NewHeader09
Kæru vinir!

Við óskum ykkur gleðilegra páska og treystum að þið njótið velsældar yfir hátíðina. Munið að dökkt súkkulaði er hollara en ljóst og að allt er gott í hófi.
 
Ný námskeið eru að hefjast strax eftir páska, skráðu þig strax!!
 
Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Ný námskeið hefjast 6. og 7. apríl - vertu með!
Örfá pláss á Glómotion framhaldsnámskeið sem hófst 29. mars!
Robert Young í fyrsta sinn á Íslandi
Hann heldur fyrirlestur í Ropeyoga Setrinu 10. apríl

Nýtt ár 2010Dr. Robert O Young heldur námskeið um pH kraftaverkið. Einn sjúkdómur - ein lækning.

Hvað ef orsök allra sjúkdóma er of lágt pH gildi? Hvað ef alkalisering er lausnin?

Á þessu eins dags námskeiði um heilbrigði og næringu lærir þú m.a. um The New Biology (nýju líffræðina) pH kraftaverkið og leyndarmál Dr. Roberts O
Young um brunn æskunnar og hvernig þú snýrð öldruninni við. Hvernig þú getur varið þig fyrir kvefi og inflúflensum, einnig svokölluðum svína- og
fuglaflensum.

Þú lærir um bólusetningar, hvort þær eru öruggur eða gagnlegar.
Þú lærir hvað orsakar krabbamein, sykursýki og háan blóðþrýsting og hvernig á að
snúa því ástandi við.
Þú lærir hvers vegna saltneysla mun bæta heilsu þína og lækka blóðþrýstinginn.
Þú lærir af hverju sykur er súrt fíkniefni.
Þú lærir hvernig á að koma jafnvægi á innkirtlakerfi þitt án þess að taka
lífefnalegan hormón og hvernig á að koma í veg fyrir svitaköst.
Þú lærir af hverju blóðið er mikilvægasta líffærið og hvernig þú getur komið í veg
fyrir öldrun, bætt heilsu þína og orku með því að halda blóðinu heilbrigðu.
Þú lærir að líkaminn er í eðli sínu basískur, en sýran er áunnin og hvernig á að
halda líkamanum basískum.
Þú lærir hvernig hvernig þú getur verið laus við ALLAR flensur og sjúkdóma.
Þú lærir hvernig er hægt vernda og styrkja ónæmiskerfið.
Þú færð innsýn í basíska matargerð.
Þú lærir lífstílinn og mataræðið fyrir heilbrigt orkumikið líf.
Þú lærir hvernig þú getur haft næga orku og lífsþrótt frá morgni til kvölds.

ATH. námskeiðið verður haldið á ensku. Hægt er að kaupa miða á Midi.is
Staðsetning Ropeyoga Setursins er Engjateigur 17-19 í Laugardal á móts við Hótel Hilton Nordica.

Hægt verður að fá einkatíma í blóðgreiningu hjá Dr. Young þann 9. apríl. Nánari upplýsingar í símum 615 4070 Guðrún Helga og 864 3580 Hanna.

Nánari upplýsingar á vefnum Ljósberinn.net
Guðni talar um framgang og rétt til velsældar
"Þú hefur heimildir frá tilverunni til þess að öðlast...hamingju"

Guðni Gunnarsson"Framgangur er heimild til þess að ganga fram, maður þarf að öðlast trú og traust á sjálfan sig. Það kemur af því að verða trúverðugur, standa við það sem maður segir og verða þ.a.l. verðugur í sinni eigin tilvist. Það er mjög mikilvægt að maður geri sér grein fyrir að háttalag okkar, framkoma, hugsanir og mælt orð eru vísbendingar til umhverfisins um hvað við teljum að við eigum skilið, meðvitað eða ómeðvitað. Við erum alltaf að segja umhverfinu hversu verðug við erum eða ekki.

Framgangan gengur út á að maður leyfi sér velsæld. Það fer enginn umfram heimildir, ef maður laðar að sér orku eða tækifæri umfram okkar getu til þess að vinna úr eða melta, þá stendur þetta í okkur. Það má líka benda á það að framganga er andstæða þess að halda aftur af sér þar sem maður er í stöðugri vörn vegna þess að maður treystir ekki og er þ.a.l. ekki í fullri birtingu. Það má því líkja framgöngunni við það að vera í fullri birtingu, láta ljós sitt skína til fulls.

Við þurfum að skoða í okkar ferlum og tilveru hvar við erum, við erum þar sem við erum af því að við fórum þangað og ef við viljum ekki vera þar verðum við að skilja hvað olli því að við fórum þangað sem við erum. Tilveran er bara orsök og afleiðing, það eru engin slys eða óhöpp. Þeir sem taka ábyrgð vita að við uppskerum alltaf nákvæmlega eins og við sáum. Það er okkur öllum hollt að skoða hvar við erum stödd og hvaða skilaboð við erum að senda umhverfinu, þau skilaboð eru vísbendingar um þær heimildir sem við höfum.

Hamingja og velsæld er guðsgjöf, en ef við höfnum okkur þá höfnum við velsæld og hamingju. Þú hefur heimildir frá tilverunni til þess að öðlast heilsu og hamingju, velsæld og kærleika. Þetta er þinn fæðingarréttur, þú sem skapari og leiðtogi þarft bara að ákveða hvað það er sem þú vilt og síðan að framkvæma í takt við þá yfirlýsingu. En maður þarf stundum að auka þol sitt fyrir birtu í smáum skrefum því það er ljósið sem við óttumst, ekki myrkrið eða vansældin, því að það þekkjum við öll. Slepptu nú af þér beislinu og gakktu til móts við ljósið.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Himnesk uppskrift frá Sollu
Basabomba - meira á himnesk.is

Konfektmolar

Gerlaust
Glútenlaust
Mjólkurlaust
Sykurlaust

Uppskrift:

2 ½ dl kókosvatn (dr. Martin)
1 hnefi spínat (um 75-100g)
¼ avókadó
½ tsk alkalive duft (fæst í Hagkaup, Heilsuhúsinu eða Maður Lifandi)

Allt sett í blandara og hrist vel saman þetta er frábær drykkur á morgnana eða sem milli mála drykkur.

Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
gudni lyfta
"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir.

Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga.

Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar."

Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
Kennararéttindi - námskeið hefst 22. apríl
Glómotion og Ropeyoga - Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Dökkt súkkulaði er allra meina bót
Það verður að vera dökkt og innihalda lítið af aukaefnum

Dökkt súkkulaði er allra meina bótDökkt súkkulaði inniheldur mikið magn af andoxunarefnum, næstum átta sinnum meira en í jarðarberjum. Súkkulaði er unnið úr kakóbauninni sem er ein næringarríkasta náttúruafurð sem þú finnur á jörðinni, pakkfull af andoxunarefnum.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að dökkt súkkulaði sé gott til þess að fyrirbyggja hjartavandamál og minnka líkur á krabbameini. Dökkt súkkulaði inniheldur andoxunarefni sem heitir flavonoids. Mjólkursúkkulaði hefur ekki sömu áhrif þar sem mjólkin dregur úr virkni andoxunarefnisins. En þrátt fyrir þessar jákvæðu rannsóknir þá inniheldur súkkulaði margar kaloríur svo það er ekki gott að borða of mikið af því. Mælt er með 100g á dag af dökku súkkulaði.
Ásetningur næringar - fyrirlestur 12. apríl
Fyrirlestur Guðna Ásetningur næringar - hámarks brennsla
 
Guðni á TEDx Vantar þig hvatningu til þess að breyta mataræðinu? Vantar þig upplýsingar um hvernig þú eigir að fara að því að taka fyrsta skrefið til velsældar? Viltu upplýsingar og hvatningu til þess að komast í gírinn?

Guðni Gunnarsson heldur fyrirlestur um ásetning næringar og hvernig þú getur tryggt hámarks brennslu og orku. í daglegu lífi Fyrirlesturinn fjallar meðal annars um hvernig við veljum næringu sem þjónar ásetningi okkar meðvitað eða ómeðvitað. Farið er í gegnum ferli og vana sem við erum föst í gagnvart mat og matarvenjum okkar. Þetta er fyrsta skrefið fyrir marga sem vilja komast í gírinn og lifa í velsæld. Við tökum vel á móti þér. Láttu sjá þig!
 
Fyrirlesturinn hefst fimmtudagskvöldið 12. apríl kl. 19.10-21.00 og fer fram í Rope Yoga Setrinu, Listhúsi við Engjateig 17 í  Laugardal.

Verð 1.950 kr.

Skráðu þig núna, smelltu hér!
Vissir þú að engifer er góður bólgubani?
Heilsumolar frá Sollu Eiríks

Solla EiríksVissir þú að...

... wasabi er í raun japönsk "piparrót" og í heilsubúðum má fá hreint wasabi-duft sem er hrært út í vatn og er þá komið fyrsta flokks ekta wasabi?

... tamari-sósa er hin upprunalega sojasósa? Hún er látin gerjast í sérstökum eikarkerum í 18 mánuði og þá hafa myndast ýmsar góðar bakteríur fyrir þarmaflóruna. Hægt er að nota tamari-sósu alls staðar í staðinn fyrir sojasósu.

... hægt er að nota avókadó í staðinn fyrir mangó í salsað? Þá er gott að skera avókadóið í litla bita, setja það í skál og kreista út á það örlitlu af zítrónu-/límónusafa, strá því næst nokkrum kornum af nýmöluðum svörtum pipar yfir ásamt smávegis af himalaya-salti og bæta restinni af hráefninu út í. Einnig má nota bæði avókadó og mangó.

... fyrir þá sem það vilja er hægt að skera niður smávegis af reyktum laxi eða silungi og byrja á að setja 1 bita á pönnsuna, síðan salsa og enda á kasjúrjóma eða sýrðum rjóma?

... Prófið að rífa ferska engiferrót á rifjárni og kreista síðan úr henni safann. Ykkur mun undra hve safarík hún er. Hratið er upplagt að setja í þvottapoka, loka honum með teygju og setja síðan út í baðvatnið. Ótrúlega bólgueyðandi ...

Gangi ykkur sem allra best
Solla
Nýtt orku- og aðhaldsnámskeið hefst 13. apríl
Námskeiðið veitir þér stuðning til þess að breyta lífi þínu
 
Guðni Gunnarsson"Fyrir þá sem sannarlega vilja breyta lífi sínu, þá er þetta gríðarlega mikilvægt og öflugt námskeið. Það veitir stuðning til þess að breyta hegðun til betri vegar á 6 vikum og lætur engan ósnortinn, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Þú mund læra að breyta ferli matar og neyslu, hreyfingar og hugsunar.

Námskeiðið fer fram á þriðjudögum frá kl. 19-22 og fimmtudögum frá kl. 20:15-21:25. Á þriðjudögum eru fyrirlestrar, verkefnavinna og horft á stutt myndbönd til stuðnings fræðslunni og á fimmtudögum er klukkustundar iðkun í Ropeyoga."

Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 13. apríl og fer fram í Listhúsinu Laugardal næstu sex þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 19.00 til 22.00 (þri) og 20:15-21:25 (fim).

Lestu meira um Orku- og aðhaldsnámskeið á Ropeyogasetrid.is

Skráðu þig núna, smelltu hér!

Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Karlmenn sem vinna ættu að blunda af og til
Rannsókn bendir til að karlar sem leggja sig fá síður hjartaáföll

Hvíld á skrifstofunni borgar sigRannsókn gerð í Grikklandi bendir til þess að þeir sem eru á vinnumarkaði og leggja sig yfir daginn eiga minni líkur á því að fá hjartaáfall en þeir sem ekki leggja sig. Draga má þá ályktun að það tengist streitu og álagi sem minnki við að fá sér blund.

Rannsóknin var gerð á 23.000 vinnandi körlum, en þessi fylgni á milli þess að leggja sig og minni áhættu fannst aðeins hjá karlmönnum á vinnumarkaði, en ekki þeim sem eru atvinnulausir eða komnir á eftirlaun. Eins á þetta ekki við um konur samkvæmt rannsókninni!
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 22. mars 2010
Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Robert Young í Setrinu 10. apríl
Guðni talar um framgang
Himnesk uppskrift frá Sollu
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Kennaranámskeið 22. apríl 2010
Dökkt súkkulaði er allra meina bót
Ásetningur næringar hámarks brennsla
Heilsumolar frá Sollu Eiríks
Orku- og aðhaldsnámskeið
Deildu fréttabréfinu!
Karlar ættu að leggja sig
Áður útgefin fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!