Veftímarit um þróunarmál
Þróunarsamvinna  
 Samstarfsþjóðir
12. maí 2010
Sláandi árangur þróunarsamvinnu á síðasta áratug:
Leysir milljónir úr viðjum fátæktar og allsleysis
 gunnisal
"Ríkisstjórn Mósambíkur er með landsáætlun um það hvernig bregðast á við fátækt og ójöfnuði en hún hefur ekki fjármagnað áætlunina af eigin tekjum eingöngu. Þrátt fyrir þetta hefur Mósambík - sem fyrir tuttugu árum var fátækasta ríki í heiminum - aukið framlög til heilbrigðismála um helming, og á síðasta áratug fækkaði börnum sem deyja áður en þau verða fimm ára um fimmtung. Þróunarsamvinna spilar stórt hlutverk í tíðindum sem þessum."
 
Þannig hefst ný skýrsla Oxfam samtakanna um árangursríka þróunarsamvinnu - 21st Century Aid: Recognising success and tackling failure. Í skýrslunni er vakin athygli á því að 1.4 milljarður manna búi enn við fátækt. Sú staðreynd hafi vakið upp efasemdir um árangur þróunarsamvinnu og nýlega leyst úr læðingi gagnrýnisöldu þar sem farið er fram á að dregið verði úr þróunaraðstoð eða henni hætt að öllu leyti.
 
Í skýrslunni er ekki tekið undir síðasta sjónarmiðið en í henni eru hins vegar skoðuð ofan í kjölinn dæmi um þróunarsamvinnu. Ályktað er á þann veg að þótt á mörgum sviðum megi koma við endurbótum bjargi vönduð 21. aldar þróunaraðstoð ekki aðeins mannlífsífum heldur sé hún ómissandi hlekkur í því að gefa almenningi fátækra þjóða tækifæri til að vinna sig út úr örbirgð.
 
Skýrsluhöfundar segja að þótt þróunaraðstoð ein og sér tryggi ekki að allir fátækir geti lifað mannsæmandi lífi geti hún, ásamt réttum kerfisbundum umbótum, leyst milljónir manna úr viðjum fátæktar og allsleysis. Þeir nefna dæmi um skilvirkni og sláandi árangur á síðasta áratug: fjölgun barna í skólum um 33 milljónir, að mestu leyti vegna þess að fátæk ríki hafai fengið aukið þróunarfé til menntamála og skuldaafléttingar. Annað dæmi er nefnt: tíföldun þeirra sem bera HIV smit og eiga þess kost að sækja ART lyfjameðferð, á einungis fimm árum.
 
Í skýrslunni er birtar leiðbeiningar bæði til framlagsríkja og viðtöluríkja um árangursríka þróunarsamvinnu. Varað er við því að þúsaldarmarkmiðunum verði ekki náð nema því aðeins að framlög til þróunarmála verði í samræmi við viðmið Sameinuðu þjóðanna, 0.7%.

Dregur úr fækkun barna sem strita, segir ILO
 gunnisal
Alþjóða vinnumála-stofnunin (ILO) varar við því í nýrri skýrslu að margt bendi til þess í núverandi niðursveiflu í hagkerfum heimsins að tilraunir til þess að draga úr alvarlegustu tegundum barnaþrælkunar skili minni árangri en áður. Stofnunin segir að setja verði nýjan kraft í herferðir til að útrýma þrælkun barna.
 
ILO gefur út fjórða hvert ár ítarlega skýrslu um barnaþrælkun og samkvæmt nýju skýrslunni, sem kom út síðastliðinn laugardag, hefur stritbörnum fækkað úr 222 milljónum í 215 milljónir á fjögurra ára tímabili, 2004-2008, eða um 3%. Fækkunin er mun minni en árin áður, segir ILO, og hefur áhyggjur af því að efnahagskreppan leiði til þess að þeim börnum fjölgi sem neydd verði til að erfiða í stað þess að ganga skólaveginn og njóta æskunnar.
 
Um 60% stritbarna eru í landbúnaði og mörg þeirra þræla sér út án þess að fá laun. Tveggja daga ráðstefna um barnaþrælkun hófst á mánudag í Haag í Hollandi.

 
Frétt ILO: As efforts to end child labour slow, ILO calls for "re-energized" global action
 
Pace of decline in child labour slowing, ILO says (Reuters)
 
A World without Child Labour is Possible, eftir Juan Somavia
 
Dutch report calls for global ban on child labour
 
Vefsíðan 12to12:United to End Child Labour
 
The State of Child Labour Today-viðtal við Constance Thomas framkvæmdastjóra IPEC (ILO International Programme on the Elimination of Child Labour)

Mikill árangur í heilbrigðis-málum þróunarríkja að mati WHO
 gunnisal
Verulega dregur úr barnadauða í þróunarríkjum og sömu ánægjulegu fréttirnar er að segja um vannæringu, HIV og berkla, segir í nýrri ársskýrslu WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Að mati WHO hafa orðið miklar framfarir á þeim sviðum sem þúsaldarmarkmið um heilsu ná til og mörg lönd náð glæsilegum árangri. Nokkur ríki munu þó eiga í erfiðleikum með að uppfylla þúsaldarmarkmiðin fyrir árið 2015.
 
"Þegar fimm ár eru fram að tímamörkum þúsaldarmark-miðanna árið 2105 sjáum við nokkur sláandi dæmi um framfarir," segir í skýrslunni sem byggð er á gögnum frá 193 aðildarríkjum WHO. Líbería, Síerra Leone, Mósambík og Rúanda eru meðal þeirra ríkja sem mestum árangri hafa náð í að fækka börnum sem deyja áður en fimm ára aldri er náð. Fram kemur í skýrslunni að 40% barna sem deyja ung láta lífið á fyrstu mánuðunum.
 
Meðal meginatriða sem fram koma í skýrslunni eru þessi:
  • Færri börn deyja - 30% færri börn deyja innan við fimm ára aldur miðað við árið 1990 og dánartala barna komin niður i 8.8 milljónir árið 2008.
  • Vannærðum börnum fækkar - þau voru 25% allra barna árið 1990 en sú tala er komin niður í 16%.
  • Menntuðu heilbrigðisstarfsfólki sem er viðstatt fæðingar hefur fjölgað á heimsvísu en þó fæða meira en helmingur kvenna í Afríku og suðaustur Asíu án menntaðara ljósmæðra eða annarra heilbrigðisstarfsmanna, að því er segir í skýrslu WHO.
 
Africa Least Likely to Meet Health Targets Set by UN (VOA)
 
Stefnumörkun væntanleg frá Svíum um hlutverk kvenna í þróunarsamvinnu
 gunnisal
Væntanleg er á næstu vikum stefnumörkun af hálfu sænskra stjórnvalda í þróunarsamvinnu, að því er varðar tvennt, annars vegar öryggi og þróun og hins vegar jafnrétti með áherslu á réttindi og hlutverk kvenna í þróunarsamvinnu. Hvoru tveggja undirstrikar stöðu og hlutverk kvenna í átökum og friðaruppbygginu.
 
Sænsk stjórnvöld ætla ennfremur að efna til tveggja alþjóðlegra ráðstefna um þessi mál á næstunni. Fyrri ráðstefnan verður dagana 25. og 26. maí og fjallar um kynferðisglæpi í lýðveldinu Kongó og aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi í landinu. Svíar hafa samþykkt aðgerðaráætlun um leiðir til að stemma stigu við hrottalegu kynferðislegu ofbeldi sem konur verða fyrir í landinu og lýst er m.a. í nýlegri skýrslu frá Oxfam, "Now, The World Is Without Me."
 
 
Hin ráðstefnan sem Gunnilla Carlsson þróunarmálaráðherra Svía og sænsk stjórnvöld standa fyrir verður haldin um miðjan júní með fulltrúum UN Action um leiðir til að hamla kynferðislegu ofbeldi í átökum. Fulltrúar 13 deilda Sameinuðu þjóðanna eiga sæti í UN Action Against Sexual Violence in Conflict.
 

Sweden defends women subjected to sexual violence in conflicts 
 
UN warns Congo to end 'rule by rape'
 
UN official calls DR Congo 'rape capital of the world' (BBC)
Fulltrúum tveggja Afríkuþjóða boðið á G8 leiðtogafundinn
 StockImage
Þegar leiðtogar heimsins ræða málefni Afríku eru fulltrúar álfunnar sjaldnast viðstaddir ef frá er talinn fulltrúi Suður-Afríku. Stephen Harper forsætisráherra Kanada, sem er gestgjafi á leiðtogafundi G20 ríkjanna í næsta mánuði, hefur ákveðið að bjóða fulltrúum tveggja Afríkuríkja sæti við fundarborðið, frá Malaví og Eþíópíu. Þremur fulltrúum öðrum utan G20 ríkjanna, verður líka boðið til fundarins, fulltrúum Hollands, Spánar og Víetnam.
 
Á dagskrá leiðtogafundarins í Kanada verða efnhagsmálin í heiminum í brennidepli .

 
 
Norræna Afríkustofnunin opnar umræðuvettvang á Netinu
 
Norræna Afríkustofnunin hefur opnað umræðuvettvang um málefni Afríku á Netinu, The Nordic Africa Development Policy Forum. Opinbert tungumál á þessum vettvangi verður enska og NAI býður öllum sem áhuga hafa á þróunarmálum í Afríku að taka þátt í umræðunni, fræðimönnum, stjórnmálamönnum, fulltrúum frjálsra félagasamtaka og öllum almenningi sem vill leggja orð í belg.
 
Meðal þeirra sem taka fyrstir til máls eru Erik Solheim þróunarmálaráðherra Norðmanna og skrifar um endurmat á þúsaldarmarkmiðunum, Stefan de Vylder hagfræðingur skrifar líka um þúsaldarmarkmiðin og Martti Ahtisaari fyrrverandi forseti Finnlands skrifar um sáttaumleitanir og friðargæslu.

 
Nánar
 
Climate, Conflict and Capital: -Critical issues for the MDGs and beyond 2015, eftir Erik Solheim, umhverfis- og þróunarmálaráðherra Noregs
 
Veitendur þróunaraðstoðar skera niður framlög um 35% í Úganda
 gunnisal
Veitendur þróunaraðstoðar í Úganda hafa ákveðið að skera framlög til stjórnvalda niður um rúmlega 35% að því er dagblöð í Úganda greina frá. Fulltrúar framlagsríkja hafa kallað eftir lýðræðisumbótum og aðgerðum gegn spillingu í stjórnkerfinu og finnst augljóslega ekki nóg að gert. Nýtt fjárlagafrumvarp verður kynnt í næsta mánuði og samkvæmt frétt Daily Monitor þýðir ákvörðun framlagsríkja að þjóðin sjálf verður að fara dýpra ofan í eigin vasa til þess að fjármagna erlendar lántökur. Blaðið segir að samdráttur verði í hagkerfinu þegar framlög til þróunarmála minnka jafn mikið.
Tvær ljósmyndabækur um fótbolta í Afríku
Páll Stefánsson
"Fótbolti er merkilegur leikur. Það skiptir ekki máli hvort frægustu leikmenn heims spila fyrir framan tugþúsundir áhorfenda eða bara nokkrir berfættir strákar á strönd, reglurnar eru alltaf þær sömu. Það er bolti og það er mark. Þessi tæri einfaldleiki er ástæðan fyrir því að fótbolti er langvinsælasta íþrótt heims. Þessi sannleikur á sérstaklega við í löndum Afríku þar sem boltinn er oft búinn til úr þurrum pálmaviðargreinum, tuskum eða plastpokum. Mörkin eru tveir steinar eða trjágreinar sem stungið er í jörðina. En um leið og þetta er til staðar er hægt að byrja og þá er það geta og kraftur leikmannanna sem ráða úrslitum."
 
Didier Drogba skrifar á þennan hátt upphaf formála í nýja ljósmyndabók Páls Stefánssonar: Africa - the Future of Football. Páll hefur unnið að þessu metnaðarfulla verkefni í rúm tvö ár. Hann og útgefandi hans Kristján B. Jónasson hjá forlaginu Crymogea ferðuðust til 25 landa í Afríku á 30 mánuðum.
 
Svo virðist sem danskur ljósmyndari, Tine Harden, hafi fengið nákvæmlega sömu hugmynd og Páll og Kristján því í gær kom út í Danmörku bókin "A Kick Out Of Africa". Tine ferðaðist til ellefu landa á tveimur árum og tók myndir af fólki og börnum í fótbolta. Bókin er þegar komin út í Suður-Afríku, þar sem heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst eftir fáeinar vikur, og heitir þar "A Game of Passion".
 
Myndin hér að ofan er úr bók Páls Stefánssonar.
 
 
Athyglisvert
 
 
A twelve-point EU action plan in support of the Millennium Development Goals (European Commission)
 
 
 
The Debate over Foreign Aid, eftir Laurie A. Garrett (Council of foreign relations)

 
Afríkudagur á Írlandi
  
From Gossip to Good Global Development, eftir Nancy Birdshall (CGD)
 
Ný bók: 'Nice Children Don't Eat a Lot of Food' - Strained livelihoods and the role of aid in North Wollo, Ethiopia, eftir Pernille Nagel Sørensen and Selome Bekele
 
Veftímaritið er á...
facebook
Kíktu í heimsókn
UNIFEM á Íslandi:
Steinunn til Japan og Inga Dóra tekur við
Inga Dóra Pétursdóttir þróunarfræðingur - og fyrrverandi starfsmaður ÞSSÍ í Malaví - hefur tekið við starfi framkvæmdastýru UNIFEM á Íslandi og tekur við af Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem hélt utan í morgun. "Ég er að fara til Japan og mun starfa þar á nýopnaðri "liaison" skrifstofu UNIFEM í Osaka," sagði hún þegar Veftímaritið náði tali af henni í gærkvöldi. Hún segir að hlutverk sitt og skrifstofunnar verði að bæta samstarf og samskipti við stjórnvöld og fyrirtæki í Japan með það að markmiði að safna meiri fjármunum til verkefna UNIFEM í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum.
 
"Japan var fyrir fáum árum eitt stærsta framlagsríkið til UNIFEM en hefur dregið talsvert úr framlögum sínum. Nú er því ætlunin að bæta sýnileika UNIFEM þar í landi með von um að fá meira fjármagn út úr þessu gríðarstóra hagkerfi," segir Steinunn.
 
 
Þrír fyrirlesarar ÞSSÍ á jarðhitaráðstefnu í Níkaragva
Þrír fyrirlesarar á vegum ÞSSÍ fluttu erindi á jarðhitaráðstefnu í Níkaragva í lok síðustu viku en þá efndi orku- og auðlindamálaráðuneyti landsins til eins dags ráðstefnu um þróun jarðhitamála. Fjórtán erindi voru flutt á ráðstefnunni af ýmsum hagsmunaaðilum í jarðhitageiranum, m.a. frá fulltrúum stjórnvalda, ENEL orkufyrirtæki riksins og virkjunaraðilum. Gísli Pálsson sviðsstjóri orkumála hjá ÞSSÍ og fyrrverandi umdæmisstjóri ÞSSÍ í Níkaragva, Þráinn Friðriksson jarðefnafræðingur og Gioconda Guevara verkefnastjóri jarðhitaverkefnis ÞSSÍ í Níkaragva.
 
Þráinn flutti einnig fyrir skömmu erindi á ráðstefnu um orku og umhverfismál í rómönsku Ameríku en sú ráðstefna var haldin í Panama. Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá olíugeiranum, náttúruverndarsamtökum auk vísindamanna og verkfræðinga sem vinna að rannsóknum á endurnýjanlegum orkugjöfum en í erindi sínu greindi Þráinn frá jarðhitaverkefni ÞSSÍ í Níkaragva auk þess sem hann kynnti starfsemi GeoThermHydro í Chile.
 
Fréttir og fréttaskýringar 
 
 
 
 
 
 
 
Kína: To Congo, With Trouble (IPS)
 
Úganda: Cultural Attitudes and Rumors Are Lasting Obstacles to Safe Sex (New York Times)
 
Nýr framkvæmdastjóri tekur við hjá UNICEF
 
UNICEF to provide clean water for Somalia
  
A girls summit to parallel the G-20 summit (The Star)
Um Veftímaritið
Veftímarit um þróunarmál er gefið út af Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Ritinu er ætlað að glæða umræðu um þróunarmál og gefa áhugasömum kost á að fylgjast með því sem hæst ber hverju sinni. Efni veftímaritsins þarf ekki endilega að endurspegla stefnu ÞSSÍ.
          
Skráið ykkur í áskrift á heimasíðunni, www.iceida.is og látið vinsamlegast aðra með áhuga á þróunarmálum vita af tilvist veftímaritsins. Allar ábendingar um efni eru vel þegnar.  

Þeir sem vilja afskrá sig af netfangalista, eða senda okkur ábendingu um efni, eru vinsamlegast beðnir um að senda slík erindi á netfangið iceida@iceida.is. Ritstjóri er Gunnar Salvarsson, gsal@iceida.is. 

Við biðjumst velvirðingar á því að geta ekki notað íslenskar gæsalappír í viðtölum en bandarískt sniðmót Veftímaritsins leyfir ekki notkun þeirra.
 
Bestu kveðjur,
Útgáfu- og kynningardeild ÞSSÍ