NewHeader09
Kæru vinir!

Ertu nokkuð með "þegar veikina"? Ætlar þú að komast í form þegar... ?
 
Við veitum þér aðhald til þess að þú getir náð markmiðum þínum.
 
Ný námskeið eru að hefjast, skráðu þig strax!!
 
Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Glómotion námskeið hefjast 29. og 30. mars
Ekki fresta skráningu, kláraðu málið á netinu núna!
Guðni talar um trúfestu og heiðarleika
"Tengdamóðir mín sagði eitt sinn að ég væri öfgamaður"

Guðni Gunnarsson"Trúfesta er heiðarleiki, það er skemmtilegt að segja frá því að Anna tengdamóðir mín sagði eitt sinn að ég væri öfgamaður. Mér fannst það skemmtilegt en bað um nánari skýringu. Þá sagði hún, "þú ert eini maðurinn sem ég þekki sem stendur við allt sem hann segir", það taldi hún skýringu á öfgum, vissulega sagt í gríni.

Trúfestunni er best lýst þannig að maður lofar sér til fulls, maður segir satt. Það má geta þess í þessu samhengi að það að vera agaður þýðir að maður stendur við það sem maður lofar eða segir. Annað sem skiptir máli er að seinni hlutinn af orðinu trúverðugur vísar til heimildarinnar sem við veitum okkur sjálfum. Það er ekki nema við séum verðug sem við leyfum okkur velsæld. Það sem að skiptir máli við fyrri hluta orðsins er orðið trú. Þegar maður trúir þá er maður að treysta, allt sem þú trúir verður.

Heitbindingin er forsendan fyrir því að alheimurinn fái skýr skilaboð um væntingar okkar og markmið. Þegar maður loksins heitbindur sig þá fyrst tekur tilveran okkur alvarlega og fer að vinna með okkur í samræmi við yfirlýstar áætlanir og markmið. Þegar maður stendur síðan við fyrirætlanir sínar, þá er maður að treysta sína eigin tilvist og um leið styrkja sig sem verðugan skapara. Þetta veitir svo heimild til velsældar."

Það tekur aðeins örfáar mínútur að ganga frá skráningu á námskeið. Smelltu hér!"

Smelltu hér til þess að fá bókina Lífsráðgjafann án endurgjalds! Þú getur lesið allt um skrefin 7 til velsældar
Himnesk uppskrift frá Sollu
Gazpacho m/sítrónugrasi og kókosvatni - meira á himnesk.is

Konfektmolar

Gerlaust
Mjólkurlaust
Sykurlaust

Uppskrift:

1 ferna (500 ml) kókosvatn frá Dr. Martins
1 ds (500 ml) tómasósa með grænmeti (hægt að nota ferska tómata í staðin)
1 tsk gerlaus grænmetiskraftur*
1 hvítlauksrif
2 cm biti ferskur engifer
1 lime, safi + kjöt
10 cm biti sítrónugras
2 limelauf
4 lífrænar döðlur*
1 tsk karrý
2-4 cm ferskur chilli eða ¼ tsk malaður
himalaya/sjávarsalt
4 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar
2 tómatar, kjarnhreinsaðir og skronir í litla teninga
½ agúrka, skorin í litla teninga
1 dl rauð paprika í litlum teningum
ferskur kóríander

sejtið kókosvatn, salsa pronta, grænmetiskraft, hvítlauk, engifer, lime, sítrónugras, limelauf, döðlur, karrý og chilli í balandara og blandið vel. Smakkið súpuna til með salti. Setjið súpuna í skál og bætið niðurskornu grænmetinu útí, saxið niður ferskan kóríander og setjið útá og berið fram. Þessi súpa er bæði frábær eins og hún kemur úr blandaranum eða hituð í potti.


Við þökkum Sollu kærlega fyrir þessa uppskrift og hvetjum ykkur að skoða fleiri á himnesk.is og koma á Gló í Listhúsi við Engjateig og gæða ykkur á hráfæðiréttum Sollu.
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
gudni lyfta
"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir.

Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga.

Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar."

Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
Kennararéttindi - námskeið hefst 22. apríl
Glómotion og Ropeyoga - Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Hvað er Bowentækni?
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir bowentæknir skrifar

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir bowentæknirBowentækni er áhrifarík, slakandi og heildræn meðferð. Hún hefur áhrif á ólíklegustu kvilla og verki og er alls hættulaus. Það sem gerir Bowentækni eina af mest spennandi meðferðum í boði í dag er að í stað þess að meðhöndlari sé að vinna á svæði þar sem vandamálið er, virkjar meðhöndlari hæfni heilans til að laga eigin vandamál með röð sérstakra hreyfinga.
 
Til að nefna dæmi um þá kvilla sem hún hefur góð áhrif á eru bakverkir, stoðkerfisvandamál (í öxlum og mjöðmum), astmi, mígreni, ungbarnakveisu, ofvirkni, þunglyndi, streitu, íþróttameiðsl, meltingartruflanir, svefnleysi og margt fleira.

Þetta hefur reynst vel í íþróttaheiminum. Flestir íþróttamenn sem fá Bowentækni meðferðir, segja hana gera þeim kleift að jafna sig fyrr af meiðslum, vera fyrirbyggjandi,  auka hreyfigetu þeirra og bæta frammistöðu í leikjum.

Smelltu hér til þess að lesa meira um Bowentækni á ropeyogasetrid.is
Ásetningur næringar - fyrirlestur 12. apríl
Fyrirlestur Guðna Ásetningur næringar - hámarks brennsla
 
Guðni á TEDx Vantar þig hvatningu til þess að breyta mataræðinu? Vantar þig upplýsingar um hvernig þú eigir að fara að því að taka fyrsta skrefið til velsældar? Viltu upplýsingar og hvatningu til þess að komast í gírinn?

Guðni Gunnarsson heldur fyrirlestur um ásetning næringar og hvernig þú getur tryggt hámarks brennslu og orku. í daglegu lífi Fyrirlesturinn fjallar meðal annars um hvernig við veljum næringu sem þjónar ásetningi okkar meðvitað eða ómeðvitað. Farið er í gegnum ferli og vana sem við erum föst í gagnvart mat og matarvenjum okkar. Þetta er fyrsta skrefið fyrir marga sem vilja komast í gírinn og lifa í velsæld. Við tökum vel á móti þér. Láttu sjá þig!
 
Fyrirlesturinn hefst fimmtudagskvöldið 12. apríl kl. 19.10-21.00 og fer fram í Rope Yoga Setrinu, Listhúsi við Engjateig 17 í  Laugardal.

Verð 1.950 kr.

Skráðu þig núna, smelltu hér!
Lækningarmáttur hunangs
Solla Eiríks skrifar um hunang og lækningarmátt þess

Solla EiríksHunang hefur verið þekkt fyrir lækningamátt sinn í yfir 4000 ár. Í Egyptalandi til forna voru yfir 500 náttúrulyf byggð á hunangi í grunninn. Og hjá Grikkjum var hunang í sérstöku uppáhaldi, það þótti allra meina bót og voru þeir sérstaklega duglegir að nota það útvortis á ýmis húðvandamál og bólur.

Það var líka ómissandi þáttur í grísku eldhúsi, notað bæði í mat og drykk. Nútímarannsóknir sýna að þeir hafa vitað sínu viti því hunang er sagt innihalda bæði vítamín, steinefni, amínósýrur og andoxunarefni sem hafa græðandi áhrif á húðina. Hunang hefur líka verið vinsælt efni í snyrtivörum vegna mýkjandi og græðandi eiginleika þess.

Það er ýmislegt sem notað hefur verið út í hunangið. Má þar m.a. nefna nýkreistan sítrónusafa, eplaedik og kanil.

Vissir þú að...

... hægt er að búa til bólueyði úr hunangi og kanil? Hrærið ½ tsk. af kanil saman við 1 msk. af hunangi, berið á bólurnar fyrir svefninn og skolið morguninn eftir með volgu vatni.

... heimagerðan varasalva er einfalt að búa til? 2 msk. bývax + 2 msk. hunang + 1 msk. kaldpressuð kókosolía.

... það tekur 50 þúsund býflugur eitt ár að framleiða 300 kg af hunangi.

Gangi ykkur sem allra best
Solla
Nýtt orku- og aðhaldsnámskeið hefst 13. apríl
Námskeiðið veitir þér stuðning til þess að breyta lífi þínu
 
Guðni Gunnarsson"Fyrir þá sem sannarlega vilja breyta lífi sínu, þá er þetta gríðarlega mikilvægt og öflugt námskeið. Það veitir stuðning til þess að breyta hegðun til betri vegar á 6 vikum og lætur engan ósnortinn, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Þú mund læra að breyta ferli matar og neyslu, hreyfingar og hugsunar.

Námskeiðið fer fram á þriðjudögum frá kl. 19-22 og fimmtudögum frá kl. 20:15-21:25. Á þriðjudögum eru fyrirlestrar, verkefnavinna og horft á stutt myndbönd til stuðnings fræðslunni og á fimmtudögum er klukkustundar iðkun í Ropeyoga."

Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 13. apríl og fer fram í Listhúsinu Laugardal næstu sex þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 19.00 til 22.00 (þri) og 20:15-21:25 (fim).

Lestu meira um Orku- og aðhaldsnámskeið á Ropeyogasetrid.is

Skráðu þig núna, smelltu hér!

Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Námskeið fyrir karlmenn hefst 7. apríl
Ropeyoga fyrir karla, áhersla á liðleika og þol

Golf sveifla
Karlanámskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess að við erum með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir og konur. Ropeyoga tekur mjög vel á þessum þáttum. Stirðleiki í baki og fótleggjum er meiri hjá karlmönnum en konum. Næring karlmanna er oft grófari en kvenna, það hefur áhrif á líkamsbyggingu og mýkt líkamans, þannig að af ýmsu er að taka fyrir karlmenn. Við höfum því sérsniðið námskeiðið fyrir karlmenn. Ropeyoga er afburða góð íþrótt og skilar miklum árangri.

Kennari á þessu námskeiði er Brynjólfur Jónatansson, virtur ropeyoga kennari og yogakennari, með aðkomu Guðna Gunnarssonar.

Það er auðvelt að skrá sig, skoðaðu námskeið og tímasetningar á Ropeyogasetrid.is


Skráðu þig á karlanámskeið strax í dag! Næsta námskeið hefst 12. apríl.
Smelltu hér

Næringarmolar - engin epli rétt fyrir svefninn
Mataræði skiptir máli þegar tekin eru inn sýklalyf

KaffibolliEkki er mælt með því að fólk borði epli seint á kvöldin rétt fyrir svefninn. Epli framkalla sýrumikla meltingarstarfssemi sem getur leitt til þess að fólk á erfitt með að sofna, það á sérstaklega við um börn.

Það tekur líkamann u.þ.b. 90 mínútur að vinna úr vökva. Því er ekki ráðlegt að drekka mikið magn fyrir svefninn, þú gætir vaknað og þurft að fara á salernið.

Þau sem eiga erfitt með að sofna á kvöldin ættu að athuga hvort koffíndrykkja eða gosdrykkja hafi verið neytt síðustu 3-6 tíma fyrir svefn. Þeir sem eru koffínnæmir ættu að sleppa kaffidrykkjum a.m.k. 6-8 tímum fyrir háttatíma. Gosdrykkja og neysla sykurs er ekki góð fyrir svefninn.

Þau sem taka inn sýklalyf ættu að minnka neyslu á mjólkurvörum, gosi, kaffi og sætindum eins og hægt er. Þessar matvörur fara ekki vel saman í maga með sýklalyfjum og læknar víða erlendis ráða fólki frá því að neyta þeirra við afhendingu lyfseðils. AB mjólk og acidophilus eru hins vegar góð fyrir magaflóruna þegar sýklalyf eru tekin.
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
"Tengdamamma sagði að ég væri öfgamaður"
Himnesk uppskrift frá Sollu
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Kennaranámskeið 22. apríl 2010
Hvað er Bowentækni?
Ásetningur næringar hámarks brennsla
Lækningarmáttur hunangs
Orku- og aðhaldsnámskeið
Nýtt námskeið fyrir karlmenn
Molar um næringu
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!