Eftir sólríka helgi höldum við áfram að hugsa um sál og líkama!
Vertu með í sumar, komdu í jóga og vertu í formi!
Rétti tíminn er núna! Skráðu þig!
Með kærleikskveðju og þakklæti, Guðni Gunnarsson Rope Yoga Setrið
|
|
Ný námskeið hefjast 26. og 31. maí
Við leggjum kapp á góða þjónustu og notalega aðstöðu. Skráðu þig núna! |
|
Guðni talar um "að frelsast" frá blekkingum
"  Einlægni er frelsi. Prófessor að nafni Randy Pausch hélt fyrirlestur sem hefur verið nefndur síðasti fyrirlesturinn. Þessi maður var með krabbamein sem var að eyðileggja briskirtilinn í honum. Hann var við dauðans dyr og sagði nemendum sínum að ef hann gæti ráðlagt þeim eitthvað þá væri það að segja alltaf sannleikann, vera alltaf einlægur. Svo bætti hann við að ef það væri eitthvað fleira sem hann gæti sagt, segja alltaf sannleikann, hvað sem á dyndi (no matter what).
Ástæða þess að ég er að nefna þetta er sú að þegar maður hefur skilið að tilveran byggist á orsök og afleiðingu, þá hefur maður skilið það að öll orka, þ.m.t. hugsanir, orð og gjörðir hafa afleiðingar. Flestir hafa heyrt orðatiltækið "þú uppskerð eins og þú sáir", en fæstir hafa gert sér fulla grein fyrir því hvað þetta þýðir í raun og veru. Þegar maður horfir yfir farinn veg og er tilbúinn til þess að vera einlægur, þá fer maður að skilja að maður er þar sem að maður er af því að maður fór þangað sjálfur. Gjörðir manns, atferli og hugsanir hafa afleiðingar og það er merking orðatiltækisins.
Á einhverjum tímapunkti gefst manni tækifæri til að vakna til vitundar um það að maður getur beint athygli sinni og orku í annan farveg og þá verða afleiðingarnar annars konar. Forsendan fyrir þessum breytingum er sú að maður taki ábyrgð og mæti í augnablikið til þess að endurheimta mátt sinn og megin og þá er einlægni stærsta tækifærið sem við manni blasir. Þegar maður er tilbúinn til þess að segja satt og ekkert nema satt, þá frelsast maður frá þeim blekkingum eða álögum sem maður hefur viðhaldið til þess að réttlæta flótta og fjarveru. Á því augnabliki sem maður segir sannleikann og verður einlægur, þá hefst nýtt líf. Það er það sem við köllum að frelsast.
Tökum fulla ábyrgð, segjum allan sannleikann og verum umfram allt einlæg."
|
|
Tor Einar heldur fyrirlestur um basískt fæði
Kenningar Tors byggja á vísindalegum rannsóknum á blóði

Tor Einar Olaisen microscopist frá Blodanalyse Norden kemur í óvænta heimsókn til Íslands og heldur fyrirlestur þann 29. maí á veitingastaðnum Gló. Ástríða Tors Einars er hollusta og frelsi fyrir alla. Menntun er leiðin en ekki lyfjagjöf.
Sérsvið Tors Einars er blóð og hvernig líkaminn bregst við mismunandi fæðu og drykk. Hann þekkir hvað er best að borða og af hverju á að borða það. Ef þú vilt vita hvernig á að koma í veg fyrir veikindi og/eða snúa veikindum til bata, þá er þetta málið fyrir þig.
Staður: Veitingastaðurinn Gló, Engjateig 19, 105 Reykjavík Tími: Laugardagurinn 29. maí kl. 14:00 - 16:00 Verð: 2.500 kr.
|
|
Orku- og aðhaldsnámskeið að byrja
6 vikna námskeið sem veitir þér stuðning til þess að breyta
 "Þetta námskeið gengur út á að leysa úr læðingi orkuna sem þú býrð nú þegar yfir. Við kennum fólki að búa til orku og viðhalda henni með því að velja orkuríka fæðu, létta á okkur og hreinsa líkamann andlega, líkamlega og tilfinningalega. Við leyfum okkur ekki að vera upptendruð og lifa lífinu til fulls. Við kunnum ekki að fara með orkuna. Við skiljum ekki að við getum varið henni á mismunandi hátt, við getum valið hvort við verjum orkunni í velsæld eða vansæld. Þetta er í rauninni kraftaverkanámskeið, þú getur gert nákvæmlega allt sem þú vilt með líf þitt. Það eina sem þú þarft að gera er að virkja orkuna sem þú býrð yfir. Hluti af tilfinningalegu hreinsuninni sem við förum í er fyrirgefning. Við verjum gífurlegri orku í höfnun, vonbrigði og eftirsjá. Við kennum þátttakendum að verja þeirri orku í þann farveg sem það vill. Hvort sem fólk vill grenna sig, létta sig eða vera orkumeira og hressara, þá þurfum við að læra að gera það markvisst, þannig gerast undur og kraftaverk." |
|
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum
 Hér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi. Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
|
|
Nokkur ráð við sykurþörf
 Sykurþörf er eins og alda, hún kemur og fer, hún nær hámarki og líður hjá. Það er gott að gera sér grein fyrir því að stundum snýst þetta eingöngu um athygli. Ef þú færð þér einn banana og kíkir svo á facebook þá færir þú athyglina frá sykurþörfinni.
Margir ávextir eru náttúrulega sætir og slökkva þörfina á að fá sér sætindi. Eins er gott að drekka hálft glas af vatni og ef það er ekki nóg geturðu bætt við hálfri brauðsneið. Í brauðinu eru kolvetni sem umbreytast í sykur við meltingu.
Mikilvægast er að stjórna hegðun sinni í kringum mat, ekki borða stjórnlaust. Þegar þú veist að þú ert að gera rétt með því að velja það sem er betra fyrir líkamann, þá verður mun auðveldara að koma í veg fyrir nammiveislu.
Ekki vera slys sem slysast til þess að éta nammipokann. Taktu ábyrgð, vertu skapari og veldu gott og hollt. |
|
Kennaranám í Kundalini jóga
Kynning fimmtudaginn 27. maí í Ropeyoga Setrinu kl 19-21
Kundalini jóga er stundum kallað móðir allrar jógaiðkunar. Það býður upp á virkar leiðir til að takast á við álag nútímans. Kundalini jóga er mjög"dýnamískt" - æfingarnar byggja á hreyfingu, takti og kröftugri öndun og eru bæði ætlaðar til að styrkja líkamann, gera hann sveigjanlegri og skapa innra jafnvægi - í taugakerfi, innkirtlakerfi og ónæmiskerfi. Hugleiðsla er mjög aðgengileg og mikilvægur þáttur í Kundalini jóga.
Kennaranámið hefst í september 2010. Kennarar koma víða að úr heiminum og allir með langa reynslu að baki.
Í kennaranáminu lærir þú um: Orkustöðvarnar - möntrur - uppruna jóga, Kundalini-leiðina - jógískan lífsstíll (mataræði og rytma) - Asana og kriya (jógastöður og æfingar) - pranayama (öndunaræfingar) - hugleiðslu - mannspeki (samskipti og kynferði) - sálina; fæðingu, karma, dharma - Patanjali (jógíska heimspeki) - dauðann og það að deyja - djúpslökun og sjálfsstjórn.
Kynningin verður fimmtudaginn 27. maí, frá kl 19-21 í Ropeyoga Setrinu við Engjateig. Dagskrá: Kynning á kundalini jóga og á náminu. Jóga og hugleiðsla. Spjall á eftir. Nánari upplýsingar á www.andartak.is. |
|
Breyttur opnunartími á Gló 11-20 virka daga
Haltu þig við hollustuna allan daginn á Gló
 Veitingastaðurinn Gló við Engjateig 17-19 er nú opinn alla virka daga frá kl. 11 til 20. Á laugardögum er opið frá kl. 11 til 15. Með breyttum opnunartíma geta viðskiptavinir komið og borðað hollan og ljúffengan kvöldverð í notalegu umhverfi eða tekið hollustuna með sér heim. Minnum á vinsælu hráfæðiréttina hennar Sollu Eiríks sem hafa slegið í gegn. Hlökkum til að sjá ykkur á Gló :)
|
|
Ertu að fara í ferðalag? Nokkur mikilvæg atriði
 Hugaðu að undirbúningi fyrir ferðalagið. Mikilvægt er að taka með sér nokkra hluti sem koma að góðum notum í fríinu.
Hvort sem þú ferðast utan- eða innanlands þarftu að taka með þér eitthvað að borða á leiðinni. Döðlur, hnetur, rúsínur, þurrkað þang, bananar, vatnsflöskur o.fl. koma að góðum notum í langferð. Þú vilt velja snakkið og matinn sjálf(ur) í stað þess að láta aðra um að mata þig.
Hvert sem þú ferð ætti að vera hægt að finna ferskt grænmeti og ávexti. Kannaðu hvar næsta gróðrarstöð eða markaður með ávexti er staðsett. Ef þú ert erlendis getur þú auðveldlega útvegað blandara í næsta raftækjamarkaði og búið þér til ávaxtahristing.
Við mælum með Ropeyoga ferðasettinu sem gerir þér kleift að stunda Ropeyoga hvar sem er. Það eina sem þú þarft er hurð til þess að festa böndin.
Ef þú ert að fara í golfferð, þá ættir þú að taka böndin með ásamt kennslumyndbandi. Ropeyoga er fullkomin æfing fyrir golfið þar sem æfingarnar örva kviðvöðvana og þú slakar á bakinu.
Það getur sparað tíma og fyrirhöfn að skoða kort af svæðinu sem þú ert að fara á, finna gönguleiðir, sundlaugar, heilsubúðir, hjólaleigur, heilsulindir, námskeið og jógastöðvar.
Hugsaðu vel um líkamann í fríinu, ekki gefa heilsunni neinn afslátt, haltu fullri heilsu og vertu í góðum gír í sumarfríinu. |
|
Ropeyoga vörurnar fást hjá Hreysti
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga æfingastöð.Verð 69.800 kr.Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg,
knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær
fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa
til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Á þann hátt þjálfar
tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar
nærri. Lesa meira / kaupa vöruRopeyoga ferðasettVerð 24.900 kr. Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö
handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki
sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur
fylgja með. Lesa meira / kaupa vöru
|
|
Kaffi getur hægt á vexti barna í móðurkviði
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á þunguðum konum
Rannsókn var gerð í Hollandi á því hvort kaffineysla hefði áhrif á vöxt barna í móðurkviði. Niðurstöðurnar sýna að þær sem drukku fleiri en 6 kaffibolla á dag eignuðust að meðaltali styttri börn en þær sem drukku minna kaffi.
Rannsóknin náði til 7.300 hollenskra kvenna og voru mælingar gerðar á fyrsta, öðrum og þriðja hluta meðgöngunnar með ómskoðun. Þá voru konurnar spurðar um kaffineyslu sína við skoðun. Ekki var kannað hvort kaffi hefði önnur áhrif á fóstur í þessari rannsókn.
|
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi
Það
er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma
og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur
upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að
kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn
vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika
leiðtogans með heildrænni lífssýn.
Við
leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og
teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í
hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa
samfélagi okkar allra.
Það sem
við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum.
Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við
fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika
liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.
Lifandi
Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og
styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni
og endurvinnslu.
|
| Rope Yoga Setrið
Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík, Rope Yoga Setrið 535-3800 | |
| Skráðu þig á námskeið! |
Smelltu hér!
|
|


Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks
Sjá meira á glo.is |
| |
|