Veftímarit um þróunarmál
Þróunarsamvinna
Samstarfsþjóðir 
15. október 2008 
Staðið verði við skuldbindingar um þróunarsamvinnu
 
accra
 
Stjórnendur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fullvissað fulltrúa þróunarlandanna um að yfirstandandi fjármálakreppa verði ekki látin bitna á fátækasta fólkinu í heiminum. Þessar tvær stóru alþjóðlegu fjármálastofnanir heita því sameiginlega að veita fjármagni til fátækra ríkja til að styrkja efnahag þeirra ásamt greiningu og ráðgjöf. Þær hvetja jafnframt ríkisstjórnir iðríkjanna til að gleyma ekki þróunarlöndunum og standa við skuldbindingar um þróunarsamvinnu.
 
Staða þróunarlandanna í fjármálaumróti síðustu vikna var meginefni fundar í Bandríkjunum um helgina. Robert Zoellick bankastjóri Alþjóðabankans segir fjármálakreppuna í heiminum dæmi um hamfarir af mannavöldum. Hann segir að þjóðir heims sem hafi nýlega skuldbundið sig um framlög til fátækra ríkja megi ekki leggja þau áfrom til hliðar vegna skyndilegs lausafjárskorts eða niðursveiflu í hagkerfinu. Dominique Strauss-Khan, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bendir á hættuna á því að fátækjum ríkum verði að ósekju refsað á tvennan hátt, bæði með erfiðleikum um öflun á erlendu fjármagni og lækkandi verði á útflutningsvörum.
 
Í yfirlýsingunni eru þjóðir sem veita þróunaraðstoð hvattar til þess að standa við skuldbindingar sínar um framlög til alþjóðegrar þróunarsamvinnu.
 
Yfirlýsing Development Comittee
 
Snýr Afríka sér í austurátt þegar Vesturlönd bregðast?
 
Bláfátækt fólk í Afríkuríkjum glímir við það alla daga að brauðfæða fjölskylduna og hefur margt hvert ekki heyrt af fjármálakreppunni sem skekur hinn vestræna heim. Sjö hundruð milljarða dala framlag Bandaríkjastjórnar til bjargar bönkunum vestra hefði dugað til að útrýma fátækt í heiminum í tvö ár. Upphæðin nemur tvöföldum skuldum þróunarríkjanna. "Ef ríku þjóðirnar glíma við vandamál þá endar það ævinlega hér - þú getur reitt þig á það," segir bifvélavirki í Burkina Faso.
 
Hér er vitnað í fróðlega grein Reuters um Afríku og fjármálakreppuna og daglegt líf fólks í Afríkulöndum sem á ekkert og lifir með dauða, hungri og sjúkdómum. Allir óttast að framlög til þróunarlanda verði skorin niður þótt Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetji Vesturlönd til að standa áfram vaktina. En fari það svo að Vesturlönd snúi baki við Afríku þá eiga þeir, líkt og Íslendingar, vini í austrinu. Kínverjar hafa á undanförnum árum aukið umsvif sín í Afríku gífurlega og líklegt að bankakollsteypan á Vesturlöndum verði til þess að þeir koma ár sinn enn betur fyrir borð í álfunni.
 
 
 Fleiri greinar um svipað efni:

 
Mósambík: Varað við barnsránum í skólum
mozskoliSkólayfirvöld í Mósambík hafa verið hvött til þess að grípa til viðeigandi ráðstafna til að vernda börn í skólum frá því að lenda í höndum glæpamanna sem selja þau í vændi. Graca Machel, fyrrverandi forsetafrú Mósambík og núverandi eiginkona Nelsons Mandela, hefur vakið athygli á barnsránum í skólum í Mósambík. Hún segir í samtali við AP fréttastofuna að öryggismál í skólum séu óviðundandi, þar vanti veggi eða girðingar, og öryggisverðir séu engir. Allir geti því valsað þar um.
 
"Nemendur, einkanlega stúlkur, eiga á hættu að lenda í klónum á glæpamönnum sem ræna þeim og neyða í þærlkun eða vændi," segir Graca Machel.
 
Fram kemur í fréttinni að lögregla sé að rannsaka að minnsta kosti tvö tilvik þar sem börnum var rænt úr banaskóla í borginni Matola í sunnanverðu landinu.
 
AP frétt í USA Today
Tilfærsla á verkefnum í heilbrigðisþjónustu
Langvinnur skortur á heilbrigðisstarfsfólki í Malaví hefur leitt til þess að heilbrigðiskerfið hefur verið hálflamað. Stjórnvöld í landinu hafa að sögn PlusNews fréttaveitunnar beitt aðferð sem kallast "verkefnatilfærsla" (task shifing) þar sem tiltekin verkefni eru færð frá læknum til hjúkrunarfræðinga, önnur verkefni hjúkrunarfræðinga færð til heilsutækna (community health workers) og sum störf þeirra síðasttöldu sett á herðar sjúklinganna sjálfra eða fjölskyldna þeirra.
 
Í fréttinni segir að Malaví hafi verið eitt fyrsta landið til að bregðast við skorti á heilbrigðisstarfsmönnum með þessum hætti. Árangurinn sé augljós: á árinu 2007 hafi 625 þúsund manns farið í HIV greiningu og 95% af rannsóknarvinnunni hafi verið unnin af fólki án læknisfræðilegrar menntunar.

 
Frétt PlusNews
Konurnar fyrstar, segja Danir
accra
Í nýrri grein í danska þróunartímaritinu Udvikling - Þróun Afríku því sem næst stöðnuð - er fjallað um þróun Afríku í ljósi þúsaldarmarkmiðanna sem eiga að vera komin í höfn árið 2015. Þar er þróun álfunnar á síðustu árum líkt við daufan fyrri hálfleik í fótbolta þar sem boðskapurinn í hálfleik er þessi: gefum allt í þetta og þá koma mörkin í seinni hálfleik!
 
Í greininni kemur fram að þróunarmálaráðherra Dana, Ulla Tørnæs, telur að enn séu möguleikar á sigrum, ekki síst hvað þriðja þúsaldarmarkmiðið áhrærir, þ.e. vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna. Danir hafa einmitt látið verulega að sér kveða í jafnréttismálum í þróunarsamvinnu og vinna náið með Sameinuðu þjóða átakinu: Golobal Call to Action.
 
Markmið Dana er að þriðjungur allra framlaga til þróunarmála fari til Afríku og Danir hafa tvöfaldað framlög sem eyrnamerkt eru konum. 
 
Athyglisvert
 
 
Alþjóðlegur handarvottadagur
global hand wash day
Global Hand Washing Day - fyrsti alþjóðlegi handarþvottadagurinn er haldinn í dag, 15. október. Alþjóðaþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að árið 2008 yrði alþjóðlegt ár hreinlætis, International Year of Sanitation, og því minnir handarþvottadagurinn á mikilvægi þess að auka hreinlæti, meðal annars til að fækka tilvikum niðurgangs og sjúkdóma eins og kóleru og mænusóttar.
 
Háskólanemar - komið með hugmyndir!
Norski umhverfis- og þróunarmálaráherrann Erik Solheim hefur óskað eftir því við háskólanema að það komi fram með hugmyndir um það hvernig bæta megi norska þróunarsamvinnu á sviði menntamála. -Við vitum að menntun er ein áhrifamesta leiðin til þróunar. Menntun er mannréttindamál og mikilvæg í baráttunni gegn fátækt. Ég vil vita meira um það hvað námsfólk hefur komist að raun um um menntun og þróunarsamvinnu, segir ráðherrann sammkvæmt frétt á heimasíðu NORAD.
 
Norðmenn verða gestgjafar á alþjóðlegri ráðstefnu UNESCO í desember þar sem yfirskriftin er "Skóli fyrir alla."
 
Of mikil áhersla á opinbera geirann
Evrópuríki og Norðurlönd hafa í þróunarsamvinnu lagt of mikla áherslu á opinbera geirann. Við höfum vanrækt þróun grunnviða, landbúnaðar - og framleiðslugreina, þótt við hefðum margt fram að færa á þeim sviðum. -Þetta er álit Paavo Väyrynen þróunarmálaráðherra Finna.
 
Frétt frá finnska utanríkisráðuneytnu
accra
Veftímarit um þróunarmál er gefið út af Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Ritinu er ætlað að glæða umræðu um þróunarmál og gefa áhugasömum kost á að fylgjast með þvi sem hæst ber hverju sinni. Efni veftímaritsins þarf ekki endilega að endurspegla stefnu stofnunarinnar. Þeir sem vilja afskrá sig af netfangalista eru vinsamlegast beðnir um að senda beiðni til okkar á netfangið iceida@iceida.is.         
Skráið ykkur í áskrift á heimasíðunni, www.iceida.is og látið endilega aðra sem þið vitið að hafa áhuga á þróunarmálum vita af tilvist veftímaritsins.      
Bestu kveðjur, Útgáfu- og kynningardeild ÞSSÍ.