NewHeader09
Kæru vinir!

Við erum í formi allt árið. Komdu þér í form fyrir sumarið, með ást og umhyggju fyrir sál og líkama.

Langar þig að gerast Ropeyoga og Glómotion kennari? Við byrjum með nýtt kennaranámskeið 16. apríl, það verður bæði skemmtilegt og krefjandi. Smelltu hér!

Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Glómotion námskeið hefjast 15. og 16. mars
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
Hvernig berum við ábyrgð á tilveru okkar?
"Ábyrgð er forsenda þess að vera fullkomin"

Guðni Gunnarsson"Ábyrgð er forsenda máttar. Hún er forsenda þess að við mætum til fulls í þetta augnablik, forsenda þess að vera fullkomin, komin til fulls. Skiljum að öll tilveran byggist á forsendum orsaka og afleiðinga. Allar gjörðir okkar hafa afleiðingar, hugsanir og orð. Við erum þar sem við erum vegna þess að við fórum þangað meðvitað eða ómeðvitað.

Þegar maður tekur fulla ábyrgð er maður mættur í augnablikið og er þ.a.l. máttugur og hefur þannig val eða vald til að velja hvernig maður ætlar að ráðstafa orku sinni og athygli til velsældar eða vansældar. Spurningin er hvort maður ætli að þræta fyrir vanmætti sínum eða styrk. Hvort sem maður gerir verður maður að færa sönnur á sinn eigin málflutning.

Við erum skaparar og leiðtogar hvort sem við viljum taka ábyrgð á því eða ekki. Forsendan fyrir því að geta tekið ábyrgð til fulls og vera í augnablikinu er að maður láti af iðrun og eftirsjá og skilji að á því sem maður gerði það sem sumir myndu kalla mistök, þá vorum við að hrinda af stað afleiðingum sem gera það að verkum hver og hvar við erum núna.

Til þess að vera til fulls þarf maður að fyrirgefa sjálfum sér og láta af refsingu eða höfnun sem byggist á forsendum fortíðar. Við getum ekki breytt atburðum fortíðarinnar en við getum breytt áhrifum fortíðarinnar í núinu með því að taka fulla ábyrgð og skilja með virðingu og náð að núið er tækifærið.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Kennararéttindi - námskeið hefst 16. apríl
Glómotion og Ropeyoga - Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Sá fyrsti er fjórir dagar frá 18. mars til 21. mars. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Annar hluti er 16. apríl til 19. apríl.

Þriðji hlutinn er þrír dagar frá 14. maí til 16. maí. Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Ásetningur næringar - fyrirlestur eftir páska
Fyrirlestur Guðna Ásetningur næringar - hámarks brennsla
 
Guðni á TEDx Vantar þig hvatningu til þess að breyta mataræðinu? Vantar þig upplýsingar um hvernig þú eigir að fara að því að taka fyrsta skrefið til velsældar? Viltu upplýsingar og hvatningu til þess að komast í gírinn?

Guðni Gunnarsson heldur fyrirlestur um ásetning næringar og hvernig þú getur tryggt hámarks brennslu og orku. í daglegu lífi Fyrirlesturinn fjallar meðal annars um hvernig við veljum næringu sem þjónar ásetningi okkar meðvitað eða ómeðvitað. Farið er í gegnum ferli og vana sem við erum föst í gagnvart mat og matarvenjum okkar. Þetta er fyrsta skrefið fyrir marga sem vilja komast í gírinn og lifa í velsæld. Við tökum vel á móti þér. Láttu sjá þig!
 
Fyrirlesturinn hefst fimmtudagskvöldið 4. mars kl. 19.10-21.00 og fer fram í Rope Yoga Setrinu, Listhúsi við Engjateig 17 í  Laugardal.

Verð 1.950 kr.

Skráðu þig núna, smelltu hér!
Gulrótarsafi og múslí á morgnana
Solla Eiríks bendir okkur á nýjar leiðir í næringu og velsæld

Solla EiríksGulrótarsafi
Gulrótarsafi er af mörgum heilsupostulum sagður gera galdra fyrir kroppinn. Best er að hafa hann nýpressaðan, þá virkar hann best.

Prófaðu að taka
4 vænar gulrætur
2 græn epli
1 límónu (afhýdda)
2 cm bita af engiferrót
Látið renna í gegnum safapressuna,
bera síðan fram með nokkrum klökum
í glasinu. Ef þið viljið eingöngu hafa
grænmeti þá getið þið sett ¼ agúrku í
stað eplanna.

Vissir þú að...

... eitt af því besta sem líkaminn fær að morgni dags er vatnsglas með smávegis af nýkreistum sítrónusafa út í? Það sem síðan er gott að gera í kjölfarið er að fá sér glas af nýpressuðum grænmetiseða ávaxtasafa.

... mörgum finnst gott að fá sér múslí á morgnana? Hér er uppskrift að heimagerðu múslí:
2 dl tröllahafrar +
1 dl sesamfræ +
1 dl sólblómafræ +
1 dl hnetur/möndlur +
1 dl þurrkaðir
ávextir.

Þessu blandið þið saman í krukku. Mörgum finnst gott að þurrrista múslíið aðeins á þurri pönnu til að fá meiri hnetukeim, á meðan aðrir leggja það í bleyti til að virkja ensímin. Síðan er gott að borða það með möndlumjólk eða ab-mjólk eða út á hafragraut eða bara eins og þig langar til.

Gangi ykkur sem allra best
Solla
Nýtt orku- og aðhaldsnámskeið hefst 6. apríl
Námskeiðið veitir þér stuðning til þess að breyta lífi þínu
 
Guðni Gunnarsson"Fyrir þá sem sannarlega vilja breyta lífi sínu, þá er þetta gríðarlega mikilvægt og öflugt námskeið. Það veitir stuðning til þess að breyta hegðun til betri vegar á 6 vikum og lætur engan ósnortinn, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Þú mund læra að breyta ferli matar og neyslu, hreyfingar og hugsunar.

Námskeiðið fer fram á þriðjudögum frá kl. 19-22 og fimmtudögum frá kl. 20:15-21:25. Á þriðjudögum eru fyrirlestrar, verkefnavinna og horft á stutt myndbönd til stuðnings fræðslunni og á fimmtudögum er klukkustundar iðkun í Ropeyoga.

Orka og aðhald er öflugasta umbreytingarnámskeiðið sem við bjóðum upp á. Þeir sem koma á námskeiðið fá 50% afslátt af Ropeyoga námskeiði og iðkendur Glómotion framhaldsnámskeiði (flex) fá 50% afslátt af Orku- og aðhaldsnámskeiðinu. Námskeiðið er byggt upp á hugmyndafræði Ropeyoga, en nálgunin og ívafið er ásetningur næringar, hver er þín tilfinningalega forsenda og af hverju hefur þú ekki leyft þér að vera grönn eða grannur.

Ég verð að tala opinskátt, það er ekki til neitt sem heitir fitugen eða hæg efnaskipti nema vegna forsendu hugans. Ef maður er innblásinn og fullur af ástríðu er maður með allt aðra efnabreytingu heldur en ef maður er þunglyndur og heldur aftur af sinni tilvist. Ég segi hiklaust, við erum það sem við erum af því að við fórum þangað og ef við viljum vera þar áfram þá tryggjum við það með því að viðhalda sömu hegðun. Við erum flest nægilega upplýst og höfum aðgang að upplýsingum sem gefa okkur innsýn í möguleikana, hreyfingu, mataræði, hugmyndafræði, en samt sem áður mögnum við ekki það sem til þarf að ganga niður annan stíg. Það er enginn undanskilinn frá þessu, það sem heldur mest aftur af mér er skömm og ótti en ég skammast mín hins vegar ekki lengur fyrir að skammast mín. Ég er heldur ekki hræddur við að vera hræddur. Það er mikið af upplýsingum sem bæði ég og aðrir hafa sem geta hjálpað fólki til þess að átta sig á því hvernig hægt er að hugsa sig upp og búa til ferli sem vekja áhuga í stað þess að búa til ferli sem draga úr þessum áhuga.

Námskeiðið Orka og aðhald er þannig uppbyggt að við lærum að horfast í augu við hegðun okkar, ekki í ofbeldi og ásökun heldur í kærleika og blíðu til þess að við getum tekið afstöðu um það hvort við viljum viðhalda þeim sársauka og orkuleysi sem við erum í eða hvort við viljum hreinlega hefja nýtt líf.

Aðhaldið felst í því að í 6 vikur búum við til umgjörð þar sem fólki er kennt hvaða áhrif hreyfing og næring hefur á tilvist þeirra og hvernig orkan gjörbreytist með hugarfari og neyslu næringar. Það er lögð lína í hverri viku um mataræði, eins konar heimaverkefni og svo er fólk spurt hvernig gekk að viðhalda þeim fyrirmælum sem gefin voru í síðasta tíma. Við breytum um nálgun í hverri viku og gerum samanburð á því hvaða breyting átti sér stað hjá þátttakendum sem tileinkuðu sér nýja hegðun og viðhorf í vikunni sem leið. Við veitum þátttakendum huglæg tæki og tól til þess að vinna með efni námmskeiðsins heima.

Þátttakendur fá bók, leysa verkefni og það eiga sér stað umræður á námskeiðunum. Við notum stutt myndbönd öll kvöldin til þess að veita þátttakendum betri innsýn inn í það sem við fáumst við hverju sinni. Svo hefur Solla Eiríks sem er í samstarfi við okkur á Gló komið inn í fyrirlestur um lifandi fæði, kosti þess og kraftaverk. Þetta námskeið er öflugasta námskeiðið okkar og gefur fólki tækifæri til þess að gera gríðarlegar breytingar. Ég tel þetta vera eitt merkilegasta námskeiðið okkar og hlakka alltaf til þess að fara í gegnum það með þátttakendum."

Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 9. mars og fer fram í Listhúsinu Laugardal næstu sex þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 19.00 til 22.00 (þri) og 20:15-21:25 (fim).

Skráðu þig núna, smelltu hér!

Græni hlekkurinn sendir grænmeti heim
Fáðu nýtt og ferskt grænmeti beint af akrinum sent til þín

Græni hlekkurinnEftir góðar viðtökur um jólin munum við halda ótrauð áfram inn í nýja árið. Verslunin verður keyrð áfram með svipuðu sniði og ekkert að gera nema að auka úrvalið núna þegar nær dregur sumri.

Í boði í augnablikinu verða garðyrkjuafurðir eins og tómatar, kartöflur, rófur, hnúðkál, krydd og fleirra sem til er hverju sinni. Einnig verða mjólkurafurðir frá Bióbú eins og jógúrt, skyr, rjómaostur, Sorbit-ís, rjómaís og fleirra. Þá eru ýmsar heimatilbúnar afurðir, svo sem chilepiparmauk, gúrkur í kryddlegi, mjólkursýrðar gulrætur, ávaxtasultur og kompott, þurrkaðir ávextir og fleirra. Einnig eru innfluttir lífrænir ávextir frá hinum ýmsu hornum veraldar. Villimey verður líka með sín galdrasmyrsl.

Helstu framleiðendur sem eru með á þessum árstíma eru Garðyrkjustöðin Akur, Engi, Móðir Jörð, Villimey og Bióbú.

En síðan komum við færandi hendi úr sveitini með nýjar vörur þegar þær verða til. 
Markaðurinn er opin Mánudaga til Föstudaga frá 12-18 og Laugardaga frá 12-16.
Kveðjur úr Sveitinni.

Fáðu grænmeti sent heim vikulega beint af akrinum. Pantaðu á graenihlekkurinn.is
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Himnesk uppskrift frá Sollu
Súpan góða - meira á himnesk.is

Konfektmolar

Gerlaust
Glútenlaust
Mjólkurlaust
Sykurlaust

2 msk kaldpressuð kókosolía
1 púrra, smátt skorin
2 hvítlauksrif
2 msk curry paste (ég nota frá Pataks = mild currypaste coriander & cumin - fæst í Hagkaup Kringlunni)
2 msk gott mangó chutney (ég nota Geetas sem fæst í Hagkaup)
1 msk tómatpúrra
5-700gr niðurskorið allskonar grænmeti (1 sæt kartafla + 1 gulrót + smá blómkál + smá sellerírót + nokkrar kartöflur)
2 dósir kókosmjólk
600ml vatn
smá biti fersk engiferrót, afhýdd (2-3 cm)
2 limelauf (fæst í Hagkaup)
10 cm biti sítrónugras (fæst í Hagkaup)
smá biti ferskur chili - stærð fer eftir því hvað þú vilt hafa súpuna sterka/milda
1 tsk grænmetiskraftur
smá salt
1 búnt ferskur kóríander

- setjið kókoolíu í pott & bætið púrru + hvítlauk + currypasteinu útí & látið mýkjast í 2-3 mín
- bætið grænmetinu + tómatpúrru + mangó chutney útí
- hellið kókosmjólkinni & vatninu útí ásamt grænmetiskrafti + engifer + limlauf + sítrónugrasi + ferskur chili útí
- látið sjóða í 15-20 mín
- smakkið til með salti & klippið ferskan kóríander yfir

Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Námskeið fyrir karlmenn hefst 12. apríl
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol

Golf sveifla
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.

Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.

Það er auðvelt að skrá sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is


Skráðu þig á karlanámskeið strax í dag! Næsta námskeið hefst 12. apríl.
Smelltu hér

Solla í samstarf við Gló - frábærar viðtökur
Nýjar áherslur - ljúffengir réttir - breyttur afgreiðslutími

Solla Eiríks á GlóHvaða breytingar eiga sér stað á Gló með aðkomu þinni?

"Við ætlum að vera með 50-75% hráfæði til að byrja með, við höldum áfram að vera með eldaða grænmetisrétti og jafnvel einhverja kjöt- og fiskrétti, en áherslan verður á hráfæði og superfoods (ofurfæðu). Við finnum að það er það sem fólk kallar eftir, það er enginn veitingastaður að sinna eftirspurninni eftir hráfæðimáltíðum með ofurfæðu, þannig að við ákváðum að slá til. Þú getur komið eftir æfingu á morgnana kl. 7:30 og fengið þér grænan djús og ofurhollan morgunmat, við verðum með eldaða grauta, lífræna jógúrt með ofurmúslí og alls konar hristinga. Þetta er sem sagt kjarninn í breytingunum, við munum minnka kjöt og fisk og færa okkur meira út í hráfæði og ofurfæðu.

Við verðum með námskeið og fyrirlestra ásamt því að fara með veitingastaðinn alla leið. Við verðum með safnhaug og munum búa til okkar eigin mold, við munum rækta ýmislegt til þess að nota í matinn, við munum flokka allt sem við hendum og tökum þetta alla leið.

Námskeið um ofurfæðu (superfoods) fer fram 19. og 20. janúar og svo verðum við með hráfæðinámskeið 26. og 27. janúar. Hægt er að skrá sig á himnesk.is.

Opið verður á Gló frá 7:30-9:00 og 11:00-17:00 til að byrja með."

www.glo.is
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
gudni lyfta
"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir. Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga. Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar. Þetta er smáhreyfing sem við förum í, í fullri vitund og beitum þessum kviðvöðvum, kjarnanum sem við erum búin að virkja í gegnum Ropeyoga, til þess að ná ennþá meiri tökum á þessari tilvist. Svo bætum við við þetta öndunaræfingum sem við köllum lungnaþennsluæfingar, þá opnum við þindina, rifjahylkið, virkja lungnabörkinn. Í mörgum tilfellum notum við aðeins lítinn hluta af öndunarfærum okkar til þess að draga að okkur lífafl og virkja okkar tilvist til fulls. Þetta eru fyrstu þrír þættirnir og það sem Ropeyoga býður upp á.

Glómotion byggir á þessum þremur þáttum, en við höfum bætt við þetta mótstöðuæfingum, sem er raunverulega yoga með lóðum, mótstöðu. Af hverju yoga, vegna þess að við erum í fullri vitund í upplifun vöðvans og vitund gagnvart viðnámi hugans við hreyfingar, ferlin sem eru í líkamanum og viðnámið sem skapast þegar við hægjum svona mikið á. Flest okkar eru að glíma við það að vilja ekki meðvitað vera til staðar í okkar eigin tilvist. Með því að lyfta léttum lóðum löturhægt í fullri vitund er hugleiðsla. Svo bætum við stöðuæfingum við, en þær eru byggðar á yogastöðum, en þær eru byggðar á endurtekningum. Stöðurnar eru byggðar á fimm ferlum, The five Tibetan rights, Tíbetskur munkur kenndi fólki þessar æfingar og taldi þeim trú um að æfingarnar myndu hjálpa fólki að viðhalda líkamlegri heilsu og orkuflæði. Ég bætti við þetta fimm stöðum í viðbót til þess að heildarstyrking líkamans næðist. Svo bætti ég við djúpteigjum sem ég er búinn að þróa og byggjast á því að opna mjaðmirnar, stóru lærvöðvana framan og aftan á og bakið. Bakið og fótleggirnir vinna saman í gegnum kviðinn ef nálgunin er rétt. Það er mikil áhersla lögð á þetta.

Þegar við blöndum æfingunum saman er líkaminn að upplifa hvatningu eða nýtt áreiti í hverjum tíma, sem er aldrei meira áreiti en það að líkaminn vinnur úr því á milli tíma. Það er ekkert kerfi sem skilar jafn miklum árangri á jafn skömmum tíma og þessi nálgun. Það eru tvær útfærslur, annars vegar er það Glómotion í 70 mín fyrir byrjendur sem hentar mjög vel fyrir þá sem hafa stundað Ropeyoga eða þá sem hafa ekki komið í Ropeyoga því við kennum böndin í Glómotion, en áherslan er mismikil, þetta er meira umfang á skemmri tíma. En sumir vilja það og við erum að uppfylla þarfir þeirra. Glómotion framhald (flex) er 90 mínútna tími. Það gefur okkur meiri tíma og er öðruvísi nálgun. Það er meira umfang en sama uppbygging. Eini munurinn er sá að í Glómotion fyrir byrjendur erum við með handlóð en í framhaldsnámskeiðunum (flex) erum við með tæki. Við getum jafnframt lagt meira á viðkomandi á 90 mínútum en 70 mínútum. En grunnurinn er sá sami.

Ég hvet þá sem hafa farið á Ropeyoga námskeið, hvort sem er byrjendanámskeið eða framhald til þess að fara á Glómotion fyrir byrjendur, því þau fá meira út úr því. Eins hvet ég þá sem hafa tekið Glómotion byrjendanámskeiðin til þess að fara á framhaldsnámskeiðin (flex). Þetta er spurning hvað fólk er tilbúið til þess að leggja á sig og eftir hverju það sækist.

Mikil áhersla er lögð á næringu í Glómotion, það er alltaf svo mikil áhersla á líkamsrækt í allri þjálfun, en ef vel er að gáð er ekkert mikilvægara en næringin. Ásetningur næringar er það sem skiptir mestu máli. Ef maður nærir sig ekki með ásetningi er maður að næra sig með þeim dulda ásetningi að næra ekki ásetning, þá er maður að troða í sig orku en þessi orka verður að fitu. Ef maður vinnur með ásetning og virkjar þá orku sem maður setur í sig, þá nær maður miklu meiri árangri heldur en þeir sem gera það ekki. Ég hef starfað við þetta í 30 ár og get fullyrt að þeir sem sinna næringunni ná allt öðrum árangri heldur en þeir sem gera það ekki. Þarna komum við inn á forsenduna sem er innslagið í okkar nálgun, allt sem þú veitir athygli vex og dafnar, hvort sem það er sem þú vilt eður ei. Það er því gríðarlega mikilvægt að vanda sig, því við erum orkuumbreytar og skaparar og ráðum öllu um það hvort við séum að næra vansæld eða velsæld."


Nánari upplýsingar veita kennarar sem taka vel á móti þér í Ropeyogasetrinu.
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Viðtal við Sollu Eiríks um hollustu og heilbrigði
Sjáið viðtalið við Sollu á Youtube

Solla Eiríks á GlóStutt myndband þar sem Solla segir frá því þegar hún þurfti að taka ákvörðun um að tileinka sér lífræna næringu, hollustu og heilbrigði.

Smelltu hér til þess að horfa!
 
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Hvað er ábyrgð?
Kennaranámskeið 16. apríl 2010
Ásetningur næringar hámarks brennsla
Hollráð frá Sollu Eiríks
Orku- og aðhaldsnámskeið
Græni hlekkurinn færir þér grænmeti heim
Ferðasettið í golfferðina!
Himnesk uppskrift frá Sollu
Nýtt námskeið fyrir karlmenn
Solla Eiríks í samstarf við Gló
Spilar þú golf? Fáðu meira út úr golfinu með okkur
Vinnustöð - stundaðu Rope Yoga heima!
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!