Kæru vinir!
Vinsamlega skráið ykkur strax ef þið hafið hug á að vera í ástundun þar sem framboð á tímum í sumar verður takmarkað.
Ný námskeið eru að hefjast í rope yoga byrjendur, skráðu þig strax!! Rétti tíminn er núna!
Með kærleikskveðju og þakklæti, Guðni Gunnarsson Rope Yoga Setrið
|
|
Ný námskeið hefjast - vertu með!
|
|
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
"Glómotion er samblanda af
allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir. Ropeyoga er
grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga. Eins og
þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa
fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður
dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við
ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar." Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
|
|
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum
 Hér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi. Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
|
|
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga ferðasett
Verð 24.900 kr.
Grunnbúnaður
Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og
einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er
orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.
KAUPA VÖRU |
|
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.Verð 69.800 kr.Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg,
knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær
fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa
til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Á þann hátt þjálfar
tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar
nærri.
Hönnunin miðar að því að hvetja notandann
og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við
æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum
við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar
teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið
viðbragð í stað ósjálfráðra.
Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti
og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum. Fólk vill í síauknum mæli
geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði
á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í
flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.
Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum
í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því
áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og
ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni
orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar
umtalsverðum árangri á skömmum tíma. Árangurinn skilar sér helst í
auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi
skapast af reglulegri þjálfun.
KAUPA VÖRU
|
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi
Það
er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma
og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur
upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að
kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn
vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika
leiðtogans með heildrænni lífssýn.
Við
leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og
teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í
hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa
samfélagi okkar allra.
Það sem
við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum.
Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við
fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika
liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.
Lifandi
Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og
styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni
og endurvinnslu.
|
| Rope Yoga Setrið
Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík, Rope Yoga Setrið 535-3800 |