NewHeader09
Brosandi blómGleðilegt sumar!
 
Við treystum því að þið njótið sumarblíðunnar og hugsið vel um sál og líkama með útivist og lífrænni næringu!
Ný námskeið eru að hefjast 17. og 18. maí, skráðu þig strax!!
 
Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Ný námskeið hefjast 17. og 18. maí
Þakklæti er uppljómun
 
"Guðni GunnarssonÞakklæti er uppljómun. Þegar maður er sannarlega þakklátur þá upplifir maður sterka tilfinningu velsældar og allsnægta. Þ.e. þegar maður er þakklátur þá vantar ekki neitt. Nú er ég ekki að tala um að hugsa um þakklæti eða segjast vera þakklátur heldur að finna fyrir þakklæti. Þegar það gerist er maður í núinu, augnablikinu og upplifir sannarlega velsæld.
 
Ef við skoðum andstæðu þakklætis, þá er það höfnun, viðnám, sjálfsvorkunn, þreyta, skortur. Í nútíma samfélagi verjum við mikilli orku í það að ætla að verða hamingjusöm og þakklát þegar við erum búin að ná tilteknum árangri eða markmiðum. Við lítum á gjafir tilverunnar oft sem áreiti frekar en ábendingu. Við finnum aðeins það sem við leitum að.
 
Ef maður byrjar daginn á því viðhorfi að ætla sér að finna fyrir velsæld, ást og allsnægtum, t.d. með því að horfa á fjölskyldu sína, maka og/eða börn og skoða hvað það er sem maður er þakklátur fyrir, þá verður niðurstaðan mjög líklega önnur en þegar maður byrjar á því að velta því fyrir sér hvað er að.
 
Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Við vitum að hvort sem við veitum því athygli sem við viljum eða viljum ekki, þá dafnar það með sama hætti. Ábendingin er að veita þakklætinu athygli, næra það og rækta eins og hvert annað blóm, þannig að það vaxi og dafni og gefi af sér ilm. Ekki að veita illgresinu eða skortinum athygli vegna þess að líkur eru á að það dafni á sama máta.
 
Þakklæti er val og þegar þú velur að vera í hugarástandi þakklætis og ferð að telja það sem ég kalla blessanir þínar í staðinn fyrir böl, þá fjölgar þessum blessunum jafn óðfluga og bölinu fækkar. Þú getur æft þig að vera í þakklæti t.d. með því að hugsa um allt sem þú hefur til þess að vera þakklát(ur) fyrir. Smám saman eykur þú þannig umfang þakklætisins. Þegar þú tengir þakklætið tilfinningalega þá fyrst öðlast þakklætið mátt.
 
Kennaranám í Kundalini jóga
Kynning fimmtudaginn 27. maí í Ropeyoga Setrinu kl 19-21

Kundalini yoga
Kundalini jóga er stundum kallað móðir allrar jógaiðkunar.  Það býður upp á virkar leiðir til að takast á við álag nútímans.   Kundalini jóga er mjög"dýnamískt" - æfingarnar byggja á hreyfingu, takti og kröftugri öndun og eru bæði ætlaðar til að styrkja líkamann, gera hann sveigjanlegri og skapa innra jafnvægi - í taugakerfi, innkirtlakerfi og ónæmiskerfi.  Hugleiðsla er mjög aðgengileg og mikilvægur þáttur í Kundalini jóga.
 
Kennaranámið hefst í september 2010.  Kennarar koma víða að úr heiminum og allir með langa reynslu að baki.
 
Í kennaranáminu lærir þú um:  Orkustöðvarnar - möntrur - uppruna jóga, Kundalini-leiðina - jógískan lífsstíll (mataræði og rytma) - Asana og kriya (jógastöður og æfingar) - pranayama (öndunaræfingar) - hugleiðslu - mannspeki (samskipti og kynferði) - sálina; fæðingu, karma, dharma - Patanjali (jógíska heimspeki) - dauðann og það að deyja - djúpslökun og sjálfsstjórn.
 
Kynningin verður fimmtudaginn 27. maí, frá kl 19-21 í Ropeyoga Setrinu við Engjateig.  Dagskrá: Kynning á kundalini jóga og á náminu.  Jóga og hugleiðsla.  Spjall á eftir. 

Nánari upplýsingar á www.andartak.is.
Grillaðu grænmeti í sumar!
 
Grillað grænmetiNýttu góða veðrið og uppskeru sumarsins til þess að grilla lífræna rétti. Hér eru nokkrar hugmyndir.

Best er að grilla eggaldin við mikinn hita. Það er tilvalið að marinera það með ólívuolíu, hvítlauk og sítrónusafa. Eins er gott að setja mulin sesamfræ yfir þegar búið er að grilla það.

Maísstangir eru vinsælar á grillið, bættu við hvítlaukssmjöri eða útbúðu marineringu með hvítlauki, ólívuolíu og stráðu svo dassi af sjávasalti yfir áður en stöngin er borðuð.

Sveppir eru yfirleitt mjög safaríkir og því þorna þeir ekki þegar þeir eru steiktir eða grillaðir við mikinn hita. Tilvalið að skella nokkrum á grillið og hafa sem meðlæti.

Ef þú hefur ekki prufað að grilla paprikur, þá vitum við hvað þú setur næst á grillið. Gott er að grilla þær stutt og skella beint á matardiskinn.

Marineraðu ferskan aspass með smá ólívuolíu og léttkryddaðu með salti og pipar. Settu grillið á háan hita og snöggeldaðu aspassinn á grillinu.
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Nokkrar tillögur að breyttu mataræði
Það er mikilvægt hvernig maður borðar, ekki bara hvað!

Konur troða í sig kökumÞað er ekki síður mikilvægt að skoða ferlin tengt matarvenjum okkar en vali á réttum. Fyrir þá sem hyggjast gera breytingar á mataræði er miikilvægt að skoða hvernig hegðun manns er í kringum mat.

Eitt af lykilatriðunum er að tyggja matinn vel og vandlega. Fólki hættir til að moka matnum í sig og fylla magann okkar af ómelltri fæðu. Munið að meltingin hefst í munninum, njótið bragðsins af hverjum munnbita og takið eftir því hvernig áferðin af matnum sem þið borðið er í munninum á ykkur.

Hver máltíð ætti að vera hugleiðsla, stund sem þú nýtur að næra þig í velsæld.

Mikilvægt er að velja sér félagsskap fyrir máltíðir. Ef þú ert að taka þig á eða breyta um lífsstíl, þá er mikilvægt að fara í mat með þeim sem aðhyllist svipaðan lífsstíl. Eins er hætta á að maður moki í sig umhugsunarlaust þegar maður situr ein(n) fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna.

Hlustaðu á líkamann. Ef það er ekki langt síðan þú borðaðir gæti verið að þú sért ekki raunverulega svöng/svangur. Prufaðu að fá þér vatnsglas og taktu eftir hvort hungurtilfinningin slokknar.

Borðaðu morgunmat og nokkrar litlar máltíðir yfir daginn. Ekki borða fáar og stórar máltíðir, minni máltíðir og oftar er mun betra.

Veldu litríkt og ferskt þegar þú færð þér að borða. Ekkert jafnast á við góða hráfæðismáltíð, mundu bara að líkaminn þarf lífrænt fæði til þess að endurnýja sig á heilbrigðan og náttúrulegan hátt.
Breyttur opnunartími á Gló 11-20 virka daga
Haltu þig við hollustuna allan daginn á Gló

N�tt �r 2010Veitingastaðurinn Gló við Engjateig 17-19 er nú opinn alla virka daga frá kl. 11 til 20. Á laugardögum er opið frá kl. 11 til 15.

Með breyttum opnunartíma geta viðskiptavinir komið og borðað hollan og ljúffengan kvöldverð í notalegu umhverfi eða tekið hollustuna með sér heim.

Minnum á vinsælu hráfæðiréttina hennar Sollu Eiríks sem hafa slegið í gegn.

Hlökkum til að sjá ykkur á Gló :)
 
Hvað hefur áhrif þegar við hittum annað fólk?

Brosandi kona
Þegar við hittum fólk í fyrsta sinn, tökum við yfirleitt eftir útliti þeirra, fatavali, viðmóti og hreinlæti.

Þegar fólk ilmar vel, er með flotta hárgreiðslu og klæðir sig snyrtilega þá hefur það iðulega jákvæðari áhrif heldur en þegar við mætum illa lyktandi og illa klæddu fólki. Vandinn er sá að þeir sem lykta illa gera sér ekki alltaf grein fyrir því sjálfir.

Því er mikilvægt að gæta að eigin hreinlæti á hverjum degi áður en farið er að heiman. Það er til fólk sem telur að það sé ekki nauðsynlegt að bursta tennurnar, en andremma getur verið fylgikvilli þess að bursta sig ekki a.m.k. tvisvar sinnum á dag, auk tannskemmda og sára í tannholdi.

Sumir geta aðeins farið einu sinni í föt á milli þvotta vegna svita og líkamslyktar sem sest í fötin, aðrir geta notað sömu fötin oftar. Lykilatriði er að fara í sturtu á morgnana og skola af sér svita og flösu, muna svo eftir að nota svitalyktareyði og ilmvatn/rakspíra. Það getur gert gæfumun að fara reglulega í klippingu, pantaðu næsta tíma strax að lokinni klippingu og settu í dagatalið.

Það hjálpar líka að eiga skóbursta og lit í skóskápnum og renna yfir skóna þegar þess þarf. Ekki má gleyma góða skapinu, ekkert jafnast á við sólskinsbros á björtum degi. Nóg er af fúlum Fúsum þarna úti, einlægt bros gæti bjargað deginum hjá einhverjum sem á það svo innilega skilið!
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
 
gudni lyfta"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir.

Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga.

Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar."

Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
Ropeyoga vörurnar fást hjá Hreysti
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Lesa meira / kaupa vöru

Ropeyoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Rope Yoga ferðasettGrunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

Lesa meira / kaupa vöru
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 10. maí 2010
Fréttabréf 2. maí 2010
Fréttabréf 26. Apríl 2010
Fréttabréf 19. Apríl 2010
Fréttabréf 12. Apríl 2010
Fréttabréf 6. Apríl 2010
Fréttabréf 30. mars 2010
Fréttabréf 22. mars 2010
Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Guðni um þakklæti
Kynning á kundalini jóga
Grillaðu grænmeti í sumar
Deildu fréttabréfinu!
Breytt mataræði, breytt hegðun
Kvöldopnun á Gló
Ertu snyrtileg(ur)?
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Ropeyoga vörurnar hjá Hreysti.is
Áður útgefin fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!




Alkemistinn.is

Við mælum með húðvörum og snyrtivörum frá Alkemistinn.is