NewHeader09
Nýtt ár 2010Eftir viðburðaríka helgi höldum við áfram að hugsa um sál og líkama!
 
Vertu með í sumar, komdu í jóga og vertu í formi!
 
Rétti tíminn er núna! Skráðu þig!

Með kærleikskveðju og þakklæti,
Guðni Gunnarsson
Rope Yoga Setrið
Guðni um hreyfingu - heilsa er flæði!

"Guðni GunnarssonHeilsa er flæði. Endurnýjun á sér stað í lífinu við áreiti. Það er orðatiltæki sem hljómar þannig, að þegar maður er grænn er maður að vaxa, þegar maður er þroskaður byrjar maður að deyja.

Vöðvar og líffæri sem eru ekki áreitt byrja að rýrna, þar með minnkar flæði og geta líkamans til súrefnisupptöku sem leiðir til minni bruna og umbreytingar í líkamanum. Líkaminn er einfaldlega þannig hannaður að ef það er ekki áhugi, þá er ekki orka. Það skiptir ekki máli hvort það vantar hvata fyrir líkama eða huga, smám saman byrjar kerfið að hægja á sér og flæðið minnkar.

Umfang öndunar er umfang lífsins. Öflugasta leiðin til þess að gera líkamann orkumeiri er að gera hann súrefnishæfari. Þetta má gera á ýmsan máta, en best er þó að gera þetta með blandaðri tækni þannig að virkni vöðva og flæði, s.s. blóðstreymi og súrefnisflutningur sé alltaf sem mestur og að passa að líkaminn stífni ekki og vöðvarnir verði ekki of umfangsmiklir í styrk. Um leið og flæðið eða mýktin minnkar þá minnkar úthald og orka. Jafnvægis skal gætt og blönduð tækni er best ásamt útiveru, því við erum að mörgu leyti lík blómunum sem dafna best í ljósi og birtu."
 
Getur aðeins guðleg orka haldið manni á lífi?
Jógi kveðst ekki hafa borðað né drukkið í áratugi

Prahlad Jani borðaði ekki í áratugi

Nýlega var Indverjinn Prahlad Jani í fréttum en hann sagðist ekki hafa borðað vott né þurrt í áratugi þar sem hann nærðist eingöngu á guðlegri orku að eigin sögn.

Indverska varnarmálaráðuneytið hefur framkvæmt rannsókn þar sem Jani var á hersjúkrahúsi undir stöðugu eftirliti allan sólarhringinn í 10 daga. Hann var settur í myndatökur og rannsakaður í bak og fyrir. Læknar sjúkrahússins segja Jani ekki hafa fengið vott né þurrt allan tímann og ekki hafa skilað frá sér neinum úrgangi.

Samkvæmt niðurstöðum rannsókna var hann við hestaheilsu eftir 10 daga föstun en skv. hefbundnum viðmiðum á líkaminn ekki að geta starfað eðlilega án vatns í 4-5 daga.

Indverska varnarmálaráðuneytið hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir að hafa ekki veitt hlutlausum eftirlitsaðilum aðgang að sambærilegri rannsókn árið 2003, eins er það gagnrýnt fyrir val á læknum sem stýrðu rannsókninni, en miklar efasemdir ríkja um skráningu og framkvæmd rannsókna á Jani.
 
Rannsóknir og tilraunir undanfarna áratugi á öðru fólki sem segist hafa lifað á loftinu árum saman hafa leitt til dauða þeirra sem tóku þátt og í þeim tilvikum sem fólk lifði tilraunina af kom í ljós svindl þar sem viðkomandi aðilar fengu mat og drykk.
Orku- og aðhaldsnámskeið vinsælast
6 vikna námskeið sem veitir þér stuðning til þess að breyta
 
gudni lyfta"Þetta námskeið gengur út á að leysa úr læðingi orkuna sem þú býrð nú þegar yfir. Við kennum fólki að búa til orku og viðhalda henni með því að velja orkuríka fæðu, létta á okkur og hreinsa líkamann andlega, líkamlega og tilfinningalega. Við leyfum okkur ekki að vera upptendruð og lifa lífinu til fulls. Við kunnum ekki að fara með orkuna. Við skiljum ekki að við getum varið henni á mismunandi hátt, við getum valið hvort við verjum orkunni í velsæld eða vansæld.

Þetta er í rauninni kraftaverkanámskeið, þú getur gert nákvæmlega allt sem þú vilt með líf þitt. Það eina sem þú þarft að gera er að virkja orkuna sem þú býrð yfir. Hluti af tilfinningalegu hreinsuninni sem við förum í er fyrirgefning. Við verjum gífurlegri orku í höfnun, vonbrigði og eftirsjá. Við kennum þátttakendum að verja þeirri orku í þann farveg sem það vill. Hvort sem fólk vill grenna sig, létta sig eða vera orkumeira og hressara, þá þurfum við að læra að gera það markvisst, þannig gerast undur og kraftaverk."
 
Deildu fréttabréfinu með vinum þínum
Birtu fréttabréfið á facebook, twitter og fleiri kerfum

Share to facebook, twitter and moreHér neðst í fréttabréfinu fyrir neðan áður útgefin fréttabréf er að finna takka sem heitir Share, eða "deila með öðrum" á íslensku. Þegar smellt er á takkann gefst manni kostur á því að deila fréttabréfinu með vinum og fjölskyldu sem nota facebook, twitter og önnur kerfi.

Eins er hægt að smella á tengilinn Áframsenda á sama stað og Share takkinn er, en þá áframsendir maður fréttabréfið með tölvupósti á valda viðtakendur. Hjálpaðu okkur að koma upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl á framfæri, þér og þínum til velsældar.
Fólk sem telur sig finna óþef af sjálfu sér
 
Kvíði og depurðSálrænn kvilli sem hrjáir einstaka konur og menn er trú þeirra á að þau lykti illa, hvort sem um er að ræða svitalykt, andremmu eða lykt úr klofi, þegar alls engin lykt er af þeim.
 
Þessi kvilli hefur nú fengið skráningu sem sjúkdómur hjá félagi geðlækna í Bandaríkjunum, en þeir telja að á bilinu 1-3 milljónir Bandaríkjamanna þjáist að einhverju leyti af þessum ranghugmyndum þannig að þær trufli daglegt líf þeirra.
 
Rannsókn sem gerð var á 20 einstaklingum sem þjást af kvillanum sýnir að þeir verja a.m.t. 3-8 tímum á dag í fataskipti, sturtu, mintuát og ilmvatnsnotkun. Af þessum 20 er rúmur meirihluti konur og er helsta áhyggjuefni þeirra svitalykt og andremma. Þeir sem þjást alvarlega af kvillanum loka sig af á heimilum sínum svo dögum skiptir og fara ekki á meðal fólks.
 
Hægt er að ná tökum á þessari áráttu með svipuðum meðferðarúrræðum og áráttu-þráhyggju (OCD) þar sem blanda af lyfjagjöf og viðtalsmeðferð hefur hjálpað fólki, en engin greining eða meðferðarúrræði eru hins vegar til fyrir hinn hópinn sem lyktar mjög illa og gerir ekkert í því.
Rannsókn á bætiefnum leiðir ýmislegt í ljós

Kundalini yoga
Rannsókn vestan hafs á bætiefnum og vítamínum leiðir í ljós snefil af þungamálmum og spilliefnum í sumum vörum, auk þess segja sumir framleiðendur bætiefnin lækna hina ýmsu sjúkdóma, m.a. krabbamein og alzheimer.
 
16 af 40 bætiefnum sem rannsökuð voru innihéldu vott af eiturefnum, en stjórnvöld hafa ekki sett hömlur á öll eiturefni sem hafa fundist þar sem rannsóknir á áhrifum þeirra skortir.
 
Lagafrumvarp er í bígerð í bandaríska þinginu sem kemur líklega til með að herða reglur um framleiðslu á bætiefnum og vítamínum, en óvíst er hversu strangt það verður. Eins ber að geta þess að margir stórir framleiðendur hafa flutt verksmiðjur sínar til Kína þar sem bandarísk stjórnvöld hafa ekki gert kannanir eða gæðaprófanir.
Breyttur opnunartími á Gló 11-20 virka daga
Haltu þig við hollustuna allan daginn á Gló

N�tt �r 2010Veitingastaðurinn Gló við Engjateig 17-19 er nú opinn alla virka daga frá kl. 11 til 20. Á laugardögum er opið frá kl. 11 til 15.

Með breyttum opnunartíma geta viðskiptavinir komið og borðað hollan og ljúffengan kvöldverð í notalegu umhverfi eða tekið hollustuna með sér heim.

Minnum á vinsælu hráfæðiréttina hennar Sollu Eiríks sem hafa slegið í gegn.

Hlökkum til að sjá ykkur á Gló :)
 
Hvað er ræktað á hverri árstíð?

Flugvélamatur
Þrátt fyrir að flestir ávextir og grænmeti sé til sölu allt árið um kring vegna ræktunar víðs vegar um heiminn, gróðurhúsaræktunar og aukins aðgengis að heimsmörkuðum, þá er meira framboð á ávöxtum og grænmeti á sumum árstíðum. Listinn hér fyrir neðan sýnir aðeins nokkrar tegundir á hverri árstíð til að gefa hugmynd um hvað fólk eigi að kaupa á hvaða tíma.
 
Á vorin er m.a. ferskur aspass, grænlaukur, grænkál, kartöflur, rauðar radísur, spínat og jarðarber.
Á sumrin eru apríkósur, bláber, kirsuber, eggaldin, ýmis krydd og jurtir, grænar baunir, melónur, ferskjur, plómur, tómatar og zucchini.
Á haustin eru epli, brokkólí, perur, blómkál, spírur.
Á veturna er það hvítkál, gulrætur, sítrus, laukur, rófur og næpur svo eitthvað sé nefnt.

Veldu íslenskt, veldu grænmeti og ávexti frá íslenskum bændum með því að versla við Græna hlekkinn.
Ropeyoga vörurnar fást hjá Hreysti
Þú getur pantað Rope Yoga vörurnar á netinu á Hreysti.is

Rope Yoga æfingastöð.

Verð 69.800 kr.

Rope Yoga æfingastöðin er auðflytjanleg, knýr sig sjálf, og þarf ekkert viðhald. Stöðin inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans.  Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.

Lesa meira / kaupa vöru

Ropeyoga ferðasett

Verð 24.900 kr.

Rope Yoga ferðasettGrunnbúnaður Rope Yoga kerfisins, inniheldur tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægistæki sem knúið er orku mannslíkamans. Æfingakerfi, kenningar og DVD diskur fylgja með.

Lesa meira / kaupa vöru
Kaffi inniheldur andoxunarefni
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar í Bandaríkjunum
 
Nýtt ár 2010
Rannsókn var gerð í Scranton háskóla í Bandaríkjunum og segja rannsóknaraðilar að kaffi sé algengasta neysluvara Bandaríkjamanna sem inniheldur andoxunarefni. Fólk eigi því að njóta kaffibollans, vitandi að kaffið styrki llíkamann jafnvel þó um kaffi án koffíns sé að ræða.
 
Gagnrýnendur rannsóknarinnar segja að gæði andoxunarefnanna séu ekki endilega þau bestu í kaffinu og það sé eins hægt að tala um að hvítt fransbrauð sé trefjaríkasta neysluvaran, það séu vörur sem innihaldi meira magn og betri gæði andoxunarefna en kaffi.
 
Hið jákvæða eru ráðleggingar rannsóknarmanna um að takmarka kaffineyslu við einn bolla á dag, en Bandaríkjamenn drekka að meðaltali mun meira kaffi á hverjum degi.
Skoðaðu áður útgefin fréttabréf
Fréttabréf Rope Yoga Setursins kemur út reglulega

Fréttabréf 10. maí 2010
Fréttabréf 2. maí 2010
Fréttabréf 26. Apríl 2010
Fréttabréf 19. Apríl 2010
Fréttabréf 12. Apríl 2010
Fréttabréf 6. Apríl 2010
Fréttabréf 30. mars 2010
Fréttabréf 22. mars 2010
Fréttabréf 15. mars 2010
Fréttabréf 8. mars 2010
Fréttabréf 1. mars 2010
Fréttabréf 22. febrúar 2010
Fréttabréf 15. febrúar 2010
Fréttabréf 8. febrúar 2010
Rope Yoga SetridFréttabréf 1. febrúar 2010
Fréttabréf 25. janúar 2010
Fréttabréf 18. janúar 2010
Fréttabréf 11. janúar 2010
Fréttabréf 4. janúar 2010
Fréttabréf 30. desember
Fréttabréf 22. desember
Fréttabréf 10. desember
Fréttabréf 23. nóvember
Fréttabréf 10. nóvember
Fréttabréf 2. nóvember
Fréttabréf 19. október
Fréttabréf 12. október
Fréttabréf 5. október
Fréttabréf 28. september
Fréttabréf 21. september
Fréttabréf 14. september
Fréttabréf 8. september
Fréttabréf 31. ágúst
Fréttabréf 24. ágúst
Fréttabréf 17. ágúst
Fréttabréf 10. ágúst
Fréttabréf 5. ágúst
Ásetningur okkar
Við í Rope Yoga Setrinu höfum eftirfarandi að leiðarljósi

Það er einlægur ásetningur starfsmanna Rope Yoga setursins að móta heilnæma og friðsæla umgjörð um hug og heilsurækt, þar sem hver einstaklingur upplifir þá kærleiksríku hvatningu og innblástur sem hann þarf til að kynnast sínum innsta kjarna. Skapa andrúmsloft þar sem þátttakandinn vaknar til vitundar, tekur ábyrgð og tileinkar sér eiginleika leiðtogans með heildrænni lífssýn.
 
Við leggjum áherslu á að rækta hugarástand þakklætis með starfsemi okkar og teljum að með því að laða fram og birta það dýrmæta og fallega í hverjum iðkanda séum við að inna af hendi mikilvæga þjónustu til handa samfélagi okkar allra.
 
Það sem við sjáum og upplifum er sá raunveruleiki sem við sköpum og ræktum. Reynslan hefur kennt okkur að viljum við breyta aðstæðum þá þurfum við fyrst að breyta eigin viðhorfum og viðmóti. Í þeim einfalda sannleika liggur vissa okkar um virkni Ropeyoga í fegurri og kærleiksríkari heimi.

Lifandi Næring með lífræna næringu og umhverfisvænan varning sem nærir og styður ásetning viðskiptavina. Við leggjum áherslu á náttúruleg efni og  endurvinnslu.
 
Rope Yoga Setrið
 
Engjateigi 17-19,
105 Reykjavík,
Rope Yoga Setrið
535-3800
Í þessu fréttabréfi...
Mikilvægi hreyfingar
Jóga og fasta
Nýtt orku- og aðhaldsnámskeið
Deildu fréttabréfinu!
Finnur þú óþef af sjálfri þér?
Rannsókn á bætiefnum
Skráðu þig á námskeið!
Smelltu hér!


glo logo

Nýtt ár 2010

Gló opnaði á nýju ári með Sollu Eiríks

Sjá meira á glo.is

 

Fékkstu þennan póst sendan frá öðrum? Skráðu þig á póstlistann okkar núna. Smelltu hér!




Alkemistinn.is

Við mælum með húðvörum og snyrtivörum frá Alkemistinn.is