NewHeader09
Kæru vinir!

Þriggja vikna 24 kvikmynda veisla hefst í Regnboganum 16. apríl. Meðal þeirra mynda sem þar verða sýndar eru: The Living Matrix og Food Inc. sem enginn ætti að láta fram frá sér fara.


 Ný námskeið eru að hefjast í glómotion og rope yoga byrjendur, skráðu þig strax!!
 
Rétti tíminn er núna!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Ný námskeið hefjast  - vertu með!
Enn pláss á Glómotion framhaldsnámskeið sem hefst 12. apríl!

Þriggja vikna 24 kvikmynda veisla hefst í Regnboganum 16. apríl

Græna Ljósið yfirtekur Regnbogann

the living matrixVið ætlum að yfirtaka Regnbogann í þrjár heilar vikur og frumsýna 24 gæðamyndir. Tvær frábærar myndir voru að bætast við The Cove og The End of the Line. Innan skamms kynnum við sýningardagskrána, fyrirkomulag varðandi sölu á pössum osfrv - fylgist með hér á síðunni!

Þær myndir sem Rope Yoga Setrið mælir helst með og er að hvetja alla til að sjá eru í flokki sem heitir umhverfið og eru:

THE LIVING MATRIX
THE SCIENCE OF HEALING
Hér eru afhjúpaðar nýstárlegar hugmyndir um þann flókna vef ólíkra þátta sem ákvarða heilsu okkar.

Rætt er við vjölda sérfræðinga úr ýmsum áttum sem hafa rannsakað málið og komist að því að orku- og upplýsingasvið ráða heilsu og velferð manna.

Myndinni hefur verið líkt við "What the Bleep Do We Know" sem Græna ljósið gaf út fyrir nokkrum árum og naut mikilla vinsælda um allan heim.

FOOD, INC
Sláandi, stórkemmtileg og einkar fróðleg heimildarmynd um matvælavinnslu samtímans og áhrif hennar á líf okkar og heilsu.

THE COVE
Sérþjálfaðra og hátæknivæddir umhverfissinna afhjúpa ljótan sannleik í vík nokkurri í Japan. Vann Óskarinn í ár sem heilmdarmynd ársins.

THE END OF THE LINE
Sláandi heimildarmynd um áhrif ofveiði samtímans á höf heimsins. Hér er sýnt fram á að á næstu 50 árum gætu fiskistofnarnir þurrkast út.

Hér eru frekari upplýsingar um hátíðina og myndirnar:

Hér er miðasala og dagskrá:


Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
gudni lyfta
"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir.

Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga.

Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar."

Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
Kennararéttindi - námskeið hefst 22. apríl
Glómotion og Ropeyoga - Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér

Kona að iðka yogaRope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar- og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.

Þátttakendur munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.

Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem aðstoðarkennari.

Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
Sex vikna orku- og aðhaldsnámskeið - Hámarks brennsla hefst 27. apríl!

Orka, aðhald og varanlegur árangur.
LIFÐU LÍFINU LÉTTAR
gudni blar litil


Ásetningur næringar
Vilt þú kraft til að breyta mataræðinu?
Vilt þú stuðning við að taka til í lífi þínu?
Vilt þú hafa meiri orku daglega?
Er erfitt að vakna á morgnana?
Finnst þér stundum eins og einhver annar stjórni lífi þínu?

Ef þú svaraðir JÁ við einni eða fleiri spurningum...
Þá er Ásetningur næringar - Hámarks brennsla 6 vikna námskeið einmitt það sem þú þarft!

Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 27. apríl og fer fram í Listhúsinu Laugardal á þriðjudagskvöldum frá kl. 19.00 til 22.10

Á þessu sex kvölda námskeiði fer Guðni Gunnarsson í gegnum hugrenningatengsl og hegðunarferli varðandi mat, drykk, hreyfingu og lífsstíl. "Þú ert jafn þung(ur) og þú "vilt" vera í dag, enda hafa ákvarðanir þínar í mat og hreyfingu gert þig að því sem þú ert," segir Guðni sem hvetur fólk til þess að taka stjórnina í sínar hendur og axla ábyrgð á þyngd sinni. Markmið námskeiðissins er að skapa þáttakendum meðvitað líkamlegt hlutskipi svo þeir nái þeirri kjörþyngd sem þeir velja og nái að halda henni.

Á námskeiðinu kennir Guðni aðferðir sem hjálpa þátttakendum að þykja vænt um líkama sinn og njóta fyrirgefningarinnar sem er öflugasti meltingarhvati tilverunnar. Jafnframt styrkja þáttakendur líkamann með mismunandi Rope Yoga æfingum, blóðstreymið er aukið og aðferðir sem efla brennslu og styrkja meltinguna eru kynntar.

Verð: 39.900 kr.

Skráðu þig núna!
 
Ásetningur næringar - fyrirlestur 20. apríl
Fyrirlestur Guðna Ásetningur næringar - hámarks brennsla
 
Guðni á TEDxVantar þig hvatningu til þess að breyta mataræðinu? Vantar þig upplýsingar um hvernig þú eigir að fara að því að taka fyrsta skrefið til velsældar? Viltu upplýsingar og hvatningu til þess að komast í gírinn?

Guðni Gunnarsson heldur fyrirlestur um ásetning næringar og hvernig þú getur tryggt hámarks brennslu og orku. í daglegu lífi Fyrirlesturinn fjallar meðal annars um hvernig við veljum næringu sem þjónar ásetningi okkar meðvitað eða ómeðvitað. Farið er í gegnum ferli og vana sem við erum föst í gagnvart mat og matarvenjum okkar. Þetta er fyrsta skrefið fyrir marga sem vilja komast í gírinn og lifa í velsæld. Við tökum vel á móti þér. Láttu sjá þig!
 
Fyrirlesturinn hefst fimmtudagskvöldið 20. apríl kl. 19.10-21.00 og fer fram í Rope Yoga Setrinu, Listhúsi við Engjateig 17 í Laugardal.

Verð 1.950 kr.

Skráðu þig núna, smelltu hér!
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

frettabref76.pngRope Yoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Grunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

KAUPA VÖRU
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.

Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum.  Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.

Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma.  Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.

KAUPA VÖRU
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 22. mars 2010
Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Ný námskeið að hefjast!
Robert Young í Setrinu 10. apríl
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Kennaranámskeið 22. apríl 2010
Ásetningur næringar hámarks brennsla
Deildu fréttabréfinu!
Áður útgefin fréttabréf
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!