Við ætlum að vera með 50-75% hráfæði til að byrja með, við höldum áfram að vera með eldaða grænmetisrétti og jafnvel einhverja kjöt- og fiskrétti, en áherslan verður á hráfæði og superfoods (ofurfæðu). Við finnum að það er það sem fólk kallar eftir, það er enginn veitingastaður að sinna eftirspurninni eftir hráfæðimáltíðum með ofurfæðu, þannig að við ákváðum að slá til. Þú getur komið eftir æfingu á morgnana kl. 7:30 og fengið þér grænan djús og ofurhollan morgunmat, við verðum með eldaða grauta, lífræna jógúrt með ofurmúslí og alls konar hristinga. Þetta er sem sagt kjarninn í breytingunum, við munum minnka kjöt og fisk og færa okkur meira út í hráfæði og ofurfæðu. Við verðum með námskeið og fyrirlestra ásamt því að fara með veitingastaðinn alla leið. Við verðum með safnhaug og munum búa til okkar eigin mold, við munum rækta ýmislegt til þess að nota í matinn, við munum flokka allt sem við hendum og tökum þetta alla leið. Námskeið um ofurfæðu (superfoods) fer fram 19. og 20. janúar og svo verðum við með hráfæðinámskeið 26. og 27. janúar. Hægt er að skrá sig á himnesk.is. Opið verður á Gló frá 7:30-9:00 og 11:00-17:00 til að byrja með." www.glo.is
|
|
Himnesk uppskrift frá Sollu
Grænmetislasagne - meira á himnesk.is

2 msk. kaldpressuð kókosolía eða önnur góð olía 2-3 hvítlauksrif,
pressuð eða smátt söxuð 1 ferskt chilialdin, skorið í tvennt,
fræhreinsað og skorið í litla bita 2-3 gulrætur, afhýddar nema þær
séu lífrænar og skornar í þunna strimla 1 stór laukur, afhýddur og
skorinn í þunna strimla 1-2 stönglar sellerý, skornir í þunnar
sneiðar 1 rauð paprika, skorin í tvennt, fræhreinsuð og síðan skorin í
1 x 1cm bita 2 kúrbítar, skornir í fernt eftir endilöngu og síðan í 1
cm bita 2 tsk. oregano 2 tsk. marjoram 2 tsk. basil smá
sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar 3-4 msk. tómatmauk 2 dósir
niðursoðnir tómatar, um 400 ml hvor dós 2 dósir kókosmjólk, um 400 ml
hvor dós 200 g rifinn sojaostur eða venjulegur ostur spelt
lasagnaplötur
Hitið olíu í potti eða á stórri og víðri pönnu. Setjið
niðurskorið grænmeti á pönnuna og látið mýkjast í um 5 mín. Kryddið,
bætið tómatmauki og niðursoðnum maukuðum tómötum útí og sjóðið í um
15-20 mín. Hitið ofninn í 200°C og blandið saman sojaosti og kókosmjólk.
Takið fram eldfast form, smyrjið það og fyllið í þessari röð: 1 lag
fylling, 1 lag lasagneplötur, 1 lag af kókosmjólk og sojaosti.
Endurtakið tvisvar sinnum og setjið síðan inn í ofninn og bakið við
200°C í 30 mín. Berið fram t.d með grænmetissalati og pestó.
Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu. |
|
Hvaða pH gildi hefur maturinn þinn?
Mikilvægt að taka inn bætiefni sem jafna pH gildi líkamans
 Við höfum áður talað um mikilvægi þess að gæta sýrustigsins sem er í matnum okkar. Í lok síðasta árs var haldinn fyrirlestur í Ropeyoga Setrinu um sýrustig matar og áhrif þess á líkamann, en þar kom m.a. fram að súr matur og drykkur nærir ekki líkamann, heldur lítur líkaminn á súra fæðu sem úrgang. Basísk fæða er líkamanum eðlileg og erum við þá að tala um lifandi vatn og grænmeti sem helsta kostinn. Hægt er að kaupa bætiefni sem jafnar pH gildi líkamans, því hærra pH gildi, því basískari er fæðan. Hægt er að sjá lista yfir basískan mat eftir flokkum á energiesforlife.com
|
|
Viðtal við Sollu Eiríks um hollustu og heilbrigði
Sjáið viðtalið við Sollu á Youtube
 Stutt myndband þar sem Solla segir frá því þegar hún þurfti að taka ákvörðun um að tileinka sér lífræna næringu, hollustu og heilbrigði. Smelltu hér til þess að horfa!
|
|
Námskeið í ræktun og umhirðu matjurta
Nánar á rit.is þar sem þú finnur allt um sumarhús og garðrækt
Merkurlaut 25 ehf er útgefandi tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn, og bókaflokksins Við ræktum. Þau standa nú fyrir námskeiðinu Matjurtarækt. Á námskeiðinu er fjallað um sáningu, ræktun og umönnun í ræktun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, jarðvegi og áburðargjöf, sýndar mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa. Saga matjurtaræktar á Íslandi reifuð, skýrt frá uppruna tegundanna sem teknar eru til umfjöllunar, eðliseinkennum um 40 tegunda og yrkja ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta. Farið er yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá matjurtir og um notkun eiturefna og lífrænna lausna gegn vágestum og sjúkdómum og lýst nokkrum aðferðum við geymslu og matreiðslu.
Kennarar eru garðyrkjufræðingarnir Auður I Ottesen og Jón Guðmundsson. Þau búa yfir margra ára reynslu í ræktun matjurta og hafa fylgst vel með nýjungum og möguleikum sem grænmetisrækt býður upp á hér á landi. Þau eru bæði garðyrkjufræðingar. Auður og Jón eru höfundar bókarinnar Matjurtir sem er fjórða bókin í ritröðinni Við ræktum, útgefin 2008. Í bókinni er fjallað um 40 tegundir matjurta sem ræktaðar eru utanhúss hér á landi, bæði vel kunnar grænmetistegundir og lítt reyndar sem spennandi er að spreyta sig á. Eins um alla þá þætti sem snúa að matjurtarækt við Íslenskar aðstæður auk sögulegs ágrips, uppskriftir og ótal góð ráð sem gagnast þeim sem bæði eru að byrja í matjurtarækt og þá sem eru lengra komnir.
Smelltu hér til þess að opna rit.is
|
|
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.Verð 69.800 kr.Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg,
knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær
fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa
til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Á þann hátt þjálfar
tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar
nærri.
Hönnunin miðar að því að hvetja notandann
og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við
æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum
við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar
teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið
viðbragð í stað ósjálfráðra.
Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti
og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum. Fólk vill í síauknum mæli
geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði
á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í
flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.
Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum
í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því
áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og
ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni
orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar
umtalsverðum árangri á skömmum tíma. Árangurinn skilar sér helst í
auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi
skapast af reglulegri þjálfun.
KAUPA VÖRU
|
|
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi
Það
er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma
og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur
upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að
kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn
vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika
leiðtogans með heildrænni lífssýn.
Við
leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og
teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í
hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa
samfélagi okkar allra.
Það sem
við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum.
Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við
fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika
liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.
Lifandi
Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og
styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni
og endurvinnslu.
|
| Rope Yoga Setrið
Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík, Rope Yoga Setrið 535-3800 | |
| Skráðu þig á námskeið! |
Smelltu hér!
|
|


Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks
Sjá meira á glo.is |
| |
|