| Betri hagstjórn og meiri hagvöxtur í Afríku en Evrópu |
Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er talið að hagvöxtur í Afríku á þessu ári verði 6,5% en geti þó lækkað niður í 5% sökum efnahagskreppunnar sem nú ríður yfir Vesturlönd.
Hagkerfi Afríkuríkja er víða heilbrigðara en í iðnríkjunum og samkvæmt nýjum upplýsingum frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, hefur stór hluti af fjármagni til Afríkulanda frá árinu 2006 verið fjárfestingar auðmanna sem eru ekki að veita þróunaraðstoð heldur fremur að sækjast eftir gróða.
Enn einn ljósi punkturinn frá Afríku birtist í mati Mo Ibrahim stofnunarinnar sem sagði á mánudag að stjórnsýsla hefði batnað í 31 af 48 ríkjum í sunnanverðri Afríku. Og það sem hafði einkum breyst til betri vegar voru mannréttindi. Meira í The Time. |
| Obama fellur frá loforði um tvöföldun framlaga til þróunarmála |
Þróunarmál hafa ekki verið meðal þeirra málefna sem mesta athygli hafa vakið í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum en báðir forsetaframbjóðendurnir, Barack Obama og John McCain, hafa þó verið spurðir um viðhorf sín til þessara mála.
Obama sagði í sumar að hann myndi sem forseti fá þjóðina til að skilja að þróunaraðstoð gæti verið besta leiðin til að fjárfesta í öruggri framtíð, líkt og raunin hefði verið með Marshall aðstoðinni á sínum tíma. Þá sagði Obama að hann vildi tvöfalda framlög Bandaríkjanna og verja 50 milljörðum dala fyrir árið 2012.
Í nýju viðtali við IPS fréttaveituna eru fyrirheitin ekki jafn afdráttarlaus. Hann er spurður að því hvort Bandaríkin undir stjórn Obama muni auka framlög til þróunarmála í ljósi mikilvægi þess að ná Þúsaldarmarkmiðunum um draga úr fátækt.
-Ég hef sagt að mikilvægt sé að auka framlög til þróunarmála. Nú verð ég hins vegar að segja að áætlnir mínar mótuðust fyrir daga núverandi fjármálakreppu. Það verður því að koma í ljós hvað unnt verður að gera í fjárlögum næsta árs. Ég get heitið því að við munum ekki draga úr þróunaraðstoð, við munum auka hana. Við getum ef til vill ekki aukið hana jafn hratt og jafn mikið og ég vildi þegar ég setti saman áætlanir mínar á síðasta ári.
John McCain hefur ekki gefið út yfirlýsingar um aukin framlög til þróunarsamvinnu en hefur hins vegar opinberlega sagt mikilvægt að útrýma sjúkdómum eins og malaríu sem kallaði á mikla fjármuni. -Auk þess að bjarga milljónum mannslífa í fátækasta hluta heimsins myndi slík herferð bæta ímynd Ameríku í heiminum, sagði McCain í umræðum um utanríkismál fyrr á árinu.
Fjallað er um viðhorf frambjóðendanna í nýrri útgáfu norska þróunarblaðsins Bistandsaktuelt, bls. 8-9.
|
| Konur í Afríku: Staðan verri en fyrir áratug |
Flestar konur í Afríku eru verr staddar í dag en fyrir áratug, segir í nýrri ársskýrslu UNIFEM, Progress of the World´s Women. Samkvæmt skýrslunni eru átta af hverjum tíu konum í Afríku án fastrar launaðrar vinnu, þ.e þær vinna í þágu heimilis eða eru með sjálfstæðan atvinnurekstur. Þessi óformlegu störf gefa of lítið af sér til að konurnar geti lagt til hliðar í sparnað og þær skortir félagslegt öryggi.
Í UNIFEM skýrslunni er konum lýst sem "andliti fátæktar" með beinni skírskotun til skorts á efnahagslegum tækifærum eins og aðgengi að lánum, eignarhaldi á landi, arfi og stuðningsþjónustu.
Í skýrslunni er hins vegar bent á að stjórnmálaþátttaka kvenna í Afríku hafi aukist og bent á Rwanda sem dæmi en þar eru konur í meirihluta á þingi. Jafnframt er vakin athygli á því að skólasókn stúlkna hefur aukist jafnt og þétt á liðnum árum.
Frétt Media Global
|
| Grænt belti í Malaví |
Bingu wa Mutharika forseti Malaví hefur uppi áform um að hefja átak í landbúnaðarmálum sem hefur það langtímamarkmið að þjóðin þurfi ekki að óttast hungur og verði óháð alþjóðlegri matvælaaðstoð. Átakið gengur undir heitinu "græna beltið" og felst í því að skapa slíkt gróðurbelti umhverfis vötn og ár með því að veita vatni á landsvæði sem næði allt að 20 kílómetrum frá strönd eða árbakka. Forsetinn, sem jafnframt er ráðherra landbúnaðar og fæðuöryggis, gerði "græna beltið" að umtalsefni á fundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna á dögunum og hvatti iðnríkin átta, G8 hópinn svonefnda, til að styðja við bakið á Malövum í þessu metnaðarfulla átaki. Frétt IRIN |
|
Ný þróunarsamvinnustofnun tekur til starfa í Japan |
|
Japanir, sem voru eitt sinn stærstu veitendur þróunaraðstoðar, eru nú að brettar upp ermar á þessu sviði til að auka áhrif sín á auðlindasvæðum Afríku með því að setja á laggirnar nýja öfluga þróunarsamvinnustofnun, að því er segir í grein The Time. Stofnunin kemur til með að veita milljörðum dala á ári í þróunaraðstoð, einkum til Afríku og Asíu - til svæða þar sem Kínverjar hafa síðustu árin aukið áhrif sín í þróunaraðstoð og viðskiptum.
Með sameiningu tveggja stofnana sem áður sinntu þróunarmálum af hálfu japanskra stjórnvalda verður til Þróunarsamvinnustofnun Japans (Japan International Cooperation Agency - JICA) sem veltir um 10 milljörðum dala á ári.
Nýja stofnunin verður til við samruna þess sviðs utanríkisráðuneytis sem áður fór með þróunarmál og Þróunarbanka Japans.
| |
|
|
|
| Draga Vesturlönd úr stuðningi við þróunarlönd? |
 |
|
Leiðtogar fátækustu ríkja heims hafa varað Vesturlönd við því að nota yfirstandandi bankakreppu til að falla frá skuldbindingum um þróunarfé. Leiðtogar 79 Afríkuríkja og ríkja í Karíba- og Kyrrahafi (ACP) komu saman til fundar í síðustu viku í Accra, höfuðborg Gana, og ræddu þar m.a. leiðir til að takast á við hækkandi verð á matvælum og orku, auk viðskiptasamnings við Evrópusambandið. Fjármálavandinn í heiminum skyggði þó á önnur umræðuefni á leiðtogafundinum, að sögn AFP fréttastofunnar.
|
| Nýtt skipurit hjá SIDA |
 |
|
Nýtt skipurit fyrir sænsku þróunarsamvinnustofnunina, SIDA, var kynnt 1. október síðastliðinn. Starfsemi SIDA hvílir á þremur meginstoðum: Stefnumótunarsviði, framkvæmdasviði og rekstrarsviði.
|
| Þróunaraðstoð án viðskipta er tímasóun, segir Museveni |
 |
Í gærkvöldi var rætt við Yoweri Musaveni forseta Úganda í Sjónvarpinu. Bogi Ágústsson fréttamaður ræddi við forsetann þegar hann var í heimsókn hér á landi fyrir skömmu. Þátturinn er endursýndur á sunnudaginn kl. 11:55 en einnig er hægt að sjá hann í vefsjónvarpi RUV.
Ath: að það þarf að fara talsvert inn á myndbrotið áður en viðtalið við forsetann hefst. |
| Aukin umsvif Kínverja og Indverja í Afríku |
|
Dagana 22. og 23. september efndi Norræna Afríkustofnunin til alþjóðlegrar ráðstefnu undir yfirskriftinni: China and India in Africa: New Strategic Encounters. Megin markmið ráðstefnunnar var að skoða kosti og galla í útþenslu Kínverja og Indverja í Afríku og áhrif þessara stórþjóða á baráttuna gegn fátækt í álfunni. Meðal fyrirlesara var Samir Amin, egpyskur fræðimaður, sem kallaði erindi sitt: The New Scarmble for Africa: The Roles of China and India. Erindi hans verður á vefsíðu Norrænu Afríkustofnunarinnar innan tíðar.
Heimasíða Norrænu Afríkustofnunarinnar |
| Fæðingarstaður Samora á menningarskrá |
 |
|
Ríkisstjórn Mósambík hefur ákveðið að Ghilembene, í suðurhérðainu Gaza, fæðingarstaður fyrsta forseta Mósambík, Samora Machel, verði skilgreindur sem menningarleg söguslóð. Armando Guebuza, forseti Mósambík, tilkynnti um þessa ákvörðun 2. október síðastliðinn en þá hefði Samora orðið 75 ára. Samora fór fyrir FRELIMO, frelsissveit Mósambík, sem hafði sigur í sjálfstæðisbaráttunni gegn Portúgal og það kom í hlut Samora að lýsa yfir sjálfstæði Mósambík 1975 og verða fyrsti forseti landsins. Hann fórst í flugslysi árið 1986.
|
| Stórt skref fram á við |
 |
|
Niðurstaða Accra fundarins um árangur af þróunarsamvinnu í ljósi markmiða Parísaryfirlýsingarinnar, svokölluð AAA (The Accra Agenda for Action) yfirlýsing, er að mati Eckhard Deutscher stjórnarformanns DAC, Þróunaramvinnunefndar OECD, stórt skref fram á við. Hann ræðir áhrif yfirlýsingarinnar í viðtali við blaðmann frá þýska þróunartímaritinu D+C.
| |
|