©TIME

Veftímarit um þróunarmál
Þróunarsamvinna
 Samstarfsþjóðir
11. febrúar 2009
Stuðningur Norðmanna í fiskimálum:
Lítill ávinningur fátækra fiskimannasamfélaga 
Gsal Milljarðastuðningur við fiskimál hefur styrkt stjórnun, rannsóknir og einkageirann í fjölmörgum þróunarríkjum. Erfiðara er að koma auga á ávinninginn fyrir fátæk fiskimannasamfélög. - Þetta kemur fram í glænýrri úttektarskýrslu um stuðning Norðmanna í fiskimálum í sunnanverðri Afríku á árunum 1985 til 2006. 
 
Í úttektinni, sem unnin var af breska fyrirtækinu MRAG, segir að stuðningur Norðmanna í fiskimálum hafi leitt til jákvæðrar þróunar í þessum geira í mörgum þróunarríkjum. Höfundar úttektarinnar telja hins vegar að erfiðara sé að mæla augljósan árangur af starfinu í viðleitninni til að draga úr fátækt. Í stað þess að setja á oddinn að draga úr fátækt innan fiskigeirans hafi norski stuðningurinn verið sniðinn að sviðum þar sem norskar stofnanir hafi staðið sterkt: í rannsóknum, mælingum á stofnstærð og iðnvæddum sjávarútvegi.


 Nánar
SIDA og NORAD hefja alþjóðlegt átak gegn mæðradauða
 Gsal
Þróunarsamvinnustofnanir Noregs og Svíþjóðar, SIDA og NORAD, hafa ákveðið að taka höndum saman um alþjóðlegt átak vegna kvenna sem deyja af barnsförum. Alþjóðlegur vinnufundur um þetta mikilvæga málefni hófst í gær og verður fram haldið í dag í Stokkhólmi þar sem saman koma fulltrúar þeirra sem veita þróunaraðstoð, fulltrúar alþjóðasamtaka og fulltrúar ýmissa alþjóðastofnana. Ætlunin er að ræða hvernig unnt er að samræma betur aðgerðir í framtíðinni til að fækka konum sem deyja í tengslum við meðgöngu eða fæðingu.
 
Á vefsíðu SIDA segir að konur sem deyja af barnsförum séu enn álíka margar og fyrir tuttugu árum. Í sumum heimshlutum sé allt að 40% dauðsfalla af völdum áhættusamra fóstureyðinga. Staðan er þessi þrátt fyrir fyrirheit í þúsaldarmarkmiðunum um að minnka dauðsföll mæðra um þrjá fjórðu fram til 2015.
 
Frétt SIDA 
 
Veggspjald um mæðradauða
 
Noregur: Róttækar breytingar boðaðar í þróunarmálum
©TIME Miklar breytingar eru í vændum í stefnu norskra stjórnvalda í þróunarmálum. Erik Solheim, sem bæði er þróunarmála- og umhverfismálaráðherra, flytur stefnuræðu á Stórþinginu á föstudaginn kemur, 13. febrúar, og samkvæmt frétt Bistandsaktuelt boðar hann róttækar stefnubreytingar. Að mati norska ráðherrans er þörf á því að endurskilgreina þróunarsamvinnu og taka með í reikninginn fleiri þætti eins og öryggis- og loftslagsmál. Áherslan verður á þrjú meginsvið sem öll eiga K sem upphafsstaf í norsku: klima (lofslag), konflikt (átök) og kapital (fjármagn).
 
Í tengslum við stefnubreytinguna í þróunarmálum hefur norski ráðherrann átt fjölmarga fundi með fulltrúum frjálsra félagasamtaka.
 
Nánar

 
Fjármálakreppan: Tækifæri fyrir Afríku?
Moyo Miklar umræður hafa verið á síðustu dögum um nýja bók þar sem fjallað er um þróunaraðstoð: Dead Aid: Why Aid is not Working and How There is Another Way for Africa. Höfundurinn er ung kona, Dambisa Moyo, frá Sambíu og fyrrverandi hagfræðingur Alþjóðabankans. Hún telur að í fjármálakreppunni sem nú skekur heiminn felist tækifæri fyrir Afríku: að losa sig undan oki þróunaraðstoðar sem sé fremur til óþurftar en þurftar. Nú séu tímarnir þannig að stjórnvöld fátækra ríkja í Afríku geti ekki lengur reitt sig á framlög frá iðnríkjunum og því séu opin tækifæri til að finna nýjar leiðir til að fjármagna efnahagslega þróun.
 
 
 
 

Þörf á nýju verklagi í þróunarmálum
Jakaya Kikwete forseti Tansaníu og Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hvetja til þess í opnu bréfi að beitt verði nýjum aðferðum í þróunarmálum Afríku til þess að Afríkuríki njóti hnattvæðingarinnar til fulls. Þeir segja að Afríka þurfi að verða efnhagslega samkeppnishæf eigi að vera unnt að draga úr fátækt og fjölga störfum.
 
Kikwete og Rasmussen benda á að hagvöxtur í Afríku hafi verið að meðaltali yfir 6% á síðustu árum en við nánari skoðun komi í ljós að vöxturinn sé tilkominn vegna hækkunar á verðlagi. Hagvöxtur sem byggir á slíkum þáttum dugi ekki til að fjölga störfum og draga úr fátækt.
 
Að mati þeirra þarf því alþjóðlegt átak til að bæta samkeppnisstöðu einkageirans í Afríku. "Að dæla þróunarfé inn í álfuna er hvorki sjálfbært né gagnlegt í sjálfu sér," segir í bréfinu. "Afríka og samstarfsríkin ættu að einbeita sér að því að draga úr kostnaði við viðskipti með því að berjast gegn spillingu, auka og bæta framhaldsmenntun og þjálfun að kröfum einkageirans, auka aðgengi að fjármagni til fjárfestinga, bæta orkuforða og innviði."
 
Höfundarnir eru báðir fulltrúar í African Commission, Afríkuráðinu.
 

Ári hreinlætis lokið
©TIME
Sameinuðu þjóðirnar skilgreindu árið 2008 sem "Alþjóðlegt ár hreinlætis". Það breytir því ekki að í ársbyrjun 2009 eru um 2.6 milljarðar manna, þar af um milljarður barna, sem lifa án nauðsynlegs hreinlætis. IPS fréttaveitan ræddi þessi mál við Therese Dooley sem fer fyrir þessum málaflokki hjá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
 
Samkvæmt tölfræðinni deyr eitt barn á tuttugu sekúndna fresti í heiminum þar sem hægt er að skilgreina skort á hreinlæti sem dánarorsök. Fimmfaldur íbúafjöldi Íslands lætur árlega lífið af þessum ástæðum, ein og hálf milljón manna.
Athyglisvert
Kínverjar heita frekari stuðningi við Afríku
Hu Jintao forseti Kína heitir Afríkuríkjum frekari stuðningi og samstarfi í baráttunni gegn heimskreppunni. Forsetinn lagði í gær af stað í ferðlag um Miðausturlönd og verður vikutíma í ferðinni. Í Afríku heimsækir forsetinn Malí, Senegal, Tansaníu og Mauritius.
Kínversk stjórnvöld hétu því fyrir tveimur árum að tvöfalda framlög til þróunaraðstoðar í Afríku fram til ársins 2009. Ætlunin er að standa við þau fyrirheit, að því er fram kemur í fréttum.
 

AFP
Utanríkisráðherrar Norðurlandana álykta um Srí Lanka og Gaza
Norrænu utanríkisráðherrarnir lýstu í dag yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Sri Lanka þar sem um 250.000 óbreyttir borgarar hafa lokast inni á átakasvæðum. Þá sögðu utanríkisráðherrarnir að bráð nauðsyn væri á að auka aðstoð við Palestínumenn á Gaza. Ráðherrarnir funduðu í dag í Ósló og stýrði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundinum.
Utanríkisráðherrarnir skoruðu á stríðandi fylkingar á Sri Landa; stjórnarherinn og baráttusamtök Tamíl Tígra (LTTE) að virða mannúðarlög og að samþykkja vopnahlé svo hægt væri að koma slösuðum til aðstoðar og koma hjálpargögnum til þeirra sem búa á átakasvæðunum. Sögðu ráðherrarnir nauðsynlegt að alþjóðasamtök á borð við Alþjóða Rauða krossinn og Sameinuðu þjóðirnar gætu starfað á svæðunum. Þá skoruðu ráðherrarnir á stríðandi fylkingar að hefja friðarviðræður án tafar.
 
 
 
Gaddafi hristir upp í Afríku
gaddafi
Ef marka má ummæli í dagblöðum í Afríku ríkir ekki mikil ánægja með nýjan formann Afríkusambandsins, Líbýuleiðtogann Muammar Gaddafi. "Með Gaddafi við stjórnvölinn gæti Afríka sprungið," sagði í The Nation, einu af stórblöðum Kenía. "Kjör Gaddafis er síðasta naglinn í líkkistu Afríku," sagði í Daily Monitor í Úganda.

Times í Lundúnum rekur viðbrögð við kjöri Gaddafis.
 

Framlög Íra til þróunarsamvinnu lítillega skert
irishaid
Ríkisstjórn Írlands hefur tekið þá ákvörðun að skerða líttilega framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu á þessu ári. Áformað hafði verið að verja 891 milljónum evra í ODA en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður framlagið á árinu 796 milljónir evra. Írar hafa verið meðal þeirra þjóða sem veitt hafa hlutfallslega mest til þróunarmála og verður, þrátt fyrir niðurskurðinn, áfram í 6. sæti yfir þær þjóðir sem verja mestu til málaflokksins, að því er fram kemur í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkis- og þróunarmálaráðherra Íra.
 

©TIME 
Veftímarit um þróunarmál er gefið út af Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Ritinu er ætlað að glæða umræðu um þróunarmál og gefa áhugasömum kost á að fylgjast með því sem hæst ber hverju sinni. Efni veftímaritsins þarf ekki endilega að endurspegla stefnu stofnunarinnar.          
 
Skráið ykkur í áskrift á heimasíðunni, www.iceida.is og látið vinsamlegast aðra með áhuga á þróunarmálum vita af tilvist veftímaritsins. Allar ábendingar um efni eru vel þegnar.  

Þeir sem vilja afskrá sig af netfangalista eru vinsamlegast beðnir um að senda beiðni til okkar á netfangið iceida@iceida.is.
  
ISSN 1670-8105
 

Bestu kveðjur, Útgáfu- og kynningardeild ÞSSÍ