NewHeader09
Kæru vinir!

Eins og þið sjáið hér fyrir neðan erum við að fara af stað með fullt af nýjum og skemmtilegum námskeiðum. Komdu þér í form fyrir sumarið, með ást og umhyggju fyrir sál og líkama.

Langar þig að gerast Ropeyoga og Glómotion kennari? Við byrjum með nýtt kennaranámskeið 18. mars, það verður bæði skemmtilegt og krefjandi. Smelltu hér!

Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Glómotion framhald hefst 1. og 2. mars
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
Af hverju þurfum við heimild til þess að njóta?
Veittu þér heimild til þess að gera það sem þig langar til

Guðni Gunnarsson"Af hverju þurfum við heimild til þess að öðlast hamingju eða velsæld?

Vegna þess að við virðumst búa við ákveðið kerfi þar sem möguleikinn býður upp á að við þrætum fyrir vanmætti okkar eða styrk. Við erum með hugmyndir um hver við erum og hvernig við eigum að vera til þess að þóknast umhverfi okkar og aðstæðum. Í flestum tilfellum höfum við búið þessa hugmynd til í samræmi við umhverfi okkar, fjölskyldur og stofnanir og verjum síðan talsverðum tíma í að uppfæra þetta leikrit. Leikritið er byggt á því hlutverki sem við höfum valið okkur og þeim væntingum sem fylgja þessu hlutverki. Eins og okkur líður í dag í þessari s.k. kreppu, þá virðumst við hafa veitt okkur yfirdráttarheimild en ekki sanna heimild þar sem við komumst yfir fjármagn en ekki velsæld eða hamingju. Nú þegar fjármagnið er uppurið þá er skorturinn mættur aftur.

Umræðan gengur út á að við getum ekki öðlast velsæld, hamingju eða heilbrigði nema við vinnum að því markvisst og öðlumst heimild í okkar eigin hjörtum til þess að breyta málflutningnum. Hversu verðug erum við, er spurningin. Það mat verður samfara okkar eigin hugmynd um verðugleika sem byggist á því hversu sannsögul við erum. Stöndum við við loforð okkar, efnum við skuldbindingar eða heitbindingar eða erum við að fresta og lofa upp í ermina á okkur?

Ef við svíkjum og frestum, þá vinnum við gegn okkur, búum til sektarkennd og skömm og drögum þar með sjálfkrafa úr heimildinni. Ef við hins vegar stöndum við gefin loforð, segjum satt og hegðum okkur í samræmi við yfirlýsingar, þá verðum við trúverðug og heimildirnar aukast. Það má líkja þessu við ljósmagn eða samdrátt og útvíkkun. Þegar við hegðum okkur með sóma og í samræmi við gildismat hjartans, þá lifnar yfir okkur og ljósmagnið eykst. En þegar við hegðum okkur í ósamræmi við hjartað, þá drögum við úr okkar eigin verðugleika og þá dofnar ljósið okkar. Við erum stöðugt að birta okkur sem bjart ljós eða daufa týru. Þessi birting verður svo að heimild, þ.e. velsæld eða vansæld.

Það er gríðarlega mikilvægt að skilja að allt sem við veitum athygli vex og dafnar og ef við spyrjum okkur, hvað vil ég og á ég innistæðu í hjarta mínu? Hef ég heimild til að leyfa mér að ná árangri og verða hamingjusamur eða hamingjusöm eða þarf ég að vinna traust sjálfs míns og heimild, þá verður svarið skýrt. Þetta getum við notað til þess að skilja hvað við þurfum að gera til að öðlast leyfi eða þær heimildir sem við þurfum.

Veitt þú þér heimild og gerðu það sem þarf til þess að standa undir henni.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Ásdís Björnsdóttir um Ropeyoga
"Guðni á þakkir skyldar fyrir frábært æfingakerfi og stuðning"
 
Fyrir þremur árum var mér orðið mjög illt í bakinu, datt við minnsta álag og var oft rúmliggjandi. Geta til hreyfingar var óðum að minnka. Eftir nokkur áföll sá ég að við þetta gæti ég ekki unað lengur. Ég fór í myndatöku og í ljós kom að ég var með brjósklos neðst í hryggnum, tvær bungur, aðra nokkuð stóra. Ég varð að taka ákvörðun um hvort ég vildi láta skera í bakið á mér eða reyna að finna hreyfingu við hæfi.

Í gegnum bróður minn hafði ég kynnt mér æfingakerfi ropeyoga Guðna Gunnarssonar og ákvað að prófa það. Ég ákvað einnig að gefa mér tvö ár. Bakveiki fylgir mikill sársauki og ég bjóst við að æfingakerfið myndi reyna á bakið en svo var ekki. Ég byrjaði að æfa í janúar 2008 og um vorið var ég orðin nokkuð góð og til marks um það gekk ég í bjartsýniskasti á Baulu. Eftir á að hyggja fannst mér það mikil prófraun (líka þolraun!) því vissulega fann ég fyrir meininu en ég hafði styrkt mig það vel að ég gat gengið eða klifrað þótt hægt færi.

Nú í upphafi þriðja jógaárs er við hæfi að fagna góðum árangri. Á síðasta ári sást brjósklosið ekki á mynd en ég veit af því. Það lúrir þarna en lætur sjaldan á sér kræla og skrokkurinn er að verða fimmtíu ára. Ég prófaði í apríl sl. að taka mér frí frá æfingum og fann að ég hafði lítil efni á því. Æfingarnar gera bakinu gott en áhrifin á sálartetrið eru þannig að hún biður um æfingu geri bakið það ekki.

Guðni á þakkir skyldar fyrir frábært æfingakerfi, góðan stuðning, þekkingu og ávallt uppbyggjandi ráð, hvort sem varðar hreyfingu og mataræði eða almenna líðan.  
 
Kærar þakkir, Ásdís Björnsdóttir
 
Ps. Leiða má hugann að því hvort fækka mætti brjósklosaðgerðum heilbrigðiskerfisins, væri fólki beint eða þröngvað í markvissa í hreyfingu áður en ákvörðun um uppskurð væri tekin.



Græni hlekkurinn sendir grænmeti heim
Fáðu nýtt og ferskt grænmeti beint af akrinum sent til þín

Græni hlekkurinnEftir góðar viðtökur um jólin munum við halda ótrauð áfram inn í nýja árið. Verslunin verður keyrð áfram með svipuðu sniði og ekkert að gera nema að auka úrvalið núna þegar nær dregur sumri.

Í boði í augnablikinu verða garðyrkjuafurðir eins og tómatar, kartöflur, rófur, hnúðkál, krydd og fleirra sem til er hverju sinni. Einnig verða mjólkurafurðir frá Bióbú eins og jógúrt, skyr, rjómaostur, Sorbit-ís, rjómaís og fleirra. Þá eru ýmsar heimatilbúnar afurðir, svo sem chilepiparmauk, gúrkur í kryddlegi, mjólkursýrðar gulrætur, ávaxtasultur og kompott, þurrkaðir ávextir og fleirra. Einnig eru innfluttir lífrænir ávextir frá hinum ýmsu hornum veraldar. Villimey verður líka með sín galdrasmyrsl.

Helstu framleiðendur sem eru með á þessum árstíma eru Garðyrkjustöðin Akur, Engi, Móðir Jörð, Villimey og Bióbú.

En síðan komum við færandi hendi úr sveitini með nýjar vörur þegar þær verða til. 
Markaðurinn er opin Mánudaga til Föstudaga frá 12-18 og Laugardaga frá 12-16.
Kveðjur úr Sveitinni.

Fáðu grænmeti sent heim vikulega beint af akrinum. Pantaðu á graenihlekkurinn.is
Af hverju borðar þú?
Er það vegna þess að þú ert svöng eða leið og þreytt?
 
SkyndibitiHefur þú velt fyrir þér af hverju þú borðar þegar þú borðar? Gerir þú þér grein fyrir mikilvægi þess að veita því athygli hvers vegna þú borðar?

Við þurfum öll orku og næringu til þess að lifa lífinu lifandi og hafa orku til þess að gera það sem okkur langar til. En því miður eru ekki allir sem borða til þess að næra sig, heldur til þess að fylla upp í gap í tilfinningalífinu eða einfaldlega fylla magann af einhverju sem bragðast vel og tekur stuttan tíma að útvega.

Lykillinn að vellíðan er holl og góð næring. Veltu fyrir þér hvað þetta þýðir. Hollt og gott. Já, það er mikilvægt að það sem við borðum bragðist vel, allt of oft er viðhorfið til grænmetis og hráfæðis að það sé ekki gott eða ekki nógu hollt fyrir okkur. Að við þurfum kjöt til þess að hafa orku til að komast í gegnum daginn. Þvert á móti fær líkaminn ekki meiri og betri næringu í einni máltíð heldur en í fjölbreyttri hráfæðismáltíð.
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér
Kennararéttindi í Glómotion og Ropeyoga 2010

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Sá fyrsti er fjórir dagar frá 18. mars til 21. mars. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Annar hluti er 16. apríl til 19. apríl.

Þriðji hlutinn er þrír dagar frá 14. maí til 16. maí. Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Himnesk uppskrift frá Sollu
Ljúffengt grænmetisbuff - meira á himnesk.is

Konfektmolar

2 dl soðnir heilir hafrar
2 dl soðið quinoa
2 dl blandað grænmeti
2 hvítlauksrif
2 msk tómatpúrra
½ bunt ferskt basil
1 tsk timian
1 tsk oregano
1 tsk þurrkað basil
rasp:
1 dl graskerjafræ
1 dl sólblómafræ
1 tsk lífrænn og gerlaus grænmetiskraftur*

Hakkið hrísgjónin í hakkavél og setjið síðan í hrærivél ásamt restinni af uppskriftinni og hrærið þessu saman. Mótið buff, veltið þeim upp úr raspinu og bakið þau í ofni við 200°C í 7-8 mín hvor hlið eða steikið þau á pönnu í smá góðri hitaþolinni olíu, t.d. kaldpressaðir kókosolíu í nokkrar mín á hvorri hlið
þessi eru frábær með fullt af grænu salati og grænu eða rauðu pestó
2 dl soðnir heilir hafrar

Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Komdu með barnið þitt í yoga og komdu þér strax í form

Guðni GunnarssonSérstaklega ætlað þeim konum sem hafa eignast börn, hvort sem er strax eftir fæðingu eða nokkrum vikum eða mánuðum seinna. Í Ropeyoga geta konur byrjað strax viku eftir barnsburð og hvetjum við mæður til þess að byrja sem fyrst. Vissulega fer það eftir heilsu eða getu hverrar og einnar. Mæður eru hvattar til þess að hafa með sér barnið. Á fyrstu vikunum eftir barnsburð fer hormónaframleiðsla í gang sem örvar samdrátt og virkni legs og kviðarholsvöðva. Þær konur sem byrja fljótt að æfa eftir barnsburð ná því skjótari árangri í endurhæfingu grindarbotns- og kviðarholsvöðva heldur en þær sem fara af stað síðar. Á þessum námskeiðum leggjum við sérstaka áherslu á kviðarhols- og grindarbotnsvöðva ásamt rass- og lærvöðvum. Einnig leggjum við áherslu á losun streitu og þreytu og andlega uppbyggingu.

Kennari er Ásta M. Agnarsdóttir ropeyogakennari, yogakennari og nuddari. Skráðu þig með því að smella hér.
Solla í samstarf við Gló - frábærar viðtökur
Nýjar áherslur - ljúffengir réttir - breyttur afgreiðslutími

Solla Eiríks á GlóHvaða breytingar eiga sér stað á Gló með aðkomu þinni?

"Við ætlum að vera með 50-75% hráfæði til að byrja með, við höldum áfram að vera með eldaða grænmetisrétti og jafnvel einhverja kjöt- og fiskrétti, en áherslan verður á hráfæði og superfoods (ofurfæðu). Við finnum að það er það sem fólk kallar eftir, það er enginn veitingastaður að sinna eftirspurninni eftir hráfæðimáltíðum með ofurfæðu, þannig að við ákváðum að slá til. Þú getur komið eftir æfingu á morgnana kl. 7:30 og fengið þér grænan djús og ofurhollan morgunmat, við verðum með eldaða grauta, lífræna jógúrt með ofurmúslí og alls konar hristinga. Þetta er sem sagt kjarninn í breytingunum, við munum minnka kjöt og fisk og færa okkur meira út í hráfæði og ofurfæðu.

Við verðum með námskeið og fyrirlestra ásamt því að fara með veitingastaðinn alla leið. Við verðum með safnhaug og munum búa til okkar eigin mold, við munum rækta ýmislegt til þess að nota í matinn, við munum flokka allt sem við hendum og tökum þetta alla leið.

Námskeið um ofurfæðu (superfoods) fer fram 19. og 20. janúar og svo verðum við með hráfæðinámskeið 26. og 27. janúar. Hægt er að skrá sig á himnesk.is.

Opið verður á Gló frá 7:30-9:00 og 11:00-17:00 til að byrja með."

www.glo.is
Nýtt námskeið eingöngu fyrir karlmenn
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol

Golf sveifla
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.

Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.

Það er auðvelt að skrá sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is


Skráðu þig á karlanámskeið strax í dag!
Smelltu hér

Ropeyoga og Glómotion - tilvalið fyrir golfara
Æfingarnar styrkja kviðvöðva, losa um bakið og efla snerpu
Nýtt ár 2010
Það er mikilvægt að minna þá sem spila golf af krafti að nú er rétti tíminn til þess að skrá sig á námskeið og undirbúa líkamann fyrir leiki sumarsins. Golf er frábær íþrótt, hún sameinar bæði útivist, hreyfingu og krefjandi leik fyrir hug og líkama.

Glómotion og Ropeyoga eru æfingakerfi sem halda mætti að væru sérsniðin fyrir golfið. Það vill hins vegar til að þessi æfingakerfi eru heildarmiðuð, þau ganga út á að efla þig að öllu leyti, ekki aðeins líkamlega heldur tilfinningalega og andlega. Golf er leikfimi huga og snerpu, komdu þér í gott form fyrir sumarið, skráðu þig á námskeið strax í dag.

Nánari upplýsingar veita kennarar sem taka vel á móti þér í Ropeyogasetrinu.
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Viðtal við Dr. Gabriel Cousens
"Því minna sem við borðum, því lengur lifum við"

Dr. Gabriel Cousens um lífrænt ræktaðHvað er mikilvægt fyrir fólk sem er umhugað um heilsuna og langar til þess að stuðla að langlífi?

Dr. Gabriel Cousens segir að lykilatriðið sé að því minna sem þú borðar því lengur lifirðu. Hvernig förum við að því að borða minna? Þeir sem lifa manna lengst í veröldinni borða a.m.t. 1500 kaloríur á dag á meðan t.d. Bandaríkjamenn borða 3800 kaloríur á dag a.m.t.. Þegar fólk borðar lífrænt ræktað fær þar mun meiri næringu en þegar það borðar eldaðan hefðbundinn mat úr dýraprótínum. Þeir sem borða mest af grænmeti og ávöxtum eru með lægstu tíðnina á krónískum sjúkdómum skv. Kínarannsóknunum (the China study).

Rannsókn dr. Spindler sem var gerð árið 2001 á músum sýndi fram á að mýs sem fengu 40% minni kaloríur en samanburðarhópur af músum, jók framleiðslu á ensímum, mótefnum og ónæmisfrumum um 400%.

Afleiðingar þess að borða lífrænt ræktað eru m.a. þær að draga úr hættunni á krabbameini og hjartasjúkdómum skv. Dr. Gabriel Cousens. Fáðu nánari upplýsingar með því að hlusta á viðtalið við Cousens.

Hlustaðu á viðtal við Dr. Cousens með því að smella hér
Viðtal við Sollu Eiríks um hollustu og heilbrigði
Sjáið viðtalið við Sollu á Youtube

Solla Eiríks á GlóStutt myndband þar sem Solla segir frá því þegar hún þurfti að taka ákvörðun um að tileinka sér lífræna næringu, hollustu og heilbrigði.

Smelltu hér til þess að horfa!
 
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Guðni talar um heimild
Ásdís Björnsdóttir um Ropeyoga
Græni hlekkurinn færir þér grænmeti heim
Af hverju borðar þú?
Ferðasettið í golfferðina!
Kennaranámskeið 2010
Himnesk uppskrift frá Sollu
Nýtt námskeið fyrir konur eftir barnsburð
Solla Eiríks í samstarf við Gló
Nýtt námskeið fyrir karlmenn
Spilar þú golf? Fáðu meira út úr golfinu með okkur
Vinnustöð - stundaðu Rope Yoga heima!
Viðtal við dr. Gabriel Cousens um langlífi
Viðtal við Sollu Eiríks á Youtube
Áður útgefin fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!