| Niðurstöður úr manntali í Malaví:
Ævilíkur komnar niður í 37 ár |
Fólksfjölgun í Malaví nemur 2.8% á tíu ára tímabili og þjóðin telur nú 13,1 milljón manna, að því er nýjar tölur úr manntalinu sem fram fór á vormánuðum leiða í ljós. Síðast var gert manntal í Malaví 1998 og þá voru Malavar 9.9 milljónir. Alvarlegustu tölurnar sem manntalið dregur fram í dagsljósið eru meðalævilíkurnar. Þær eru komnar niður í 37 ár, fyrst og fremst vegna útbreiðslu alnæmis en 14% þjóðarinnar er HIV smituð. Áður voru ævilíkur taldar vera 46,3 ár að meðaltali. Í annarri skýrslu, Social Protection and Ageing in Malawi, kemur fram að rúmlega 52% malavísku þjóðarinnar býr við sárafátækt, 50% barna undir fimm ára aldri býr við vannæringu sem dregur úr líkamsvexti, 13% barna undir átján ára aldri hefur misst foreldri, í flestum tilvikum úr alnæmi, og rúmlega 50% grunnskólabarna hafa hrökklast úr námi. Daily Times
Irin News um skýrsluna Social Protection and Ageing in Malawi
|
| Barist á götum Managua að loknum kosningum til sveitastjórna |
Götuóeirðir hafa brotist út í Managua, höfuðborg Níkaragva, milli stuðningsmanna Sandínista og stjórnarandstæðinga eftir að bráðabirgðatölur voru birtar um úrslit í sveitastjórnarkosningum um helgina. Samkvæmt þeim tölum hafa Sandínistar betur í 100 sveitarfélögum af 146, þar á meðal í höfuðborginni, en stjórnarandstæðingar telja að stjórnarflokkurinn - Sandinista National Liberation Front - hafi haft rangt við í kosningunum. Stjórnarandstæðingar telja sig hafa borið sigur úr býtum í 58 sveitarfélögum, þar á meðal í Managua.
Samkvæmt fréttum í morgun hafnar stjórnarandstaðan úrslitum kosninganna og einnig berast fregnir af nýjum átökum.
Um helgina létust að minnsta kosti tveir í átökum og nokkrir liggja sárir eftir. Átökin brutust út þegar stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar, um þrjú þúsund talsins, þrömmuðu í átt að talningamiðstöðinni og laust saman við stuðningsmenn Arnoldo Aleman, fulltrúa Sandínista.
Stjórnvöld í Níkaragva eru gagnrýnd fyrir að hindra aðgang alþjóðlegra eftirlitsmanna að kjörstöðum á sunnudag og sú ákvörðun eykur ekki tiltrú á að kosningarnar hafa farið heiðarlega fram, eins og margir benda á. Frétt AFP
|
| Sjö fulltrúar Alþingis kosnir í þróunarsamvinnunefnd |
Alþingi hefur kosið nefndarmenn í þróunarsamvinnunefnd en hlutverk nefndarinnar, samkvæmt nýlegum lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, er að tryggja aðkomu fulltrúa þingflokka að stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu til lengri tíma. Aðalmenn í nefndinni eru Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur, Haukur Már Haraldsson kennari, Sigfús Ólafsson viðskiptafræðingur, Drífa Hjartardóttir framkvæmdastjóri, Katrín Ásgrímsdóttir garðyrkjubóndi, Guðrún Ögmundsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórnmálafræðingur.
Meira á vef ÞSSÍ |
| Umfangsmiklar tilraunir með nýtt bóluefni gegn malaríu að hefjast |
| Vísindamenn sem vinna að því að þróa fyrsta bóluefnið gegn malaríu áforma að gera umfangsmikla tilraun með lyfið í næstu mánuði með þátttöku sextán þúsund barna. Breski lyfjaframleiðandinn GlaxoSmithKline PLC vinnur að þessum tilraunum í samvinnu við PATH Malaria Vaccine Initiative, sem eru góðagerðarsamtök stofnuð af sjóði Bill og Melindu Gates, en auk þess taka ýmsar lækna- og rannsóknastofur í Afríku þátt í þessu merka þróunarstarfi.
Malaría dregur árlega rúmlega eina milljón manna til dauða og börn eru þar í meirihluta.
Tilraunirnar með bóluefnið verða gerðar í Burkina Faso, Gabon, Gana, Kenía, Malaví, Mósambík og Tansaníu. Frétt AP |
| Nýtt malaríulyf of dýrt fyrir flesta íbúa Úganda |
Nýtt malaríulyf sem gefist hefur vel í baráttunni gegn þessum banvæna sjúkdómi er of dýrt fyrir flesta íbúa Úganda og einnig oft ófáanlegt, að því er segir í frétt The Guardian. Fólk neyðist því til að kaupa eldri lyf og ódýrari sem oft gagnast þó lítið. Ástæðan er sú að veiran myndar ónæmi fyrir lyfjum.
Malaría er útbreidd í Úganda og rúmur fimmtungur allra dauðsfalla er rakinn til sjúkdómsins. Lítil börn og barnshafandi konur eru einkanlega í hættu, segir í fréttinni. Þar kemur fram að nýja lyfið er unnið úr kínverskri plöntu sem kallast "artimisinins" og hefur reynst það vel að lyfið hefur vakið með mönnum vonir um að unnt verði að útrýma veikinni. Frétt Guardian |
| Verða að standa við skuldbindingar |
Leiðtogar tuttugu helstu iðnríkja heims verða beðnir um að staðfesta að nýju fyrirheit um að standa við skuldbindingar um þróunaraðstoð á neyðarfundi sem boðað er til 15. nóvember. Bandaríkjaforseti, George W. Bush, boðar til fundarins og aðalefni hans er efnahagskreppan í heiminum. Fram kemur í frétt IRIN fréttaveitunnar að þróunarsérfræðingar hafi látið í ljós ótta um verulegan niðurskurð í opinberri þróunaraðstoð (ODA) og spái allt að þriðjungs samdrætti. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bankastjóri Alþjóðabankans og yfirmaður þróunar- og mannúðarmála hjá Evrópusambandinu eru meðal þeirra sem hvetja ríkisstjórnir að bregðast ekki fátækasta fólkinu í heiminum. Frétt IRIN | |
|
|
|
| Rödd Mömmu Afríku
er þögnuð |
 |
Hún var rödd heillar heimsálfu og stóð vel undir því nafni að vera kölluð "mamma Afríku". Miriam Makeba, Suður-Afríska söngkonan og baráttukonan, lést á Ítalíu á sunnudagskvöld, 76 ára að aldri. Banamein hennar var hjartaslag. Grein í New York Times
|
| Neyð í Kongó: Svíar reiðubúnir að leggja fram 40 milljónir SKR |
 |
Aðstæður íbúa í Kongó fara versnandi með degi hverjum. Svíar hafa tilkynnt að þeir séu reiðubúnir að leggja fram sem svarar 40 milljónum sænskra króna til stuðnings mannúðarstarfi í Kongó og að fjórðungurinn renni beint til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna vegna flóttamanna á svæðinu. Gunilla Carlsson þróunarmálaráðherra Svía segir nauðsynlegt að grípa strax í taumana og koma á vopnahléi í grennd við Goma því sífellt fleiri íbúar hrekist á flótta. Reliefweb |
| Niðurgreiðslur auka fæðuöryggi |
 |
Niðurgreiðslur ríkisins til malavískra bænda vegna áburðarkaupa hafa vakið heimsathygli og aukið fæðuöryggið í landinu sem er eitt það fátækasta í heiminum. Áður en niðgreiðslurnar komu til árið 2005 höfðu fátækir bændur í Malaví engin ráð á því að kaupa dýran áburð með þeim afleiðingum að sulturinn svarf að með reglubundnu millibili. Nú á dögum hækkandi matvælaverðs er malavíska niðurgreiðsluleiðin gulls ígildi, bændur rækta margfalt meira en þeir þurfa til eigin nota og geta jafnvel selt hluta uppskerunnar á markaði. Hvort sultarsöngurinn tilheyri fortíðinni skal þó ósagt látið því enn berast fréttir af þvi að hungurvofan láti á sér kræla eins, sbr. frétt frá því í morgun, 'Hunger will hit some parts of Malawi'.
Nú horfa aðrar Afríkuþjóðir á fordæmi Malava og vilja beita sömu aðferðum. En líkt og í Malaví hljóma niðurgreiðslur ekki vel í eyrum Alþjóðabankans og margra annarra veitenda þróunaraðstoðar sem gera kröfur um að lánveitingum fylgi skuldbindingar um afnám hafta og ríkisstyrkja. Þessar kröfur hafa verið gangrýndar í ljósi þess að bæði í Bandaríkjunum og Evrópulöndum er landbúnaður niðurgreiddur í miklum mæli.
|
| Risaframlag The Global Fund |
 |
Alþjóðlegi þróunarsjóðurinn, The Global Fund, ætlar að verja 2.75 milljörðum dala á næstu tveimur árum í bárattuna gegn alnæmi, berklum og malaríu, í 140 löndum, að því er International Herald Tribune greinir frá. Markmið samtakanna er að fækka dauðsföllum af völdum alnæmis og berklum um helming fyrir árið 2015. Sjóðurinn The Global Fund var stofnaður árið 2001 þegar G8 hópurinn, sem telja helstu iðnríki heims, hét því að herða baráttuna gegn alnæmi og öðrum hættulegum sjúkdómum. Bandaríkin, Holland, Spánn, Frakkland, Noregur og Evrópusambandið eru meðal helstu styrkveitenda sjóðsins.
|
| Ný bók |
|
Norska utanríkisráðuneytið hefur gefið út bókina Africa: Political partner and global actor - opportunities and challenges. Lesa má kafla bókarinnar á Netinu. Kaflar bókarinnar á Netinu. |
| Fyrirlestur um endurhæfingu barnahermanna |
 |
Rauði krossinn og Afríka 20:20 - áhugamannafélag um Afríku sunnan Sahara standa að sameiginlegum fyrirlestri um endurhæfingu barnahermanna í Vestur-Afríku í dag 12. nóvember kl. 17 á landskrifstofu Rauða krossins að Efstaleiti 9. Öllum er heimill aðgangur.
| |
|