Kæru vinir!
Sex vikna orku- og aðhaldsnámskeið - Hámarks brennsla hefst 27. apríl!
Þriggja vikna 24 kvikmynda veisla hófst í Regnboganum 16. apríl. Meðal þeirra mynda sem þar eru sýndar eru: The Living Matrix og Food Inc. sem enginn ætti að láta fram frá sér fara.
Ný námskeið eru að hefjast í glómotion og rope yoga byrjendur, skráðu þig strax!! Rétti tíminn er núna!
Með kærleikskveðju og þakklæti, Guðni Gunnarsson Rope Yoga Setrið
|
|
Ný námskeið hefjast - vertu með!
|
|
Sex vikna orku- og aðhaldsnámskeið - Hámarks brennsla hefst 27. apríl!
Orka, aðhald og varanlegur árangur. LIFÐU LÍFINU LÉTTAR
Ásetningur næringar Vilt þú kraft til að breyta mataræðinu? Vilt þú stuðning við að taka til í lífi þínu? Vilt þú hafa meiri orku daglega? Er erfitt að vakna á morgnana? Finnst þér stundum eins og einhver annar stjórni lífi þínu?
Ef þú svaraðir JÁ við einni eða fleiri spurningum... Þá er Ásetningur næringar - Hámarks brennsla 6 vikna námskeið einmitt það sem þú þarft!
Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 27. apríl og fer fram í Listhúsinu Laugardal á þriðjudagskvöldum frá kl. 19.00 til 22.10
Á þessu sex kvölda námskeiði fer Guðni Gunnarsson í gegnum
hugrenningatengsl og hegðunarferli varðandi mat, drykk, hreyfingu og
lífsstíl. "Þú ert jafn þung(ur) og þú "vilt" vera í dag, enda hafa
ákvarðanir þínar í mat og hreyfingu gert þig að því sem þú ert," segir
Guðni sem hvetur fólk til þess að taka stjórnina í sínar hendur og axla
ábyrgð á þyngd sinni. Markmið námskeiðissins er að skapa þáttakendum
meðvitað líkamlegt hlutskipi svo þeir nái þeirri kjörþyngd sem þeir
velja og nái að halda henni.
Á námskeiðinu kennir Guðni aðferðir sem hjálpa þátttakendum að þykja
vænt um líkama sinn og njóta fyrirgefningarinnar sem er öflugasti
meltingarhvati tilverunnar. Jafnframt styrkja þáttakendur líkamann með
mismunandi Rope Yoga æfingum, blóðstreymið er aukið og aðferðir sem
efla brennslu og styrkja meltinguna eru kynntar.
Verð: 39.900 kr.
Skráðu þig núna!
|
|
Þriggja vikna 24 kvikmynda veisla hefst í Regnboganum 16. apríl
Græna Ljósið yfirtekur Regnbogann
 Við ætlum að yfirtaka Regnbogann í þrjár heilar vikur og frumsýna 24
gæðamyndir. Tvær frábærar myndir voru að bætast við The Cove og The End
of the Line. Innan skamms kynnum við sýningardagskrána, fyrirkomulag
varðandi sölu á pössum osfrv - fylgist með hér á síðunni! Þær myndir sem Rope Yoga Setrið mælir helst með og er að hvetja alla til að sjá eru í flokki sem heitir umhverfið og eru: THE LIVING MATRIX THE SCIENCE OF HEALING Hér eru afhjúpaðar nýstárlegar hugmyndir um þann flókna vef ólíkra þátta sem ákvarða heilsu okkar. Rætt er við vjölda sérfræðinga úr ýmsum áttum sem hafa rannsakað málið
og komist að því að orku- og upplýsingasvið ráða heilsu og velferð
manna. Myndinni hefur verið líkt við "What the Bleep Do We Know" sem Græna
ljósið gaf út fyrir nokkrum árum og naut mikilla vinsælda um allan
heim. FOOD, INC
Sláandi, stórkemmtileg og einkar fróðleg heimildarmynd um matvælavinnslu samtímans og áhrif hennar á líf okkar og heilsu. THE COVE
Sérþjálfaðra
og hátæknivæddir umhverfissinna afhjúpa ljótan sannleik í vík nokkurri
í Japan. Vann Óskarinn í ár sem heilmdarmynd ársins. THE END OF THE LINE
Sláandi
heimildarmynd um áhrif ofveiði samtímans á höf heimsins. Hér er sýnt
fram á að á næstu 50 árum gætu fiskistofnarnir þurrkast út. Hér eru frekari upplýsingar um hátíðina og myndirnar:
Hér er miðasala og dagskrá:
|
|
Munurinn á Ropeyoga og Glómotion
Guðni talar um þessi mögnuðu æfingakerfi
"Glómotion er samblanda af
allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir. Ropeyoga er
grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga. Eins og
þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa
fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður
dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta. Síðan förum við
ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar." Lestu meira um muninn á Ropeyoga og Glómotion á ropeyogasetrid.is
|
|
Kennararéttindi - námskeið hefst 22. apríl
Glómotion og Ropeyoga - Breyttu heiminum - byrjaðu á sjálfri/um þér
 Rope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir íþróttafræðinga, líkamsræktar-
og sjúkraþjálfara og Hathajógakennara til að auka núverandi þjónustu
með Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfinu.
Námskeiðið fer fram í þremur hlutum. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og
heimspeki. Þátttakendur
munu skila heimavinnu, sýna kunnáttu sína og að námskeiðinu loknu
útskrifast sem Rope Yoga - GlóMotion kennarar.
Á tímabilinu er 25 tíma mætingaskylda í Rope Yoga Setrið sem
aðstoðarkennari.
Nánari upplýsingar hjá Guðna í síma 8436200, skráning á Ropeyogasetrid.is
|
|
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum
 Hér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi. Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
|
|
Ferðasettið með í golfferðina!
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga ferðasett
Verð 24.900 kr.
Grunnbúnaður
Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og
einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er
orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.
KAUPA VÖRU |
|
Tilvalið fyrir þá sem vilja iðka Ropeyoga heima
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is
Rope Yoga æfingastöð, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumynddiskur.Verð 69.800 kr.Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg,
knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær
fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa
til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Á þann hátt þjálfar
tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar
nærri.
Hönnunin miðar að því að hvetja notandann
og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við
æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum
við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar
teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið
viðbragð í stað ósjálfráðra.
Stöðin er úr stáli og mótuðu plasti
og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum. Fólk vill í síauknum mæli
geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði
á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Rope Yoga er þar fremst í
flokki, því stöðin er einföld, ódýr og skilar hámarks árangri.
Stöðin hentar sérstaklega vel einstaklingum
í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því
áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og
ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni
orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar
umtalsverðum árangri á skömmum tíma. Árangurinn skilar sér helst í
auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi
skapast af reglulegri þjálfun.
KAUPA VÖRU
|
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi
Það
er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma
og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur
upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að
kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn
vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika
leiðtogans með heildrænni lífssýn.
Við
leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og
teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í
hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa
samfélagi okkar allra.
Það sem
við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum.
Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við
fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika
liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.
Lifandi
Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og
styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni
og endurvinnslu.
|
| Rope Yoga Setrið
Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík, Rope Yoga Setrið 535-3800 | |
| Skráðu þig á námskeið! |
Smelltu hér!
|
|


Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks
Sjá meira á glo.is |
| |
|